Methækkun á fasteignamati eftir bankahrun – Hækkar um 19,9 prósent milli ára

Heild­ar­virði fast­eigna á Íslandi hækkar um 2.100 þús­und millj­ónir króna milli ára. Fast­eigna­mat íbúða verður 23,6 pró­sent hærra á næsta ári en í ár. Fyrir flesta þýðir þessi hækkun aðal­lega eitt: hærri fast­eigna­skatta.

Heild­ar­mat á virði fast­eigna á Íslandi verður 19,9 pró­sent meira á næsta ári en það er á þessu ári. Það þýðir að heild­ar­virði allra fast­eigna hér­lendis verður 12.627 millj­arðar króna sam­kvæmt fast­eigna­mati Þjóð­skrár fyrir árið 2023. Hækkunin nemur um 2.100 þús­und millj­ónum króna á milli ára.

Um lang­mestu hækkun er að ræða á fast­eigna­mati milli ára eftir banka­hrun. Fyrra metið var sett árið 2017 þegar fast­eigna­mat allra fast­eigna á Íslandi hækk­aði um 13,8 pró­sent milli ára. Í fyrra hækk­aði það um 7,3 pró­sent og því er hækk­unin nú marg­föld sú hækkun.

Íbúðir eru stærsti hluti fast­eigna á land­inu. Heild­ar­virði þeirra hækka um 23,6 pró­sent milli ára og er sam­an­lagt fast­eigna­mat þeirra nú 9.126 millj­arðar króna. Þar af hækk­aði sér­býli um 25,4 pró­sent og fjöl­býli um 21,6 pró­sent. Hækkun á fast­eigna­mati íbúða er nán­ast sú sama á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ann­ars vegar og lands­byggð­inni hins vegar, eða 23,6 og 23,7 pró­sent.

Til að setja þessar tölur í sam­hengi þá þýðir þetta til að mynda að að íbúð í Reykja­vík sem var metin á 70 millj­ónir króna í ár er metin á 86,5 millj­ónir króna á næsta ári.

Fast­eigna­mat atvinnu­hús­næðis hækk­aði um 10,2 pró­sent á land­inu öllu og fast­eigna­mat sum­ar­húsa hækk­aði um 20,3 pró­sent.

Íbúð­ar­matið hækkar mest í Fljóts­dals­hrepp, eða um 38,9 pró­sent en litlu minna í helstu nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á suð­ur­landi Árborg (36,6 pró­sent), Hvera­gerði (36,6 pró­sent) og í Ölfusi (36 pró­sent). Minnst hækk­aði mati í Dal­vík­ur­byggð, eða um 6,2 pró­sent.

[adspot]Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er mesta hækk­unin í Garðabæ, þar sem fast­eigna­matið fyrir 2023 er 24,1 pró­sent hærra en fast­eigna­matið þar í ár. Skammt á eftir kemur Mos­fells­bær með 23,6 pró­sent, Kópa­vogur og Hafn­ar­fjörður með 22 pró­sent og Kjós­ar­hreppur með 21 pró­sent. Hækkunin í Reykja­vík­ur­borg var 18,7 pró­sent en minnst var hún á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hjá Sel­tjarn­ar­nesbæ þar sem fast­eigna­matið hækkar um 15,3 pró­sent.

Skattahækkun í kortunum

Fast­eigna­mat ein­stakrar fast­eignar fylgir þróun kaup­samn­inga á öllu land­inu með sér­stakri áherslu á til­heyr­andi nágrenni eign­ar­innar. Ef að skrán­ing­ar­upp­lýs­ingar fast­eignar hafa ekki breyst milli ára er orsök hækk­unar að mestu leyti vegna breyt­ingar kaup­verðs á sam­bæri­legum eignum á svæð­inu. Fast­eigna­matið end­ur­speglar því þær miklu hækk­anir sem orðið hafa á íbúð­ar­verði á und­an­förnu ári, en gríð­ar­leg eft­ir­spurn hefur verið eftir hús­næði á síð­ustu árum án þess að fram­boð hafi haldið í. Fyrir vikið er íbúð­ar­mark­að­ur­inn meira og minna upp­seldur.

Fyrir flesta íbúð­ar­eig­endur þýðir hærra fast­eigna­mat aðal­lega tvennt. Í fyrsta lagi hærra bók­fært virði á íbúð þeirra, með til­heyr­andi við­bót­ar­veð­rými. Það þýðir á manna­máli að fleiri geta end­ur­fjár­magnað lán sín og tekið út fé til dæmis til ýmis­konar neyslu án þess að fara yfir það hámarks­hlut­fall á lánum sem lán­veit­endur setja.

Í öðru lagi þýðir þetta hærri fast­eigna­skatta. Árið 2021 voru tekjur Reykja­vík­ur­borgar vegna fast­eigna­skatta til að mynda 22,4 millj­arðar króna, en fast­eigna­skattur á íbúð­ar­hús­næði er 0,18 pró­sent af fast­eigna­mati hvers tíma. Miðað við að fast­eigna­matið í höf­uð­borg­inni hækk­aði um 6,9 pró­sent 2022 og á að hækka um 18,7 pró­sent á næsta ári má búast við að tekjur borg­ar­innar af þessum tekju­stofni verði að minnsta kosti um fimm millj­örðum krónum hærri á næsta ári en þær voru í fyrra, verði skatt­pró­sentan ekki lækkuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár