Utanríkisráðuneytið hefur ekki framkvæmt sjálfstæða rannsókn vegna Moshensky

Utan­rík­is­ráð­herra segir ráðu­neytið hafa ítrekað óskað eftir gögnum og upp­lýs­ingum sem ESB kynni að búa yfir og rök­styddu hvers vegna kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi ætti mögu­lega að vera á refsilista. Engin gögn hafi hins vegar borist.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ekki fram­kvæmt sjálf­stæða rann­sókn vegna umfjöll­unar fjöl­miðla um náin tengsl Aleksander Mos­hen­­sky, kjör­ræð­is­manns Íslands í Hvíta-Rúss­landi, við Alex­ander Lukashenko, for­seta Hvíta-Rúss­lands. Ráðu­neytið hefur þó ítrekað en án árang­urs óskað sér­stak­lega eftir gögnum og upp­lýs­ingum sem Evr­ópu­sam­bandið kynni að búa yfir og rök­styddu hvers vegna kjör­ræð­is­mað­ur­inn kynni að falla undir skil­yrði þess fyrir beit­ingu við­skipta­þving­ana.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um tengsl kjör­ræð­is­manns Íslands í Hvíta-Rúss­landi og for­seta Hvíta-Rúss­lands.

Í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar sem birt­ist í síð­asta mán­uði undir yfir­skrift­inni „Ólíg­ar­k­inn okk­ar“ eru íslensk stjórn­­völd sögð hafa beitt sér gegn því að Evr­­ópu­­sam­­bandið beitti Aleksander Mos­hen­­sky, kjör­ræð­is­­manni Íslands í Hvíta-Rús­s­land­i, við­­skipta­þving­un­­um.

Í skrif­legu svari utan­rík­is­ráð­herra í umfjöllun Stun­far­innar segir að „það hefur verið mat ráðu­neyt­is­ins að það sé orðum aukið að kjör­ræð­is­maður Íslands sé mjög náinn banda­maður Lúk­asjenkós“. Í fyr­ir­spurn sinni til utan­rík­is­ráð­herra spyr Jóhann Páll á hverju það mat ráð­herra bygg­ist?

Ítrekaðar tilraunir ráðuneytisins til að afla gagna frá ESB

Í svari ráð­herra segir að að þrátt fyrir reglu­legar við­bætur á lista vegna þving­un­ar­að­gerða á ára­bil­inu 2012 til 2022 er Mos­hen­sky ekki í hópi þeirra 183 ein­stak­linga frá Hvíta-Rúss­landi sem sæta við­skipta­þving­unum sam­kvæmt ákvörð­unum og reglu­verki Evr­ópu­sam­bands­ins, þrátt fyrir að upp­lýs­ingar hafi borist um að nafn hans hafi komið til skoð­unar á þeim vett­vangi.

Í svar­inu er einnig bent á að önnur ríki sem standa utan sam­bands­ins hafa ekki heldur séð ástæðu til að setja kjör­ræð­is­mann­inn á lista vegna þving­un­ar­að­gerða. „Þá hefur einnig komið fram að ráðu­neytið hafi ítrekað en án árang­urs óskað sér­stak­lega eftir gögnum og upp­lýs­ingum sem Evr­ópu­sam­bandið kynni að búa yfir og rök­styddu hvers vegna kjör­ræð­is­mað­ur­inn kynni að falla undir skil­yrði þess fyrir beit­ingu við­skipta­þving­ana,“ segir í svar­inu, auk þess sem ráð­herra bendir á að Mos­hen­sky hafi sjálfur neitað ásök­unum um náin tengsl við for­set­ann og svarað áburði um slíkt.

Jóhann Páll spurði ráð­herra uk þess að því hvenær ráðu­neytið kann­aði tengsl Mos­hen­sky og Lukashenko, hvernig sú athugun fór fram og hvaða gagna var aflað. Í svari ráð­herra kom fram að utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ekki fram­kvæmt sjálf­stæða rann­sókn vegna máls­ins.

„Eðli máls­ins sam­kvæmt fylgist ráðu­neytið með slíkri umfjöllun og metur hverju sinni hvort ástæða sé til að gera breyt­ingar á trún­að­ar­sam­bandi við þá kjör­ræð­is­menn sem starfa í umboði þess,“ segir í svari ráð­herra, sem bendir á að ráðu­neytið hafi gert ítrek­aðar til­raunir til þess að afla upp­lýs­inga um gögn sem hugs­an­lega lægju til grund­vallar skoð­unar á kjör­ræð­is­mann­inum. „Var þetta gert um leið og ráðu­neytið varð þess áskynja að slík athugun væri í gangi á vegum Evr­ópu­sam­bands­ins. Í grein­ar­gerð kjör­ræð­is­manns­ins sjálfs, sem hann sendi til Evr­ópu­sam­bands­ins undir árs­lok 2020, leit­ast hann við að sýna fram á að ásak­anir um náin tengsl við Lúk­asjenkó eigi ekki við rök að styðj­ast,“ segir í svar­inu.

Ísland kæri sig ekki um kjörræðismann sem á heima á refsilista

Þórdís Kolbrún kom fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis á föstu­dag þar sem sam­skipti íslenskra stjórn­valda við Evr­ópu­sam­bandið í aðdrag­anda birt­ingu lista yfir ein­stak­linga sem beittir voru efna­hags­þving­unum vegna fram­ferðis stjórn­valda í Hvíta-Rúss­landi var meðal ann­ars til umræðu. Ráðherra full­yrti að íslensk stjórn­völd hefðu ekki beitt sér í þágu Mos­hen­sky.

Hún sagði Ísland ekki kæra sig um að vera með kjör­ræð­is­mann sem ætti heima á refsilista. „Það segir sig sjálft, það sér það hver maður. Það var eðli­legt að vilja vita hvort að hann væri það þótt svo að í þeim sam­skiptum hafi líka verið lýst áhyggjum af því að ef það væri svo þá hefði það áhrif á við­skipta­lega hags­muni Íslands. Það lá alveg fyrir vegna þess að bæði Ísland eins og önnur ríki líka, eða fyr­ir­tæki innan þeirra, hafa átt í við­skiptum við Mos­hen­sky,“ sagði Þórdís Kolbrún á fund­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár