Ekkert grín að safna fyrir fyrstu útborgun

Fast­eigna­mat tekur stökk milli ára og segir vara­þing­maður Pírata að þetta þýði að fast­eigna­gjöld muni hækka – og þar af leið­andi leiga. „Hærri leiga þýðir hærri útgjöld sem þýðir enn þá minni líkur á að við náum að safna fyrir útborg­un.“

Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata.
Lenya Rún Taha Karim vara­þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Fyrir ein­hverja kann að vera fagn­að­ar­efni að sjá virði eign­ar­innar sinnar hækka á milli ára en fyrir fólk í minni stöðu, ungt fólk sem er fast á leigu­mark­aði eða er nýbúið að kaupa sína fyrstu eign, er það kvíða­valdur,“ sagði Lenya Rún Taha Karim vara­þing­maður Pírata á Alþingi í vik­unni.

Vara­þing­mað­ur­inn vísar þarna í nýtt fast­eigna­mat sem birt­ist í lið­inni viku en sam­kvæmt því verður heild­ar­mat á virði fast­eigna á Íslandi 19,9 pró­sent meira á næsta ári en það var á þessu ári. Það þýðir að heild­ar­virði allra fast­eigna hér­lendis verður 12.627 millj­arðar króna. Hækk­unin nemur um 2.100 þús­und millj­ónum króna á milli ára og þýðir þetta meðal ann­ars að fast­eigna­skattar munu hækka.

Hún benti á að með hærra fast­eigna­mati yrði enn erf­ið­ara fyrir ungt fólk að kaupa sér fast­eign. „Þegar þú ert að leigja og greiðir kannski helm­ing launa þinna í leigu í hverjum mán­uði er ekk­ert grín að safna fyrir fyrstu útborgun sem verður hærri með hverju árinu. Þetta væri minna vanda­mál ef hér væri heil­brigður leigu­mark­aður en stjórn­völd hafa lít­inn áhuga á að hjálpa leigj­endum út úr þessum víta­hring.“

Minni líkur að hægt verði að safna fyrir útborgun

Lenya Rún sagði jafn­framt að með hærra fast­eigna­mati hækk­uðu einnig fast­eigna­gjöldin og fyrir „þau okkar sem eru á leigu­mark­aði þýðir það bara eitt: hærri leigu, enda munu leigusalar auð­vitað hækka leig­una í sam­ræmi við hærri gjöld“.

„Hærri leiga þýðir hærri útgjöld sem þýðir enn þá minni líkur á að við náum að safna fyrir útborgun. Þeir jafn­aldrar mínir sem náðu að kaupa sér sína fyrstu íbúð í far­aldr­inum eru margir ekk­ert í betri stöðu. Þau skuld­settu sig upp í topp með hag­stæðum lánum en svo hækk­uðu stýri­vextir og afborg­anir þeirra sömu­leiðis. Nú sitja þau uppi með gríð­ar­lega há lán og afborg­anir sem þau eiga erfitt með að standa undir, sem er gríð­ar­lega íþyngj­andi fyrir fólk í bágri fjár­hags­stöðu, ekki bara ungt fólk,“ sagði hún.

Vonast til að Reykjavíkurborg lækki fasteignagjöld

Lenya Rún fagnar því að mörg sveit­ar­fé­lög hafi þegar til­kynnt að þau muni lækka fast­eigna­gjöld og færa sig þannig nær Reykja­vík sem hafi verið með lægstu álagn­ing­una árum saman en jafn­framt von­ast hún til að Reykja­vík­ur­borg grípi til svip­aðra ráð­staf­ana og hin sveit­ar­fé­lögin.

„Ég vona líka að sú staða sem er komin upp verði stjórn­völdum vakn­ing og þau fari loks­ins að beita sér af alvöru fyrir betri og heil­brigð­ari hús­næð­is­mark­aði,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár