Sjálfakandi bílar keyra nú um í almennri umferð í Kaliforníu

Sjálfakandi rafdrifnir bílar, sem Google hefur verið að þróa undan­farin ár, aka nú um götur í Kaliforníu, í almennri umferð. Frá þessu greindi Quartz í gær og staðfesti Google í frétta­tilkynningu, að tveir bílar fyrir­tækisins væru nú akandi um í umferð í Kaliforníu.

Í mars síðastliðnum tilkynnti Google um að líklega yrði prufu­akstur hafinn á seinni­hluta þessa árs, og er þessi akstur því á undan áætlunum.

Bílarnir eiga að vera almennir heimilis­bílar til að byrja með, og einnig bílar sem ætlaðir eru fyrir fyrirtæki. Einblínt er á þróun með borgar­samfélög í huga, en hugbúnaðurinn sem bílarnir byggja á er alfarið þróaður af Google.

Miklar vonir eru bundnar við þessar lausnir Google, sem vafalítið geta ýtt undir miklar breytingar á bíla­iðnaði.

https://www.youtube.com/watch?v=uCezICQNgJU

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár