Twitter leitar að nýjum leiðtoga - Þarf að geta byggt upp tekjumódel!

Samfélagsmiðlarisinn Twitter leitar nú að nýjum forstjóra til þess að leiðta fyrir­tækið í gegnum breytinga­skeið og krefjandi tíma. Sá sem talinn er koma helst til greina er Jack Dorsey, einn stofnenda Twitter, en hann starfaði sem forstjóri á fyrstu árum Twitter en var rekinn árið 2008. Frá þessu er greint í New York Times í dag.

Framkvæmda­stjórn Twitter hefur gefið það út að nýr forstjóri þurfi að búa yfir afburða­hæfileikum þegar komi að vöruþróun, þurfi að hafa ástríðu fyrir 140 stafa skila­boðunum sem Twitter hefur einblínt á frá stofnun og kunna að stýra almennings­hlutafélagi.

Virkir mánaðar­legir notendur Twitter eru nú 302 milljónir manna á heimsvísu og hefur þeim fjölgað ört á síðustu tveimur árum. Í byrjun árs í fyrra voru þeir rúmlega 200 milljónir. Tekju­módel Twitter hefur hins vegar ekki byggst upp eins hratt, og hluthafar Twitter hafa kvartað yfir því á hluta­hafafundum, að skortur sé á því að skýr stefna sé um það hvernig tekjurnar eigi að byggjast upp til framtíðar litið.

Verkefni nýs forstjóra verður ekki síst leiða nýja vöruþróun sem á að styrkja tekju­myndun þessa risavaxna samfélags sem Twitter notendur mynda með tengingum sín á milli.


Follow the admins list - http://twitter.com/CreatorOfTwitt/lists


— Jack Dorsey (@CreatorOfTwitt) December 20, 2009

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár