Segir ríkisstjórnarsamstarfið ekki sjálfbært fyrir þjóðina

Þing­maður Við­reisnar líkir for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins við örmagna for­eldri sem þarf sífellt að þola rifr­ildi barn­anna sem sitja á vinstri og hægri hönd við mat­ar­borðið. Umræðan um útlend­inga­mál sýni að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið er ekki sjálf­bært.

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, segir atburða­rás­ina í umræð­unni um mót­töku flótta­fólks síð­ustu daga lýsandi fyrir sam­starf rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

„[Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir] eru fullir af orku og vilja til verka en kom­ast ekki lönd né strönd vegna inn­an­meina og deilna. Deil­urnar við rík­is­stjórn­ar­borðið eru hand­bremsa í þeim verk­efnum sem ráð­ast þarf í,“ sagði Sigmar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur verið sak­aður um að ala á ótta í garð hæl­is­leit­enda í umræðu um mál­efni flótta­fólks síð­ustu daga, bæði á Alþingi sem og í fjöl­miðlum. Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata, hefur sagt það grafal­var­legt mál að dóms­mála­ráð­herra taki undir orð­ræðu sem er til þess fallin að auka jað­ar­setn­ingu fólks sem þegar til­heyrir minni­hluta­hópi.

Dóms­mála­ráð­herra­mælti í síð­ustu viku fyrir frum­varpi til laga um landa­mæri. Ráð­herra sagði af því til­efni í sam­tali við Morg­un­blaðið að borið hafi á því að hæl­is­leit­endur hafi komið til Íslands með venes­ú­elsk vega­bréf „þrátt fyrir að vera frá öðrum lönd­um“. Þá sagði hann í sam­tali við RÚV að ástandið væri stjórn­laust og að bregð­ast þurfi við auknum fjölda hæl­is­leit­enda með hertum regl­um.

Dómsmálaráðherra klappaður upp af flokksfélögum en mótmælt af Vinstri grænum

Sigmar sagði dóms­mála­ráð­herra vera klapp­aðan upp af flokks­fé­lögum sínum, mjög ákaft, á meðan Vinstri græn rísi upp og mót­mæli.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á Alþingi í síð­ustu viku að hún gæti ekki tekið undir með dóms­mála­ráð­herra að um stjórn­laust ástand væri að ræða. Nokkrum dögum seinna viðr­aði dóms­mála­ráð­herra þá hug­mynd að koma upp lok­uðum flótta­manna­búðum hér á landi. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, segir það ekki standa til. Hann sagði í sam­tali við RÚV að slíkt lýsi póli­tískum skoð­unum dóms­mála­ráð­herra en ekki stefnu rík­is­stjórn­ar­innar.

Sérstök umræða um stöð­una á landa­mær­unum með til­liti til auk­ins fjölda hæl­is­leit­enda var á dag­skrá þing­fundar í gær. Þar spurði Sigmar for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sigurð Inga Jóhann­es­son, hvort hann væri hlynntur stefn­unni sem dóms­mála­ráð­herra hefur boðað í flótta­manna­málum. Sigmar seg­ist hafa fengið „ákaf­lega fram­sókn­ar­legt svar“ sem hafi verið efn­is­lega svohljóð­andi: „Ég svara því seinna. Þá skal ég segja þér fyrir hvað ég stend og hvað ég vil verja.“

Líkti formanni Framsóknar við örmagna foreldri

Sigmar hélt áfram og sagði for­manni Fram­sóknar vera ákveðin vor­kunn. „Hann er eins og örmagna for­eldri sem þarf sífellt að þola rifr­ildi og ósam­komu­lag barn­anna sem sitja á vinstri og hægri hönd við mat­ar­borðið. Slíkt tekur eðli­lega á taug­arnar til lengri tíma.“

Málefni flótta­fólks er ekki eina málið þar sem rík­is­stjórn­ar­flokk­unum greinir á að mati Sigmars. „Þetta ger­ist í hverju mál­inu á fætur öðru. Þetta er að ger­ast í orku­málum, þetta er að ger­ast í land­nýt­ing­ar­málum, í auð­linda­málum, í skatta­málum og núna í útlend­inga­málum. Og þetta er ekki tæm­andi upp­taln­ing.“

Að hans mati gengur það ekki til lengdar að hafa rík­is­stjórn í land­inu sem hefur þrjár skoð­anir á hverju máli sem er til umfjöll­unar í núinu.

„Það er skilj­an­legt að flokk­arnir séu ólíkir og hafi hver sína sýn en þegar þeir koma sér ekki saman um stefnu, aftur og aftur, þá er þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf ekki sjálf­bært fyrir þjóð­ina,“ sagði Sigmar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár