Þorgerður Katrín segir ekki koma til greina að lækka veiðigjöld

Sjáv­ar­ú­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra segir engar sér­tækar lausnir í boði. Mun frekar eigi að hækka veiði­gjöld og láta þau renna inn í sjóði sem geti brugð­ist við erf­iðum aðstæðum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir að það komi ekki til greina að lækka veiði­gjöld á sjáv­ar­út­veg. Rík­is­stjórnin muni ekki grípa til sér­tækra lausna til að leysa tíma­bundin vanda­mál atvinnu­greina. Mun frekar sé hún fylgj­andi því að veið­gjöld verði hækkuð og þau látin renna inn í stöð­ug­leika­sjóð eða auð­linda­sjóð sem geti brugð­ist við þegar erf­iðar aðstæður komi upp. Þetta segir ráð­herr­ann í sam­tali við Kjarnann.

Teitur Björn Ein­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, sagði í dag að hann vildi að lækkun á veiði­gjöldum á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki verði skoð­uð. Veiði­gjöld hafa lækkað um átta millj­arða króna á örfáum árum á sama tíma og sjáv­ar­út­vegur sem heild hefur farið í gegnum nær for­dæma­laust hagn­að­ar­skeið. Eigið fé atvinnu­grein­ar­innar jókst um rúm­lega 300 millj­arða króna frá árinu 2008 til árs­loka 2015 þrátt fyrir að eig­endur útgerða hefðu greitt sér út 54,3 millj­arða króna í arð á tíma­bil­inu.

Teitur tók til máls undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Þar fjall­aði hann um þá ákvörðun HB Granda að hætta bol­fisk­svinnslu í starfs­stöð sinni á Akra­nesi og sagði:

„Í stærra sam­hengi hluta er því miður hætt við því að þetta sé ekki ein­angrað til­vik sem um ræð­ir. Mikil hækkun launa, veru­leg styrk­ing krón­unn­ar, háir vextir setja fjöl­margar fisk­vinnslur í veru­legan vanda víða um land og það er ekki hægt að horfa fram hjá því að gjöld á atvinnu­veg­inn umfram aðrar útflutn­ings­greinar eru íþyngj­andi, gjöld sem leggj­ast sér­stak­lega þungt á lítil og með­al­stór fisk­vinnslu­fyr­ir­tæki á lands­byggð­inni. Ef það er raun­veru­legur vilji til þess að treysta atvinnu­skil­yrði, auka starfs­ör­yggi starfs­fólks og auka byggða­festu hlýtur lækkun þeirra að vera einn val­kostur sem er í stöð­unn­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár