Fólk hljóti að sjá samfélagsbanka sem góðan valkost

Vara­þing­maður Flokks fólks­ins fjall­aði um sam­fé­lags­banka á þing­inu í vik­unni í til­efni af sölu Íslands­banka. „Eigum við að bíða eftir næstu banka­kreppu eða reyna að stofna banka sem fæst ekki við spá­kaup­mennsku heldur fæst við eðli­leg við­skipti?“

Helga Þórðardóttir varaþingmaður Flokksfólksins.
Helga Þórð­ar­dóttir vara­þing­maður Flokks­fólks­ins. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Helga Þórð­ar­dóttir vara­þing­maður Flokks Fólksins nýtti sér sínar tvær mín­útur undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni til að ræða um sam­fé­lags­banka.

„Sam­fé­lags­banki hefur aldrei verið til á Íslandi. Til að skapa grund­völl fyrir rekstri á sam­fé­lags­banka þarf að setja lög á Alþingi Íslend­inga. Í slíkum lögum þarf að koma fram að bank­inn sé við­skipta­banki, ekki fjár­fest­ing­ar­banki. Bankinn bæri sam­fé­lags­lega ábyrgð og arð­ur­inn færi beint til sam­fé­lags­ins.

Í Þýska­landi er stór sam­fé­lags­banki, Spar­kasse, sem er meira en 100 ára gam­all. Hann er vin­sæl­asti banki almenn­ings í Þýska­landi, enda eru við­skipta­vinir hans 50 millj­ónir af þeim 80 millj­ónum sem þar búa. Það eru 400 Spar­kasse-bankar í Þýska­landi. Spar­kasse notar hagnað sinn til sam­fé­lags­mála og hefur sett um 500 millj­ónir evra á ári í ýmis sam­fé­lags­leg verk­efni,“ sagði Helga.

Hvernig væri að gera Landsbankann að samfélagsbanka?

Helga benti á að stór sam­fé­lags­banki væri starf­andi í Banda­ríkj­unum. „Hann var stofn­aður árið 1919 og er rúm­lega 100 ára gam­all. Sam­fé­lags­bank­inn í Norður-Dakóta starfar eftir sér­stökum lögum sem hafa hags­muni almenn­ings að leið­ar­ljósi. Fylkið á bank­ann en starf­semin er sjálf­stæð. Bankinn fjár­festir í raun­veru­legri verð­mæta­sköpun en ekki í spá­kaup­mennsku. Fylkið getur alltaf fengið ódýr lán hjá bank­anum sínum. Banki Norður-Dakóta lenti ekki í vand­ræðum vegna banka­krepp­unnar 2008 því að þeir höfðu ekki keypt neina gúmmí­tékka. Frá 1970 til 2011 urðu 147 banka­kreppur í heim­inum sam­kvæmt Alþjóða­bank­anum.“

Hún spurði í lok ræðu sinnar hvort Íslend­ingar ættu að bíða eftir næstu banka­kreppu eða reyna að stofna banka sem feng­ist ekki við spá­kaup­mennsku heldur við eðli­leg við­skipti.

„Þeim sem er annt um fjár­hags­legt öryggi almenn­ings hljóta að sjá sam­fé­lags­banka sem góðan val­kost. Þeir eru traustir og þeir vinna fyrir fólkið. Í ljósi umræð­unnar hér áðan um sölu bank­anna, hvernig væri að gera Lands­bank­ann að sam­fé­lags­banka okkur öllum til hags­bóta?“ spurði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár