Norðmenn opna upplýsingamiðstöð um voðaverk Breivik

Ýmsir munir hins norska Anders Behring Breivik verða settir á sýningu í Osló, sem verður opnuð á miðvikudaginn eftir viku, þegar fjögur ár verða liðin frá hryðju­verkum Breikvik í Útey og Osló. Þetta verður gert af virðingu við fórnar­lömbin, þá sem lifðu af og aðstand­endur.

Meðal þess sem verður sýnt eru leifar sprengjunnar sem sprakk í bíl fyrir utan skrif­stofur stjórnar­ráðsins í Osló, auk þess sem hlutar úr bilnum verða þar. Sprengjan varð átta manns að bana. Þá munu fölsuðu skilríkin og lögreglu­merkið sem hann notaði til sýnis, sem og munirnir í tösku sem hann tók með sér til Úteyjar, þar sem hann myrti 69 manns.

Jan Tore Sanner, innan­ríkis­ráðherra Noregs, segir mikilvægt að sett sé upp eins konar upplýsinga- og lærdóms­miðstöð um það sem gerðist þann 22. júlí 2011, svo að bæði ungir og aldnir Norðmenn geti glöggvað sig á því sem gerðist.

„Þekking er mikil­vægasta vopnið okkar í barátt­unni gegn ofbeldi, hatri og öfgum,“ segir hann í viðtali við Aftenposten. „Þess vegna viljum við sýna nákvæmlega hvað gerðist og skiljum engan hluta sögunnar eftir.“

Það er tækni­háskóli Noregs (NTNU) sem hannaði þessa upplýsinga­miðstöð sem verður staðsett á fyrstu hæð byggingarinnar sem sprengjan sprakk við. Sanner segir að fyrir alla sem lifðu atburðina fyrir fjórum árum verði sýningin eflaust sársauka­full. „En við verðum að komast í gegnum þennan sársauka­fulla hluta sögunnar á heiðar­legan hátt. Miðstöðin sýnir það sem raun­verulega gerðist.“

Gert er ráð fyrir því að upplýsinga­miðstöðin verði opin í að minnsta kosti fimm ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár