Spurði af hverju valdasamstarf með Sjálfstæðisflokknum væri eftirsóknarvert

Þing­maður Pírata spurði for­sæt­is­ráð­herr­ann á þing­inu í dag af hverju það væri eft­ir­sókn­ar­vert að fara í valda­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Hún sagð­ist leggja mikið upp úr því að vera í stjórn­málum til að ná árangri í mik­il­vægum sam­fé­lags­málum.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, og Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Samsett

„Enn og aftur getur ríkið ekki samið við hjúkr­un­ar­fræð­inga, aftur á að fara í gerð­ar­dóm. Fyr­ir­sjá­an­legt. Engir samn­ingar við lög­reglu­menn svo mikið sem í aug­sýn. Fyr­ir­sjá­an­legt. Þingmenn fá hækkun. Fyr­ir­sjá­an­legt. Ný stjórn­ar­skrá pikk­föst í skúffu. Fyr­ir­sjá­an­legt. Pólitísk afskipti af ráðn­ingum. Fyr­ir­sjá­an­legt.“

Þannig hófst fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Vísaði Björn Leví í leið­ara í Stund­inni þar sem farið er yfir ýmis spill­ing­ar­mál und­an­far­innar ára. „Á þeim lista er meðal ann­ars Sam­herj­a­málið, borg­ar­full­trú­inn og pen­inga­þvættið, Klaust­ur­málið og sendi­herrakap­all­inn, Lands­rétt­ar­málið, Glitn­is­skjölin og hags­muna­á­rekst­ur­inn, Lög­banns­málið, akst­urs­greiðsl­urnar og dag­pen­ing­arnir, Panama­skjölin og ráð­herrar í skatta­skjólum, Orka Energy og samn­ingar í Kína, hæfn­is­nefndin og Baldur Guð­laugs­son, Lands­bank­inn og Borgun og Leka­málið.

Þetta er ekki tæm­andi upp­taln­ing á spill­ing­ar­málum und­an­far­inna ára. Ef eitt­hvað var fyr­ir­sjá­an­legt við rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn þá eru það spill­ing­ar­mál. Alveg eins og það er fyr­ir­sjá­an­legt að samn­ings­vilji við starfs­stéttir hins opin­bera er lít­ill sem eng­inn.“

Björn Leví spurði Katrínu hvort hægt væri að búast við öðru en því sem hefði verið fyr­ir­sjá­an­legt í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum. ?„Af hverju er svona eft­ir­sókn­ar­vert að fara í valda­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum?“ spurði hann.

„Ég horfi bara á þann árangur sem næst í ríkisstjórnarsamstarfi“

Katrín svar­aði og mót­mælti því að engir kjara­samn­ingar næð­ust í tíð þess­arar rík­is­stjórnar. „Ég verð að byrja á því að leið­rétta hátt­virtan þing­mann. Það er búið að semja við um það bil 80 pró­sent rík­is­starfs­manna. Það er búið að ná fram mjög mik­il­vægum breyt­ingum sem meðal ann­ars var skrifað undir í gær­kvöldi af hálfu hjúkr­un­ar­fræð­inga sem snýst um að ger­breyta vakta­vinnu­fyr­ir­komu­lagi rík­is­ins sem varðar einmitt þær kvenna­stéttir sem þar starfa. Stærsta breyt­ingin sem hefur orðið á kjörum þess­ara hópa í ára­tugi. Var það fyr­ir­sjá­an­legt? Alveg örugg­lega ekki af hálfu hátt­virts þing­manns. Er það gott? Já, það er frá­bært. Og það mun breyta kjörum þeirra sem starfa á vöktum hjá hinu opin­bera og það er gott – og það er gott fyrir kvenna­stéttir,“ sagði hún.

Katrín fjall­aði jafn­framt um launa­mál þing­manna í svari sínu. „Já, rifjum það upp. Bíddu, það var þessi rík­is­stjórn sem lagði niður kjara­ráð. Það var nú eitt af því sem flokkur hátt­virts þing­manns var ein­hvern tím­ann á að þyrfti að ger­ast og að það væri mik­il­vægt að koma á nýju og gagn­sæju kerfi um launa­mál æðstu stjórn­enda hjá rík­inu. En nú er komin ein­hver önnur plata á. Hún er kannski ekki alveg fyr­ir­sjá­an­leg þegar ég hugsa um mál­flutn­ing hátt­virts þing­manns – fyrri mál­flutn­ing það er að segja.

Það sem við gerðum var að breyta þessu fyr­ir­komu­lagi og einmitt koma á gagn­sæju fyr­ir­komu­lagi í anda þess sem ger­ist ann­ars staðar á Norð­ur­löndum til þess að tryggja það að umdeildir úrskurðir kjara­ráðs end­ur­taki sig ekki. Að vísu höfum við frestað þeirri hækkun sem átti að vera 1. júlí en var það fyr­ir­sjá­an­legt? Ég veit það ekki. Ég veit ekki hvað hátt­virtum þing­manni finnst fyr­ir­sjá­an­legt. Var það fyr­ir­sjá­an­legt að við værum í þessu rík­is­stjórn­ar­sam­starfi? Nei, það held ég ekki.“

Hún benti á að þetta væri í fyrsta sinn sem hún væri í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum. „Ég horfi bara á þann árangur sem næst í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Tel ég okkur hafa náð árangri? Ég hef nefnt tvö dæmi hér. Ég er nokkuð viss um að hátt­virtur þing­maður hefði séð hvor­ugt þeirra fyrir.“

Spurði sömu spurningarinnar aftur

Björn Leví kom í pontu í annað sinn og sagði að spurn­ing­unni hefði ekki verið svarað. „Ég spyr hana aftur: Af hverju er svona eft­ir­sókn­ar­vert að fara í valda­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum?“

Katrín svar­aði og sagði að það að fara í rík­is­stjórn – sama með hverjum – sner­ist um það að ná árangri í þeim málum sem stjórn­mála­menn vildu fara í. „Ég legg mikið upp úr því að vera í stjórn­málum til að ná árangri í mik­il­vægum málum fyrir sam­fé­lagið og ég mæli minn árangur út frá því – hvaða árangur erum við að ná fyrir sam­fé­lagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár