Taylor Swift snýr ákvörðun Apple: Tónlistarmenn fá borgað

Opinbert bréf bandarísku söng­konunnar Taylor Swift til stjórn­enda Apple hafði þau áhrif að fyrri ákvörðun þeirra, um að greiða ekki laga­höfundum höfundar­réttar­laun á fyrstu starfs­mánuðum nýrrar tónlistar­veitu fyrir­tækisins, var snúið við. Apple hugðist ekki greiða tónlistar­mönnum höfundar­réttar­laun fyrstu þrjá mánuði eftir opnun Apple Music, nýrrar tónlistar­veita fyrir­tækisins, en þá verður hægt að skrá sig án endur­gjalds. Að þremur mánuðum liðnum munu notendur þurfa að greiða tíu dollara á mánuði.

Pistill Taylor Swift vakti mikla athygli um helgina en hann birtist á Tumblr síðu tónlistar­konunnar og hét „Til Apple, ástar­kveðjur Taylor“. Þar sagðist Swift, sem er ein allra vinsælasta poppstjarna heims um þessar mundir, ekki streyma nýjustu breið­skífunni sinni 1989 í gegnum tónlistar­veituna vegna ákvörðunar Apple um að greiða tónlistar­mönnum ekki höfundar­réttar­laun fyrstu þrjá mánuðina. Hún sagði ákvörðunina ekki snúast um sig heldur nýja listamenn. „Með fullri virðingu, það er ekki of seint fyrir Apple að breyta um stefnu og fá fólk innan tónlistar­geirans til þess að skipta um skoðun, þá sem munu finna mest fyrir ákvörðun ykkar. Við biðjum ykkur ekki um ókeypis iPhone síma. Vinsamlegast ekki biðja okkur um að skaffa ykkur tónlist án endur­gjalds,“ skrifaði Swift. Eddy Cue, einn æðsti yfirmaður Apple, brást við á Twitter og sagðist meðtaka skila­boðin.


We hear you @taylorswift13 and indie artists. Love, Apple


— Eddy Cue (@cue) June 22, 2015

#AppleMusic will pay artist for streaming, even during customer’s free trial period — Eddy Cue (@cue) June 22, 2015

Apple Music, ný tónlistar­veita í samkeppni við Spotify og fleiri, fer í loftið þann 30. júní næst­komandi. Í boði verða um 30 milljón lög. Mánaðar­gjald verður tíu dollarar á mánuði eða 15 dollarar fyrir fjöl­skyldu, að loknu ókeypis þriggja mánaða prufu­tímabili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár