Curio hlaut Nýsköpunarverðlaunin

Elliði Hreinsson er framkvæmda­stjóri og stofnandi Curio.

Curio hlaut Nýsköpunar­verðlaun Íslands árið 2019 en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir nýsköpunar­ráðherra afhenti verð­launin á Nýsköpunar­þingi í dag.

Stofnandi og framkvæmda­stjóri Curio er Elliði Hreinsson, en félagið er með 49 starfs­menn í dag, þar af 42 á starfs­stöðvum í Hafnar­firði og á Húsavík.

Curio er nýsköpunar­fyrirtæki sem vinnur að þróun fisk­vinnsluvéla sem auka nýtingu og skila betri afurð í vinnslu á bolfiski í afhausun, flökun og roðflettingu, ásamt því að hafa öryggismál og þrif að leiðar­ljósi.

Félagið selur 85 prósent af vélum sínum á erlendan markað og þá helst í Noregi, Bretlandi, Banda­ríkjunum, Frakk­landi og Póllandi.

Þróunar­starf félagsins hefur skilað sér í nýjum og áhuga­verðum vinnslu­vélum, sem hafa skilað félaginu mikilli veltu­aukningu á undan­förnum árum. Síðari ár hefur félagið lagt sífellt meiri áherslu á þróunar­starf og eru starfs­menn félagsins að vinna að þróun á nýrri vélalínu fyrir lax og bleikju. Prófanir eru þegar hafnar og lofa mjög góðu.

Fyrstu vélar undir vöru­merkinu Curio voru fram­leiddar af Gullmolar ehf. árið 2007 og var fyrir­tækið Curio ehf. stofnað árið 2013 og tók yfir þróun og fram­leiðslu vélanna.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að Curio hafi leitt öflugt þróunar­starf sem snýr að vinnslu sjávar­afurða. „Félagið var framan af ekki áberandi í nýsköpunar­samfélaginu en þróunar­starf félagsins hefur vaxið jafnt og þétt undan­farin ár. Félagið hlaut m.a. árið 2018 tveggja milljón evra styrk í nýsköpunar­áætlun Evrópu­sambandsins innan Horizon 2020 og styrk frá Tækni­þróunar­sjóði vorið 2019 fyrir nýrri tölvu­stýrðri klumbruskurðarvél. Það er mat dómnefndar að Curio hafi þróað fram­úrskarandi afurðir og leggi mikla áherslu á áfram­haldandi þróun véla sem hafi alla burði til að ná árangri á markaði á næstu árum og sé vel að verð­laununum komið,“ segir í rökstuðningi.

Nýsköpunar­verðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslands­stofu, Nýsköpunar­miðstöð Íslands og Nýsköpunar­sjóði atvinnu­lífsins, til fyrir­tækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rann­sóknar- og nýsköpunar­starfi og náð hefur árangri á markaði.

„Tilgangur verð­launanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingar­öflunar og aukinnar verðmæta­sköpunar í atvinnu­lífinu. Verðlauna­gripurinn er stytta af frjósemis­goðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson mynd­höggvara. Við val á verðlauna­hafa er litið til þess hvort um er að ræða sprota­fyrirtæki, hvort það sé byggt á nýrri tækni og hugmynd og hafi þekkingu og reynslu til að sinna fram­úrskarandi þróunar­starfi. Þá er lagt mat á virðis­auka afurða og hvort fyrir­tækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrir­tækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftir­breytni. Að lokum er metið hvort fyrir­tækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð,“ segir í tilkynningu.

Kjarninn heimsótti Elliða árið 2015 þegar hann var að byggja fyrir­tækið upp. Myndband af heim­sókninni má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár