Leiðir til að njóta skammdegisins

Skamm­degið leggst mis­vel í fólk en það eru leiðir til að njóta þess. Hér deilir fólk því hvernig það skapar gleði­stundir í skamm­deg­inu.

1. Að lesa góða bók

G. Pétur Matthíasson

„Það er ynd­is­legt að lesa – allan árs­ins hring. Sér­stak­lega er þó nota­legt að liggja út af með góða bók þegar skamm­degið er sem mest. Hverfa inn í aðra ver­öld og njóta alls þess sem lest­ur­inn hefur upp á að bjóða. Ekki til að hverfa úr skamm­deg­inu því það umlykur lest­ur­inn og umvefur les­and­ann um leið og hann upp­lifir allt það sem í boði er sem er enda­laust. Bókin hefur fylgt mér frá því ég lærði að lesa og er alltaf innan seil­ingar. Þegar ég var nýbú­inn að læra að lesa las ég upp­hátt fyrir litla bróður minn. Undir jól þegar spennan var sem mest og við áttum að vera farnir að sofa, lágum við undir sæng með vasa­ljós og ég las. Þetta olli þeim vand­ræðum, sem ekki sáust fyrir, að bróðir minn varð seint læs – honum dugði alveg …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár