700 milljónir myndi kosta að bólusetja fimmtung þjóðarinnar

Talið er að skammtur af bóluefni við COVID-19 komi til með að kosta um fimm þúsund krónur. Gera má ráð fyrir að kostnaður við að bólusetja 20 prósent þjóðarinnar verði um 700 milljónir, en að sögn Þórólfs Guðna­sonar er von á bóluefni í lok árs 2021.

Fyrsti fundur Almannavarna vegna Covid-19 var haldinn 27. febrúar. Síðasti fundur í bili var í dag, 23. júlí.
Fyrsti fundur Almanna­varna vegna Covid-19 var hald­inn 27. febr­úar. Síðasti fundur í bili var í dag, 23. júlí. Mynd: Lögreglan

„Það er nánast ekkert innan­landssmit í gangi og það er mjög ánægjulegt," sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnar­læknir á upplýsinga­fundi Almanna­varna í dag. Fundirnir hafa verið haldnir reglulega frá því í lok febrúar en eftir fundinn í dag verður gert hlé.

Að vanda fór Þórólfur yfir helstu tölur síðasta sólar­hringinn. Sýni voru tekin úr 2.100 manns á landa­mærum í gær en um 2.300 manns komu til landsins. Eitt virkt smit greindist á landa­mærunum, enginn var með gamalt smit og enginn er að bíða eftir niður­stöðum, eftir því sem fram kom í máli Þórólfs á fundinum.

Frá 15. júní síðastliðnum hafa rúmlega 70 þúsund farþegar komið til landsins og um 50 þúsund sýni hafa verið tekin. Tuttugu manns hafa greinst með virkt smit á þessu tímabili og rúmlega 90 með gömul smit. Ellefu einstaklingar hafa greinst með innan­landssmit en síðasta smit innanlands greindist 2. júlí.

Ekki von á bóluefni fyrr en í lok næsta árs

Þórólfur kom sérstak­lega inn á alþjóðlegt samstarf um þróun bóluefnis sem farið er í gang. Ísland verður aðili að samstarfs­verkefninu COVAX sem Alþjóða­heilbrigðis­stofnunin (WHO) og fleiri stofnanir og fjölmörg lönd eru aðilar að.

Kostnaður við bóluefni er áætlaður að verði um 35 dollarar á hvern skammt eða um 5.000 krónur. Hver einstaklingur þarf tvo skammta til að bólu­setning verði að fullu virk. Kostnaður við að bólusetja um fimmtung þjóðarinnar gæti því orðið um 700 milljónir króna. 

Níu bóluefna­fram­leiðendur hafa verið valdir til samstarfsins, þar af eru sex með bóluefni í klínískum rann­sóknum nú þegar. Þórólfur sagði á fundinum að vantað hefði samhæfingu í þessa vinnu og því hafi WHO stofnað þennan vettvang fyrir samvinnu. Með þessu á að tryggja réttláta dreifingu á bóluefni milli landa og með því að taka þátt tryggir Ísland sér sann­gjarnan aðgang að bóluefni þegar þar að kemur.

Að sögn Þórólfs má gera ráð fyrir að bóluefni verði komið á markað í lok næsta árs, í það minnsta verði ekki mikið framboð af bóluefni fyrr en þá. „Það tekur langan tíma að þróa, rannsaka, markaðs­setja og dreifa bóluefni um allan heim," sagði Þórólfur á fundinum og benti á að ólíklegt væri að unnt yrði að hraða þessu ferli mikið meira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár