Stjórnvöld verða að hætta að velja sigurvegara

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins segir að þriðji ára­tug­ur­inn ætti að geta orðið ára­tugur nýsköp­unar á Íslandi, ef stjórn­völd halda rétt á spöð­unum. Hann segir að ein­blínt hafi verið á ferða­þjón­ustu eftir hrun og önnur tæki­færi hafi farið for­görðum.

Það voru óveð­urs­ský yfir Íslandi áður en kór­ónu­veiran breiddi úr sér yfir alla heims­byggð­ina. Það voru blikur á lofti, hag­kerfið hafði kólnað og grund­vall­ar­spurn­ingu var ósvarað um hvað yrði drif­kraftur vaxtar á næstu árum og ára­tugum,“ segir Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins í sam­tali við Kjarnann. Grund­vall­ar­spurn­ing­unni segir hann að stjórn­völd eigi ennþá eftir að svara.

„Það eru mjög stórar ákvarð­anir og stra­tegískar sem bíða þess að vera teknar, um það á hverju við ætlum að byggja verð­mæta­sköp­un­ina,“ segir Sigurður, en í sam­tali við blaða­mann Kjarnans á dög­unum lýsti hann þeirri skoðun sinni að ferða­þjón­usta hafi á árunum eftir hrun fengið of mikla athygli stjórn­valda á sama tíma og önnur vaxt­ar­tæki­færi hafi farið for­görðum. Það sama megi ekki ger­ast nú – stjórn­völd þurfi að hætta að velja sig­ur­veg­ara.

Sigurður segir að það sé alveg ljóst að þrjár meg­in­stoð­irnar í hag­kerf­inu; sjáv­ar­út­vegur, orku­sæk­inn iðn­aður og ferða­þjón­usta, hafi verið komnar að þol­mörkum áður en COVID-kreppan kom upp og þar sé ekki svig­rúm til mik­ils vaxtar. Við veiðum ekki meiri fisk en sér­fræð­ingar Hafró segi að sjálf­bært sé hverju sinni og sam­keppn­is­hæfni orku­freks iðn­aðar hér­lendis eigi undir högg að sækja af ýmsum ástæðum, svo ólík­legt sé að þar verði mik­ill vöxtur á næst­unni.

Ferða­þjón­ustan, segir Sigurður, mun taka við sér, hvort sem það taki mán­uði eða ár. Hann telur þó ólík­legt sé að hún muni vaxa mikið umfram það sem hún var orðin áður en veiran og við­brögðin við henni settu allt á annan end­ann.

„Vöxt­ur­inn verður að koma ann­ars­staðar frá. Þess vegna þarf að leggja grunn­inn og taka stórar ákvarð­anir og ég held því fram, og við hjá Samtökum iðn­að­ar­ins, að á næstu einum til tveimur árum verði teknar ákvarð­anir sem muni ráða því hvernig fram­tíðin til næstu tíu, tutt­ugu og jafn­vel þrjá­tíu ára verði í þessu sam­hengi,“ segir Sigurður og bætir við að Samtök iðn­að­ar­ins hafi árum saman kallað eftir því að stjórn­völd móti hér atvinnu­stefnu.

„Það hrökkva ýmsir í kút þegar þetta orð er nefnt, því það er ekki vel skil­greint hug­tak og hefur breyst í tím­ans rás. Ef við förum langt aftur í tím­ann, segjum 100 ár, þá byggði atvinnu­stefna – ekki bara hér á landi heldur víðar – á miklum rík­is­af­skiptum og eign­ar­haldi rík­is­ins á atvinnu­rekstri. Síðan kom tíma­bil þar sem stjórn­völd völdu sig­ur­veg­ara og þar á eftir kom tíma­bil einka­væð­ingar og kannski afskipta­leysis,“ segir Sigurður. Atvinnu­stefna stjórn­valda í dag ætti hins vegar að snú­ast um að auka sam­keppn­is­hæfni með umbótum.

Sigurður segir þar horft til fjög­urra meg­in­stoða sam­keppn­is­hæfni; mennt­unar, inn­viða, nýsköp­unar og starfs­um­hverfis. Stjórn­völd þurfi að tryggja að fyr­ir­tæki hafi aðgang að fólki með rétta menntun og færni, að inn­viðir hvers­konar séu traustir og áreið­an­legir og byggi undir verð­mæta­sköpun, að umgjörð nýsköp­unar sé með því besta sem þekk­ist og réttir hvatar séu þar inn­byggðir og að starfs­um­hverfi fyr­ir­tækja þurfi að vera aðlað­andi, hvað varðar reglu­verk, skatta, hag­stjórn og fleira í þeim dúr.

„Með umbótum á þessum sviðum batnar sam­keppn­is­hæfni svo verð­mæta­sköp­unin eykst sem styður við meiri lífs­gæði. Það er auð­vitað það sem við sækj­umst eftir sem sam­fé­lag, að auka við þau tak­mörk­uðu gæði sem við höfum, að það verði meiri gæði til skipt­anna,“ segir Sigurður og bætir við að heil­miklar umbætur hafi orðið á und­an­förnum árum, en tæki­færi hafi þó farið for­görðum. Stjórn­völd séu ekki að grípa þau.

„Núna þegar rykið er að setj­ast held ég að það þurfi að hugsa þetta allt á svo­lítið nýjan hátt. Það þarf að fjár­festa með mark­viss­ari hætti í tæki­færum fram­tíðar og sækja þau.“

Raunar segir Sigurður að aðgerðir stjórn­valda í efna­hags­málum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sýni „svart á hvítu“ að stjórn­völd séu með atvinnu­stefnu af öðrum toga en þá sem hann teldi æski­lega.

„Sú atvinnu­stefna gengur út á það að velja sig­ur­veg­ara og þar er raunar einn sig­ur­veg­ari sem er á blaði og það er ferða­þjón­ustan. Aðgerðir stjórn­valda miða fyrst og fremst við að bjarga ferða­þjón­ust­unni. Það er skilj­an­legt, með hlið­sjón af því hvaða vægi hún hefur haft, þar eru fjöl­mörg störf undir og greinin mun sann­ar­lega ná fyrri styrk, það er bara spurn­ing um tíma, en á sama tíma eru tæki­færi sem fara for­görðum vegna þess að athygli stjórn­valda bein­ist ekki að þeim,“ segir Sigurður.

Þarf að horfa í auknum mæli til framtíðar

Hann telur við­brögð stjórn­valda um margt skyn­sam­leg, en ekki að öllu leyti, og segir Samtök iðn­að­ar­ins velta fyrir sér for­gangröð­un­inni sem birt­ist í því að greiða laun starfs­manna á upp­sagn­ar­fresti, sem hingað til hefur kostað rík­is­sjóð rúma 8 millj­arða króna. „Þar er horft til for­tíðar. Á sama tíma er fjár­fest­ing í nýsköpun aukin um tæpa 5 millj­arða, eða lægri tölu, þar er verið að tala um fjár­fest­ingu til fram­tíðar,“ segir Sigurður.

Hann segir að staldra megi við eitt og annað í aðgerðum stjórn­valda, en líta verði til þess „að þarna var brugð­ist mjög hratt við, það gafst mjög lít­ill tími til að hugsa þessar aðgerðir, ráð­ast í þær og koma þeim í fram­kvæmd, þannig að heilt yfir held ég að það megi alveg hrósa stjórn­völdum fyrir þessar aðgerðir. En núna þegar rykið er að setj­ast held ég að það þurfi að hugsa þetta allt á svo­lítið nýjan hátt. Það þarf að fjár­festa með mark­viss­ari hætti í tæki­færum fram­tíðar og sækja þau.“

Sigurður telur að tæki­færi hafi farið for­görðum á fyrri árum, þegar ferða­þjón­ustan var í gríð­ar­lega örum vexti. Dæmi um það varði gagna­vers­iðnað, þar sem Ísland hafi fyrir um það bil fimm árum síðan haft nátt­úru­legt for­skot á önnur ríki, en svo misst af lest­inni.

„Raforkan [í gagna­verum] er að miklu leyti notuð til kæl­ingar, en hér er mjög hag­stætt veð­ur­far í því sam­hengi, sem skap­aði þetta nátt­úru­lega sam­keppn­is­for­skot. Þetta for­skot höfðum við sér í lagi gagn­vart okkar nágranna­löndum Norð­ur­lönd­unum, en staðan núna fimm árum síðar er sú að Norð­ur­löndin hafa tekið algjöra for­ystu á þessum sviðum með skýrri stefnu­mörkun stjórn­valda sem hefur skilað sér í því að stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki hafa sett upp starf­semi í þeim löndum, til dæmis í Noregi, í Svíþjóð og í Danmörku,“ segir Sigurður.

Það sem vant­aði upp á hjá íslenskum stjórn­völdum í þessu dæmi var að hlúa að tryggum gagna­teng­ingum. „Stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki setja ekki upp starf­semi hér á landi, til dæmis vegna þess að gagna­teng­ingar eru ekki nægi­lega öruggar. Ef það væri þriðji stóri gagna­streng­ur­inn til Íslands, þá myndi það opna margar dyr,“ segir Sigurður, en rík­is­stjórnin sam­þykkti einmitt á fundi sínum síð­asta föstu­dag að tryggja fjár­mögnun á þriðja fjar­skipta­strengnum, IRIS, sem á að liggja til Írlands og verða kom­inn í notkun árið 2022 eða 2023.

Sigurður bendir á að tækni­fyr­ir­tækið Google hafi nýlega stað­fest að fyr­ir­tækið ætl­aði sér að ráð­ast í starf­semi í Danmörku sem myndi skila um 740 millj­ónum evra inn í danskt hag­kerfi á upp­bygg­ing­ar­tím­anum og 80 millj­ónum evra á ári eftir það. Ísland gæti að hans mati verið að sækja svona tæki­færi, ef inn­við­irnir væru sterk­ari.

„Það er fylli­lega raun­hæft ef vilji er fyrir hendi, en það krefst auð­vitað ákveð­inna umbóta, eins og ég nefndi með gagna­teng­ing­arnar, umgjörð raf­oku­mark­að­ar­ins og fleira. En, ég held að það sé fylli­lega raun­hæft. Þarna sjáum við skýra stefnu stjórn­valda og hvernig hún leiðir til verð­mæta­sköp­unar. Þetta er dæmi, en við vorum í þess­ari stöðu fyrir fimm árum, það var hik á stjórn­völdum og fyrir vikið misstum við af lest­inni. Á sama tíma er nægur tími til að velta fyrir sér og greina hvort ástæða sé til að breyta klukk­unni eða ekki. Það er nægur tími í það en ekki nægur tími til að ná í þessi stóru tæki­færi. Þetta er dæmi um for­gangs­röð­un­ina hjá stjórn­völdum,“ segir Sigurður og bætir við til þess að ná árangri í þessum efnum þurfi stjórn­völd að setja málin á dag­skrá, sýna skýran vilja og ráð­ast í umbæt­urnar.

„Að þessu sögðu vil ég hrósa stjórn­völdum fyrir umbætur til dæmis í mennta­málum,“ segir Sigurður og nefnir að skýr áhersla hafi verið á tvo helstu veik­leik­ana í mennta­kerf­inu og snúa að iðn­aði og atvinnu­líf­inu, ann­ars vegar iðn­menntun og tækni­greinum á háskóla­stigi, en of fáir útskrif­ast úr slíkum greinum til þess að mæta þörfum atvinnu­lífs­ins.

Hlut­falls­lega færri útskrif­ast út tækni­greinum á háskóla­stigi hér á landi en víða erlendis, segir Sigurður. „Á sama tíma stöndum við okkur mjög vel þegar kemur að fjölda rit­rýndra fræði­greina í sömu fögum, sem segir okkur að við erum með sterkan grunn en að það séu bara of fá sem sækja nám í þessum greinum. Þetta hefur verið áherslu­efni í mennta­málum og það er vel,“ segir hann.

Áratugur nýsköpunar gæti verið framundan

Hann hrósar stjórn­völdum líka fyrir aðgerðir sínar í nýsköp­un­ar­málum, en segir að nú þurfi að stíga enn frekar á bens­ín­gjöf­ina. „Það er fullt til­efni til að ætla að þriðji ára­tugur þess­arar aldar geti verið ára­tugur nýsköp­unar,“ segir Sigurður og nefnir að umbætur á borð við end­ur­greiðslu rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar, hvatar til að laða erlenda sér­fræð­inga til lands­ins, hvatar til fjár­fest­ingar í sprotum og efl­ing Tækni­þró­un­ar­sjóðs og fleiri sjóða séu af hinu góða.

„Það hefur verið ráð­ist í þetta og fjár­fest í þessu, fræjum hefur verið sáð og það er full ástæða til að ætla að við getum upp­skorið núna á þriðja ára­tugnum, en þá þarf líka að halda áfram á sömu braut, sækja tæki­færin með mark­vissum hætti og ekki láta þetta ein­hvern­veg­inn sitja á hak­anum, sem hefur svo­lítið verið raunin. Það var svipuð umræða fyrir rúmum ára­tug síðan, síð­ast þegar við lentum í áfalli, að reyna að byggja upp á nýjum grunni, við munum eftir McKinsey-skýrsl­unni og umfjöllun um alþjóða­geir­ann, en það hefur ekki gengið eftir, eða gengið mjög hægt,“ segir Sigurður og bætir við að þar hafi ævin­týra­legur upp­gangur í ferða­þjón­ustu spilað stórt hlut­verk.

„Það kom eitt­hvað annað sem fékk alla athygl­ina og að ein­hverju leyti bara gleymdum við okkur. Tæki­færin eru sann­ar­lega til staðar, en það er undir okkur komið að sjá til þess að við getum upp­skorið og að tíu árum liðnum getum við litið til baka, séð stór fyr­ir­tæki sem hafa orðið til með verð­mætum störfum sem skila verð­mætum inn í þjóð­ar­búið. Þetta er allt saman hægt og það þarf vilja, sem ég tel sann­ar­lega til staðar, en það þarf eft­ir­fylgni, það þarf að setja þetta á dag­skrá og það þarf mark­vissa stefnu til þess að láta þetta verða að veru­leika,“ segir Sigurður.

Stjórnvöld verði að framlengja Allir vinna

Varðandi COVID-aðgerðir stjórn­valda segir Sigurður að honum langi að nefna átakið Allir vinna, sem hafi verið ein­stak­lega vel heppnað, sem gengur út á það að end­ur­greiðsla virð­is­auka­skatts af vinnu iðn­að­ar­manna var hækkuð tíma­bundið upp í 100 pró­sent.

„Það dregur úr svartri atvinnu­starf­semi sem er mjög jákvætt og skapar hvata til umsvifa. Þetta hefur sann­ar­lega skilað góðum árangri, við finnum það á sam­tölum við okkar félags­menn að það er mjög mikið að gera – það er mjög mikið að gera til ára­móta, þegar úrræðið fellur úr gildi,“ segir Sigurður og segir þess vegna blasa við að það verði að fram­lengja úrræðið „að minnsta kosti út næsta ár ef vel á að vera.“

Hann seg­ist þó hafa skiln­ing á því að stjórn­völd hafi ákveðið að hafa úrræðið svona tíma­bundið til að byrja með, til að skapa rétta hvata til að ráð­ast í fram­kvæmdir.

„Þetta hefur gert það að verkum að störf eru varin, það verða til störf sem ella hefðu ekki orðið til og það verða til umsvif líka hjá versl­un­inni. Það hefur verið mikið að gera í bygg­inga­vöru­versl­unum svo dæmi sé tekið. Það fer af stað ákveðin keðju­verkun, sem er akkúrat það sem við þurfum á að halda við þessar aðstæður,“ segir Sigurður, sem segir líka gott að verk­efnið var látið ná til sveit­ar­fé­laga sem sjá nú hag sinn í að ráð­ast í stórar og smáar fram­kvæmdir.

„Það góða er að þetta eru verk­efni af öllum toga, lítil og stór og úti um allt land, þetta skapar mögu­leika fyrir mjög breiðan hóp til atvinnu,“ segir Sigurður.

Stöðnun möguleg í uppbyggingu íbúða

Spurður um það hvernig staðan sé í bygg­ing­ar­iðn­aði um þessar mundir segir Sigurður að hún lit­ist af óviss­unni sem er í hag­kerf­inu, sem þýði almennt að fyr­ir­tæki haldi að sér höndum. „Þess vegna er svo mik­il­vægt að hið opin­bera stígi fram með mark­vissum hætti og auki fjár­fest­ingu. Það er jákvætt,“ segir Sigurður, en bætir við að það sé að verða ákveðin til­færsla á mark­aðnum yfir í vega­gerð og opin­berar bygg­ingar frá íbúða­mark­aðnum.

Nýbygg­ing­arnar á Kirkju­sandi blöstu við út um glugg­ann á Húsi atvinnu­lífs­ins þar sem Kjarninn hitti á Sigurð. „Við erum þá ekki að fara að fá mörg svona verk­efni á teikni­borðið á næst­unni?“ spyr blaða­maður.

„Nei, nei. Þó við sjáum mikið af krönum víða, þá eru það að langstærstu leyti verk­efni sem fóru af stað fyrir löngu síðan,“ segir Sigurður og bendir síðan á að sam­dráttur í fjölda íbúða á fyrstu bygg­ing­ar­stigum hafi raunar verið haf­inn þegar kór­ónu­veiran barst til lands­ins.

„Samtök iðn­að­ar­ins eru með starfs­mann, Friðrik Ólafsson, sem keyrir um bæinn og telur íbúðir í bygg­ingu tvisvar á ári. Hann er að telja núna svo við fáum tölur í lok þessa mán­aðar um umsvifin. En við sáum í síð­ustu taln­ingu, í lok febr­úar [...] þá var mjög mik­ill sam­dráttur í fjölda íbúða í bygg­ingu upp að fok­heldu, fjöldi íbúða á fyrstu bygg­ing­ar­stigum hafði lækkað um rúm­lega 40 pró­sent á 12 mán­uðum. Það segir okkur að það voru miklu, miklu færri verk­efni sem fóru af stað á því tíma­bili heldur en áður og ég á von á því að sú þróun hafi haldið áfram núna síðan í febr­úar. Óvissan nátt­úr­lega spilar þar inn í að miklu leyti. Þetta gæti verið mikið áhyggju­efni eftir 2-5 ár. Núna eru margar íbúðir í bygg­ingu og að koma inn á mark­að­inn um þessar mundir og á næsta ári, en það er hætt við því að það verði lítið fram­boð af nýjum íbúðum 2022 til 2025,“ segir Sigurður.

Þannig að við gætum verið að horfa fram á svip­aða stöðu á íbúð­ar­mark­aðnum og á árunum eftir hrun?

„Ef ekk­ert verður að gert, þá ótt­umst við að það verði raunin. Það er mjög alvar­legt fyrir sam­fé­lagið í heild sinni, því það þýðir hækkun fast­eigna­verðs, leigu­verðs og fleira og á síð­ustu árum höfum við séð hvernig sú staða meðal ann­ars leiddi til ólgu á vinnu­mark­aði. Því að þó að laun hafi hækkað mikið í samn­ing­unum 2015-16 og krón­unum í vesk­inu fjölg­aði þá fóru þær sömu krónur í hækkun á leigu­verði og meira til,“ segir Sigurður, en hann hefur trú á því að nýlega sam­þykkt frum­varp um hlut­deild­ar­lán gæti verkað á móti þessum áhrifum, þar sem slík lán eigi að hafa jákvæð áhrif á fram­boðs­hlið­ina og mynda hvata til upp­bygg­ingar.

„Á sama tíma og þetta er stuðn­ingur við fólk til að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að­inn þá leiðir þetta til fram­boðs á nýju hús­næði, íbúðum sem voru ekki á mark­aði fyrir. Það er jákvætt og þetta er fyrsta úrræðið sem ég man eftir sem leiðir til auk­ins fram­boðs á íbúð­ar­hús­næði og þar af leið­andi hefur þetta kannski ekki þau áhrif á verð sem margir vilja vera að láta,“ segir Sigurður, en bætir við að stjórn­völd þurfi einnig að ráð­ast í umbætur á skipu­lags­ferl­inu í kringum bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis til þess að ein­falda það og draga úr kostn­aði.

„Það er sama eft­ir­lit í bygg­ing­ar­ferl­inu á mann­virki hvort sem um er að ræða flókna bygg­ingu eins og hátækni­sjúkra­hús eða Hörpu ann­ars vegar og ein­býl­is­hús hins vegar, sem eru í eðli sínu mjög ólík. Önnur ríki hafa skilið þarna á milli og hug­myndin er að gera það sama hérna,“ segir Sigurður og segir þingið verða að ein­beita sér að því að hrinda þessum nauð­syn­legu umbótum í fram­kvæmd.

Sigurður segir að iðn­að­ur­inn í land­inu hafi lagt mjög mikið til end­ur­reisn­ar­innar eftir hrun og geti gert það aftur núna, þegar við kröfsum okkur út úr kór­ónu­veiru­krepp­unni.

„Eitt af hverjum fjórum nýjum störfum varð til í iðn­aði, sem eru fjöl­mörg störf, á árunum 2011 til 2019 og þriðj­ungur vaxtar varð í iðn­aði, sem er umfram hlut­fall iðn­aðar í lands­fram­leiðsl­unni. Iðn­að­ur­inn lagði meira til end­ur­reisn­ar­innar heldur en stærð hans gaf til kynna. Þetta getur gerst með mun kröft­ugri hætti núna ef rétt er á spil­unum haldið,“ segir Sigurður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár