„Þetta er nú meiri ræfildómurinn hjá Alþingi Íslendinga“

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra vandar meiri­hlut­anum á þingi og Mið­flokknum ekki kveðj­urnar.

Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra.
Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: EPA

„Þetta er nú meiri ræf­il­dóm­ur­inn hjá Alþingi Íslend­inga. Níu ár og fjórar kosn­ingar eru liðnar frá því þjóðin sam­þykkti með 2/3 hluta atkvæða vilja sinn til að lög­fest yrði ný stjórn­ar­skrá – sem í grund­vall­ar­at­riðum var samin af þjóð­inni sjálfri.“

Þetta skrifar Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær­kvöldi.

Vísar hún í það að í gær felldi meiri­hlut­inn á Alþingi ásamt Mið­flokknum, en Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar sat hjá, að þing yrði kvatt saman að nýju eigi síðar en 12. ágúst næst­kom­andi til sér­staks fundar um stjórn­ar­skrár­mál. Um svo­kall­aðan þing­stubb hefði verið að ræða.

Enn eitt kjörtímabilið farið í súginn

Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata var fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar en hann tjáði sig um málið á Faceobok í gær þar sem hann sagði að stjórn­ar­þing­menn hefðu í fram­haldi af atkvæða­greiðsl­unni hafnað tæki­færi til að gera gott úr stöð­unni sem nýja stjórn­ar­skráin hefði verið komin í undir lok kjör­tíma­bils­ins.

„Þetta hefði gefið næsta þingi færi á að koma þjóð­ar­vilj­anum í fram­kvæmd sem fyrst að loknum kosn­ingum. En nei, meiri­hlut­inn mátti ekki heyra á það minnst og kol­felldi þessa til­lögu mína. Enn eitt kjör­tíma­bilið er farið í súg­inn!“ skrifar Andrés Ingi.

Stjórnarflokkarnir taka þennan Svarta Pétur með sér inn í kosningar

Jóhanna spyr í færslu sinni á Facebook hvar í hinum vest­ræna heimi það hefði verið liðið að þjóð­þing myndi hunsa þjóð­ar­vilja þar sem þjóðin er stjórna­skrár­gjaf­inn.

„Ekki einu sinni var vilji hjá Katrínu for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórn hennar til að sam­þykkja nú fyrir kosn­ingar að hægt væri að breyta stjórn­ar­skránni á næsta kjör­tíma­bili, án þess að boða þyrfti til kosn­inga. Kjós­endur geta því gengið útfrá því að óbreytt rík­is­stjórn mun aldrei sam­þykkja breyt­ingar á stjórn­ar­skránni á næsta kjör­tíma­bili. Í anda þjóð­ar­vilj­ans. Þennan Svarta Pétur taka íhalds­flokk­arnir í núver­andi rík­is­stjórn með sér inn í næstu kosn­ingar,“ skrifar fyrr­ver­andi ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár