Telur Reykjavíkurborg reyna að gera Sundabraut óarðbæra

Sigurður Hann­es­son fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins segir tíma­bært og mik­il­vægt að ráð­ast í sam­göngu­bætur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hins vegar eigi enn eftir að skýr­ast hvernig 120 millj­arða sam­göngusátt­máli ríkis og sveit­ar­fé­laga verði fjár­magn­aður.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins.

„Vandinn við sam­göngusátt­mál­ann er að það er óljóst hvernig hann verður fjár­magn­aður,“ segir Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, í sam­tali við Kjarnann. Hann segir þó löngu tíma­bært að ráð­ist sé í fjár­fest­ingu í sam­göngu­málum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og það sé gott að það sé verið ganga til verks núna, vegna áhrifa kór­ónu­veirunnar á atvinnu­lífið.

Mik­il­vægt sé að hið opin­bera stígi sterkt fram í verk­legum fram­kvæmdum á þessum tímum.

Fjár­mögnun sam­göngusátt­mál­ans er þó enn ekki að fullu útfærð, en alls stendur til að 120 millj­örðum verði varið í stofn­vega­fram­kvæmdir, Borg­ar­línu og upp­bygg­ingu inn­viða fyrir aðra ferða­máta á næstu 15 árum.

„Sveit­ar­fé­lögin hafa skuld­bundið sig til að leggja fram 15 millj­arða og ríkið 45, en svo er helm­ing­ur­inn, 60 millj­arðar, sem ekki liggur fyrir hvaðan eiga að koma. Ríkið hefur skuld­bundið sig til þess að leggja það fram með einum eða öðrum hætti, sama hvort það verður með beinum hætti eða í gegnum ein­hverja gjald­heimtu,“ sagði Sigurður við blaða­mann Kjarnans á dög­unum.

Ítarlegt við­tal við Sigurð um ýmis önnur mál, þar sem hann sagði meðal ann­ars að stjórn­völd þyrftu að hætta að velja ferða­þjón­ustu sem sig­ur­veg­ara og gera umbætur í því skyni að auka sam­keppn­is­hæfni lands­ins, birt­ist á Kjarn­anum í síð­ustu viku.

Sigurður segir að Samtök iðn­að­ar­ins hafi kallað eftir arð­sem­is­mati á fram­kvæmd­unum sem eru undir í sam­göngusátt­mál­anum, sem nýta mætti varð­andi for­gangs­röðun á fram­kvæmdum. „Vonandi hefur það verið unnið þó ég hafi ekki séð það,“ segir Sigurður.

Borgin reyni að gera dýrasta kostinn að einu leiðinni varðandi Sundabraut

Spurður sér­stak­lega út í Sunda­braut, segir Sigurður hana stóra fram­kvæmd sem geti breytt mjög miklu, hafi verið rætt mjög lengi og verið lengi á teikni­borð­inu. Opnað hefur verið á aðkomu einka­að­ila að verk­efn­inu og það telur Sigurður að gæti orðið spenn­andi og hag­kvæm lausn, rétt eins og Hval­fjarð­ar­göngin voru vel heppnuð fram­kvæmd og verk­efni.

„En það sem er auð­vitað óút­kljáð er lega braut­ar­innar í Reykja­vík og þar fæ ég ekki betur séð en að meiri­hluti borg­ar­stjórnar sé vilj­andi að leggja stein í götu þessa verk­efnis. Það væri mjög heið­ar­legt ef þau myndu bara segja það beint út, sem þau hafa ekki treyst sér til að gera en þeirra aðgerðir miða að því að draga úr fýsi­leika þessa verk­efnis, að þrengja að hag­kvæmum kostum þannig að dýr­asti kost­ur­inn verði eina leiðin og þá er ekki víst að þetta verk­efni verði fjár­hags­lega arð­bært,“ segir Sigurður.

Hann bætir við að á meðan þessi mál séu óút­kljáð verði ekk­ert af fram­kvæmd­inni, en eins og Kjarninn fjall­aði um nýlega er verk­efnið um Sunda­braut þar statt þesssa dag­ana að starfs­hópur er að störfum við að rýna fýsi­leika þeirra tveggja kosta sem eftir standa um teng­ingu innan þétt­býlis í Reykja­vík, lág­brúar yfir Klepps­vík eða jarð­ganga frá Laug­ar­nesi yfir í Gufunes. Frétta­skýr­ingu um málið má lesa hér.

Spurður hvort hann telji að íslensk verk­taka­fyr­ir­tæki hafi bol­magn í að ráð­ast í fram­kvæmd á borð við Sunda­braut segir Sigurður að hann telji það, þrátt fyrir að mögu­lega myndu fyr­ir­tæki leita sam­starfs við erlenda aðila um fram­kvæmd­ina.

„Ég held að íslenskir aðilar verði þarna í aðal­hlut­verki þó að aðrir myndu koma að. Við höfum skynjað áhuga öfl­ugra fyr­ir­tækja á þessu og fleiri verk­efnum af sama toga, þessum sam­vinnu­verk­efnum, svo áhug­inn er sann­ar­lega til staðar,“ segir Sigurður.

Rætt var við Sigurð um ýmis önnur mál í Kjarn­anum í síð­ustu viku og má lesa það við­tal hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár