Hvað gera Danir?

Danskir stjórn­mála­skýrendur velta því fyrir sér hvort boðað verði til þing­kosn­inga í Danmörku í haust í ljósi úrslit­anna í nýaf­stöðnum kosn­ingum um fyr­ir­var­ann í varn­ar­málum. Þar gæti þó óvænt ljón birst á veg­inum.

Ef niðurstaða „minkanefndarinnar“, sem væntanleg er á næstu vikum, verður sú að eðlilega hafi verið staðið að ákvarðanatöku í þessu stóra máli gæti hugsast að Mette Frederiksen forsætisráðherra myndi ákveða að boða til kosninga í haust.
Ef nið­ur­staða „minka­nefnd­ar­innar“, sem vænt­an­leg er á næstu vikum, verður sú að eðli­lega hafi verið staðið að ákvarð­ana­töku í þessu stóra máli gæti hugs­ast að Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra myndi ákveða að boða til kosn­inga í haust. Mynd: EPA

Árið 1992 voru aðild­ar­ríki núver­andi Evr­ópu­sam­bands orðin sam­mála um að kom­inn væri tími til að end­ur­nýja og betrumbæta sam­starfs­samn­ing aðild­ar­ríkj­anna. Upphaf þess­arar sam­vinnu má rekja til stofn­unar Kola- og stál­banda­lags Evrópu árið 1952. Róm­ar­sátt­mál­inn svo­nefndi var und­ir­rit­aður árið 1957, og þá fengu sam­tökin nafnið Efna­hags­banda­lag Evrópu, en eftir end­ur­nýj­aðan og breyttan samn­ing árið 1992 (Maastricht sam­komu­lagið) var nafn­inu breytt í Evr­ópu­sam­bandið. Forsenda breyt­ing­anna 1992 var að öll aðild­ar­ríki myndu sam­þykkja samn­ing­inn, flest þeirra í almennum kosn­ingum. Nýi samn­ing­ur­inn tók til mun fleiri þátta en sá eldri gerði, meðal ann­ars varð­andi utan­ríkis- og örygg­is­mál, rétt­ar­far og sam­eig­in­legan gjald­miðil.

Danir felldu samninginn

Danir kusu um Maastricht samn­ing­inn 2. júní 1992. Kosn­inga­þátt­taka var 83,1% og nið­ur­staðan var að samn­ingnum var hafnað en mjótt var á munum. 50,7% kjós­enda sögðu nei en 49,3% sögðu já. Þeir þing­flokkar á danska þing­inu, Fol­ket­inget, sem vildu sam­þykkja samn­ing­inn unnu í fram­hald­inu að samn­ings­drögum. Sjö af átta þing­flokkum á danska þing­inu sam­þykktu að fara með drögin (det nationale kompromis) á fund full­trúa hinna land­anna 11 í Edinborg í des­em­ber 1992.

Edinborgarsamkomulagið og fyrirvararnir fjórir

Á fund­inum í Edinborg var gengið frá sér­stöku sam­komu­lagi, ætíð nefnt Edin­borg­ar­sam­komu­lagið, við Dani. Í kjöl­far þess var enn á ný kosið í Danmörku. 56,7% kjós­enda sam­þykktu sam­komu­lagið, og nýi samn­ing­ur­inn tók gildi 1. nóv­em­ber 1993. Fyr­ir­var­arnir sem Danir fengu sam­þykkta voru fjórir og í sam­komu­lag­inu var gert ráð fyrir að dönsk stjórn­völd skyldu til­kynna öðrum aðild­ar­ríkum Evr­ópu­sam­bands­ins ef fella ætti einn, eða fleiri, fyr­ir­vara úr gildi. Danska þingið sam­þykkti að fyr­ir­var­arnir yrðu því aðeins afnumdir ef slíkt yrði sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Fyr­ir­var­arnir fjórir sneru að varn­ar­málum, evr­ópskum gjald­miðli (evr­unni), dóms-og lög­reglu­málum og sam­eig­in­legum evr­ópskum rík­is­borg­ara­rétti.

Meiri­hluti danskra kjós­enda hafn­aði árið 2000 að taka upp evr­una, vildi halda dönsku krón­unni sem er þó, ef svo má segja, bein­tengd evr­unni.

Árið 2015 felldu Danir að fella niður fyr­ir­var­ann varð­andi dóms- og lög­reglu­mál og fyr­ir­var­inn varð­andi sam­eig­in­lega evr­ópska rík­is­borg­ar­ar­rétt­inn er úreltur eftir breyt­ingar á Maastricht sam­komu­lag­inu. Kosn­ing­arnar 1. júní voru því þær fyrstu þar sem Danir sam­þykkja afnám fyr­ir­var­anna sem settir voru 1992. Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra sagði í við­tali við danska útvarpið, DR, að ekki sjá­ist nein merki þess að Dönum hafi snú­ist hugur varð­andi dóms- og lög­reglu­málin, hvað þá dönsku krón­una.

Hvað felst í afnámi fyrirvarans í varnar- og öryggismálum?

Afnám fyr­ir­var­ans þýðir að Danmörk tekur þátt í sam­starfi ESB ríkj­anna og tekur þátt í aðgerðum sem varða öryggis- og varn­ar­mál, leggur til her­lið ásamt tólum og tækjum til frið­ar­gæslu­starfa á átaka­svæðum. Danmörk verður nú enn­fremur með í ákvarð­ana­töku og hefur atkvæð­is­rétt í ráð­herra­ráði ESB. Evr­ópu­sam­bandið hefur ekki sam­eig­in­legan her en hvert aðild­ar­ríki tekur ákvað­anir varð­andi eigin her og þátt­töku hans í verk­efnum sam­bands­ins. ESB hefur á síð­ustu árum meðal ann­ars tekið þátt í frið­ar­gæslu í Bosníu-Her­segóvínu, verndun og aðstoð við flótta­fólk frá Darfur í Súdan og sinnt eft­ir­liti og gæslu úti fyrir ströndum Sómalíu.

Afnám fyr­ir­var­ans þýðir enn­fremur að Danir verða þátt­tak­endur í svo­nefndu Pesco sam­starfi, sem lýtur að sam­eig­in­legum vopnainn­kaupum, sam­starfi um flutn­ing her­manna og her­gagna milli svæða.

Hvað hefur breyst?

Eins og nefnt var hér að framan hafa til­raunir danskra stjórn­valda til að afnema fyr­ir­var­ana við Maastricht samn­ing­inn engan árangur borið, fyrr en nú. Danskir stjórn­mála­skýrendur eru ekki í vafa um að stríðið í Úkraínu hafi haft umtals­verð áhrif á við­horf danskra kjós­enda.

Þótt Danir hafi alla tíð verið gagn­rýnir á Evr­ópu­sam­bandið hefur dregið úr gagn­rýn­inni á und­an­förnum árum. Úrslit kosn­ing­anna urðu til að mynda for­ystu Danska Þjóð­ar­flokks­ins, sem mjög hefur talað fyrir úrsögn Dan­merkur úr ESB og séð skratt­ann í hverju ESB horni (orða­lag eins dönsku blað­anna) mikið áfall. Æ fleiri Danir virð­ast hall­ast að þeirri skoðun að Evrópa verði að standa saman og átökin í Úkraínu séu ótví­ræð sönnun þess.

Kostar sitt

Afnám fyr­ir­var­ans í öryggis- og varn­ar­málum hefur í för með sér kostnað. Hversu mik­ill hann verður liggur ekki fyrir. Sér­fræð­ingar í danska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu reikn­uðu út að kostn­að­ur­inn yrði um það bil 26 millj­ónir danskra króna á ári ( 500 millj­ónir íslenskar). Danskir her­mála­sér­fræð­ingar segja þá tölu alltof lága, kostn­að­ur­inn verði miklu meiri. Þeir hafa jafn­framt bent á að Danir, hafi innan NATO, skuld­bundið sig til að auka fram­lög sín til varn­ar­mála umtals­vert.

Gerist ekki í einum grænum

Áður en afnám fyr­ir­var­ans verður að veru­leika þarf ýmis­legt að gera. Margrét Þór­hildur drottn­ing þarf að und­ir­rita lögin. Þau verða síðan birt í danska lög­birt­inga­blað­inu (Lovtidende) og taka þá form­lega gildi. Samtímis birt­ingu lag­anna í lög­birt­inga­blað­inu skal aðild­ar­ríkjum ESB og stofn­unum þess til­kynnt um afnámið. Sú til­kynn­ing skal vera skrif­leg (eng­inn tölvu­póstur þar) en aðild­ar­ríkin þurfa ekki að sam­þykkja ákvörðun Dana. Full­trúar Dan­merkur geta nú þegar setið fundi þar sem fjallað er um hern­aðar- og varn­ar­mál á vett­vangi ESB en geta ekki tekið þátt í ákvörð­unum fyrr en afnámið hefur form­lega tekið gildi. Sem verður vænt­an­lega eftir nokkrar vikur.

Verður þingkosningum flýtt ?

Þessari spurn­ingu veltu margir danskir stjórn­mála­skýrendur fyrir sér þegar nið­ur­staða kosn­ing­anna um fyr­ir­var­ann lá fyrir að kvöldi 1. júní. Þegar spurn­ing­unni var beint til Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra þegar úrslitin lágu fyrir að kvöldi kjör­dags brosti ráð­herr­ann og svar­aði að kosn­ingar færu fram eigi síðar en 4. júní á næsta ári. Samkvæmt dönsku stjórn­ar­skránni (grund­loven) mega ekki líða meira en fjögur ár milli kosn­inga en síð­ast var kosið til þings 5. júní 2019.

Sínum augum lítur hver á silfrið

Ástæða vanga­veltna um að kosn­ingum verði flýtt, sem er á valdi for­sæt­is­ráð­herra að ákveða, er hin afdrátt­ar­lausa nið­ur­staða nýaf­stað­inna kosn­inga.

Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra og leið­togi sós­í­alde­mókrata, stærsta þing­flokks­ins, lítur á nið­ur­stöðu kosn­ing­anna sem sigur rík­is­stjórnar sinnar. En það voru fleiri sem töl­uðu ákaft fyrir afnáminu. Jakob Ellemann-Jensen for­maður Venstre, næst fjöl­menn­asta flokks­ins á þing­inu, hafði sig mjög í frammi og var ákafur tals­maður afnáms­ins. Sós­í­alde­mókratar og Venstre eru á sitt hvorum arm­inum í dönskum stjórn­málum, eða blokk­inni eins og Danir kom­ast að orði. Jakob Ellemann-Jensen þótti standa sig vel í aðdrag­anda kosn­ing­anna og hefur, að mati stjórn­mála­skýrenda, vaxið mjög í for­manns­starf­inu. Hann hefði lík­lega ekk­ert við það að athuga að kosn­ingar færu fram með haustinu því þessa stund­ina blæs byr­lega fyrir Venstre. En væri ekki sömu­leiðis freist­andi fyrir for­sæt­is­ráð­herr­ann að flýta kosn­ing­unum úr því að líka er vindur í seglum sós­í­alde­mókrata?

Gæti verið ljón á veginum, réttara sagt minkur

Eitt erf­ið­asta mál sem stjórn Mette Frederik­sen hefur mátt glíma við á kjör­tíma­bil­inu er minka­málið svo­nefnda.

[links]Í nóv­em­ber 2020 fyr­ir­skip­aði danska rík­is­stjórnin að allur danski minka­stofn­inn, sam­tals um 17 milljón dýr, skyldi sleg­inn af. Ástæðan var kór­ónu­veiran en nýtt afbrigði hennar hafði fund­ist í minkum. Ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar var umdeild, sumum fannst allt of hart gengið fram, aðrir töldu þetta nauð­syn­legt, í ljósi þess að talið var að minka­af­brigðið gæti borist í fólk.

Minka­stofn­inn var felldur og hræin urðuð. Það reynd­ist ekki rétt staðið að þeim málum og síðar voru hræin grafin upp og brennd.

Ítarlega var fjallað um minka­málið hér í Kjarn­anum og skal það ekki end­ur­tekið hér en mál­inu er ekki lokið. Sérstök nefnd hefur mán­uðum saman unnið að rann­sókn minka­máls­ins og þar verður velt við hverjum steini: var nauð­syn­legt að fella allan stofn­inn, hver ákvað það o.s.frv. Spurn­ing­arnar eru margar.

Skýrsla „minka­nefnd­ar­innar“ er vænt­an­leg á næstu vikum og margir bíða í ofvæni eftir að sjá hvað þar kemur fram.

Ef nið­ur­staða nefnd­ar­innar verður sú að eðli­lega hafi verið staðið að ákvarð­ana­töku í þessu stóra máli gæti hugs­ast að Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra myndi ákveða að boða til kosn­inga í haust. Verði nið­ur­staðan á hinn bóg­inn sú að rangar ákvarð­anir stjórn­valda hafi ráðið för gæti það haft áhrif, og dregið úr fylgi jafn­að­ar­manna. Þá sæi for­sæt­is­ráð­herr­ann sér ekki í hag í að flýta kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár