Apple Music greiðir plötufyrirtækjum aðeins 0,26 krónur fyrir hverja spilun

Þótt Taylor Swift hafi snúið ákvörðun stjórn­enda Apple, um að greiða tónlistar­mönnum ekkert fyrir þær spilanir sem lög munu fá á fyrstu þremur mánuðum eftir opnun Apple Music, nýrrar tónlistar­veitu Apple, þá virðist sigur hennar og fylgis­manna lítill í peningum talið. Apple hyggst einungis greiða plötu­fyrirtækjum, og þar með lista­mönnum, samtals 0,002 dollara fyrir hverja hlustun. Það eru um 0,26 íslenskar krónur og þarf því fjórar hlustanir til þess að tónlistar­maður fái eina krónu greidda frá Apple. Greiðslan er fyrir skatta. Það þýðir að í mörgum löndum leggst ofan á rúmlega 20 prósenta virðis­aukaskattur.

Greint er frá áætlun Apple á vef Business Insider í dag en tekið er fram að fyrir­tækið hafi enn ekki greint frá fyrir­ætlunum sínum opinber­lega. Um síðustu helgi vakti Taylor Swift athygli á fyrri áætlunum Apple Music um að greiða ekkert fyrir spilun í gegnum tónlistar­veituna á fyrstu þremur mánuðum hennar, en ókeypis verður fyrir notendur að skrá sig fyrst um sinn. Eftir harðort bréf Swift skiptu stjórn­endur Apple um skoðun og sögðust myndu greiða tónlistar­mönnum höfundar­réttar­laun.


Til saman­burðar greiðir Spotify plötu­fyrirtækjum á bilinu 0,006 til 0,0084 dollara fyrir hverja spilun. Hlutur tónlistar­manns af þeim hlut er að jafnaði um 0,001128 dollarar, samkvæmt frétta­skýringu Guardian.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár