Rebekah Brooks snýr aftur í breska fjölmiðla - ári eftir sýknu í símhleranahneykslinu

Rebekah Brooks snýr í næstu viku aftur til fjölmiðla­samsteypu Ruperts Murdoch, News Corp. Hún verður forstjóri News UK, sem gefur út blöðin Times, Sunday Times og the Sun, og hét áður News International. Þetta var staðfest í dag.

Brooks var einn aðal­leikandinn í símhlerunar­hneykslinu sem skók breskt samfélag árið 2011. Hún hætti störfum hjá News Corp. í kjölfar hneykslisins, en ár er liðið síðan hún var sýknuð af ákærum tengdum málinu.

Í síðustu viku var þó tilkynnt að saksókn­arar í Bretlandi hefðu nú til skoðunar hvort News UK samsteypan verði ákærð og krafin skaðabóta vegna málsins.

Rebekah Brooks varð yngsti ritstjóri í sögu breskra dagblaða þegar hún tók við ritstjórinni á News of the World árið 2000. Hún stjórnaði blaðinu til ársins 2003, og varð svo fyrsti kvenkyns ritstjóri the Sun frá 2003 til 2009. Þá varð hún forstjóri News International, en sagði sem fyrr segir upp störfum árið 2011 í kjölfar þess að símhlerunar­málið náði hámarki.

Blaðamenn á News of the World hleruðu síma fjölda fólks til þess að afla sér frétta, en þetta var gert meðan Brooks var ritstjóri þar. Blaða­maður og einka­spæjari voru dæmdir í fangelsi fyrir þessa iðju árið 2006, en þá höfðu þeir hlerað síma hjá konungs­fjöl­skyldunni. Talið var að þetta hefði aðeins verið gert við frægðar­fólk.

Árið 2011 birti Guardian ásakanir þess efnis að árið 2002, þegar Brooks var ritstjóri News of the World, hefði blaðið brotist inn í talhólfið hjá ungri stúlku, Milly Dowler. Dowler var týnd á þessum tíma og fannst síðar myrt. Ætlunin var að komast í skilaboð sem foreldrar hennar höfðu skilið eftir í talhólfinu.

Allt varð þetta til þess að ákveðið var að leggja News of the World niður og Brooks sagði upp störfum sínum um mitt ár 2011. Nokkrum dögum síðar var hún handtekin vegna símhlerana og vegna gruns um að hafa mútað lögreglu­mönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár