„Það eina sem raunverulega ógnar lífskjarasamningnum eru stjórnvöld sjálf“

Formaður VR segir að það standi ekki steinn yfir steini þegar kemur að efndum lof­orða stjórn­valda.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að miðað við stöð­una séu lífs­kjara­samn­ing­arn­ir falln­ir. „Við mun­um ekki verja samn­ing­inn miðað við óbreytta stöðu.“ Þetta kom fram á fundi með þjóð­hags­ráði í gær en mbl.is greinir frá. Þann 1. sept­em­ber virkj­ast end­ur­skoðun­ar­á­kvæði lífs­kjara­samn­ings­ins.

Í frétt­inni kemur fram að til­efnið sé að rík­is­stjórn­in hafi hvorki staðið við fyr­ir­heit um af­nám 40 ára verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána né lof­orð um hlut­deild­ar­lán.

„Staða þess­ara tveggja mála ger­ir það að verk­um að samn­ing­arn­ir eru falln­ir. Ábyrgðin er rík­is­stjórn­ar­inn­ar og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Ég er bú­inn að hafa sam­band við fé­laga okk­ar í Efl­ingu til að funda um stöð­una og mögu­leg­ar aðgerðir í haust.“

Ragnar Þór segir að ræða þurfi fram­haldið og næstu skref. „Þegar traustið er ekki til staðar er ekki von á góðu. Því miður. Ég skil ekki rík­is­stjórn­ina að fara með verka­lýðs­hreyf­ing­una í fang­inu inn í næstu þing­kosn­ing­ar. Það er dap­ur­legt að horfa upp á að lífs­kjara­samn­ing­arn­ir skuli falla á van­efnd­um rík­is­stjórn­ar­inn­ar sem er að leita eft­ir trausti til að vinna sig í gegn­um kór­ónu­krepp­una. Það er mjög dap­ur­leg nið­ur­staða.“

Hann bendir á að meðal atriða sem tek­in verða til end­ur­skoð­unar séu þróun kaup­mátt­ar og efnd­ir stjórn­valda vegna samn­ings­ins. Nóg sé að annað þess­ara atriða hafi ekki gengið eft­ir til að fella samn­ing­inn.

Ákveðin elíta innan stjórnkerfisins lýtur allt öðrum lögmálum

Ragnar Þór tjáði sig um kjara­bar­áttu hjúkr­un­ar­fræð­inga á Facebook-síðu sinni í vik­unni.

„Í ljósi yfir­lýs­inga stjórn­valda vegna kjara­bar­áttu hjúkr­un­ar­fræð­inga um að öll vinna sé sam­kvæmt því leið­ar­ljósi sem var markað með Lífs­kjara­samn­ingnum á sínum tíma vil ég koma eft­ir­far­andi á fram­færi,“ skrifar Ragnar þór en hann telur að stjórn­völd hafi séð til þess að ákveðin elíta innan stjórn­kerf­is­ins, þar með talið þau sjálf, lúti allt öðrum lög­málum þegar kemur að mark­miðum lífs­kjara­samn­ings­ins.

Hann segir að lífs­kjara­samn­ing­ur­inn hafi ekki verið samn­ingur sem átti að ganga yfir aðrar starfs­stéttir sem ekki voru hluti af honum. „Það hljóta allir, sem minnsta vit hafa á kjara­samn­inga­gerð, að gera sér grein fyrir því að við sem komum að þessum samn­ingum höfðum ekk­ert og höfum ekk­ert umboð til að semja fyrir þær starfs­stéttir sem ekki voru hluti af Lífs­kjara­samn­ingnum.

Stjórn VR styður í einu og öllu kjara­bar­áttu hjúkr­un­ar­fræð­inga og allra stétta og gerir ekki kröfu um að aðrir fái það sama eða minna en við fengum heldur fögnum við því ef aðrir ná betri árangri sem við getum svo haft að leið­ar­ljósi í næstu samn­ingum.“

„Það stendur ekki steinn yfir steini“

Ragnar Þór segir enn fremur að betri árangur ann­arra muni ekki hafa nokkur áhrif á end­ur­skoðun þeirra í haust.

Það sé til hábor­innar skammar að „hér séu opin­berar og sam­fé­lags­lega mik­il­vægar stéttir án kjara­samn­inga árum saman á meðan efsta lag stjórn­kerf­is­ins hefur skammtað sér krónu­tölu­hækk­anir sem jafn­gilda lág­marks­launum, jafn­vel marg­földum, fyrir 100 pró­sent vinnu­fram­lag.“

Þá segir hann að það eina sem raun­veru­lega ógni lífs­kjara­samn­ingnum séu stjórn­völd sjálf. „Það stendur ekki steinn yfir steini þegar kemur að efndum lof­orða og hefur mest allur tími og vinna verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar farið í það að end­ur­semja og krefja sömu stjórn­völd um sömu hluti og samið var um og skrifað var undir.

Má þar nefna verð­trygg­ing­ar­málið og hús­næð­is­málin sem fjár­mála­ráðu­neytið hefur haldið í gísl­ingu mán­uðum saman og útþynnt í nán­ast ekki neitt.“

Setja sig í stellingar fyrir komandi vetur

Ragnar Þór telur fróð­legt að sjá hvernig stjórn­völdum muni ganga að fara með „verka­lýðs­hreyf­ing­una í fang­inu inn í kosn­inga­árið því eitt er víst að eins og staðan er í dag eru for­sendur lífs­kjara­samn­ings­ins brostnar. Og fátt sem getur komið í veg fyrir að samn­ingum verði sagt upp í haust.“

Enn fremur segir hann að þessi staða sé ekki hjúkr­un­ar­fræð­ingum að kenna. Þessi staða sé í boði stjórn­valda. „Stjórn­valda sem ekki eru orð­anna virði og lítið sem ekk­ert að marka lof­orð þeirra, öðrum sem nú eru í samn­inga­við­ræðum til varn­aðar.

Ég vil þó taka fram að ég hef átt mjög góð sam­skipti við félags- og barna­mála­ráð­herra ásamt hús­næðis og mann­virkja­stofnun í þeirri frá­bæru vinnu sem unnin hefur verið með til­lögum í hús­næð­is­málum og enda­lausri við­leitni í að miðla málum gagn­vart for­sætis og fjár­mála­ráð­herrum.

Við skulum setja okkur í stell­ingar fyrir kom­andi vetur. Ef hann verður harður verður það í boði stjórn­valda og við skulum ekki leyfa þeim að kom­ast upp með að klína þeirri ábyrgð á aðra,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár