Almenna leigufélagið hagnaðist um 401 milljón á hálfu ári

Fram­kvæmda­stjóri eins stærsta almenna leigu­fé­lags lands­ins segir að félagið finni mik­inn með­byr og ánægju meðal við­skipta­vina sinna.

Almenna leigu­fé­lagið, félag í eigu sjóða GAMMA sem á 1.262 leigu­í­búðir, hagn­að­ist um 401 milljón króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2018. Rekstr­ar­tekjur félags­ins juk­ust um 21 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra og voru 1.253 millj­ónir króna. Alls eru eignir Almenna leigu­fé­lags­ins metnar á 45,3 millj­arða króna og þar af voru fjár­fest­inga­eignir, sem eru íbúð­irnar sem félagið leigir út, metnar á 44,7 millj­arða króna. Félagið skuldar 28,6 millj­arða króna og því er eigið fé þess 12,7 millj­arðar króna. Þetta kemur fram í hálfs­árs­upp­gjöri Almenna leigu­fé­lags­ins sem birt var í dag.

Í upp­gjör­inu kemur fram að í byrjun júní hafi Almenna leigu­fé­lagið gengið frá kaup­unum á öllum hlutum í tveimur félögum utan um fast­eignir, Reykja­vik Apart­ments ehf., X459 ehf. Auk þess keypti það helm­ings­hlut í L56 ehf. Alls er um að ræða 70 mjög litlar íbúðir í mið­borg Reykja­víkur sem verða til útleigu til skemmri og lengri tíma.

María Björk Ein­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Almenna leigu­fé­lags­ins, segir í til­kynn­ingu til Kaup­hallar, að félagið finni fyrir miklum með­byr og ánægju meðal við­skipta­vina sinna. „Það er allra hagur að hér sé byggður upp fjöl­breyttur hús­næð­is­mark­aður sem mætir þörfum ólíkra þjóð­fé­lags­hópa. Starf­semi öfl­ugra leigu­fé­laga, sem bjóða við­skipta­vinum sínum betri þjón­ustu en áður tíðk­að­ist, er mik­il­vægur þáttur í því. Áætluð sam­an­lögð mark­aðs­hlut­deild stærri leigu­fé­laga sem starfa á almennum mark­aði er í dag um 12 pró­sent.“

Almenna leigu­fé­lagið stefnir að því að skrá sig á aðal­markað Kaup­hall­ar­innar á næsta ári og stendur und­ir­bún­ingur yfir.

Markaðsvirði Heimavalla minna en eigið fé félagsins

Á þeim mark­aði er nú þegar eitt almennt leigu­fé­lag, Heima­vellir, sem er stærsta félag sinnar teg­undar á Íslandi. Heima­vellir voru reknir með tapi á fyrri hluta árs­ins, en tap félags­ins var sam­tals 136 millj­ónum króna á tíma­bil­inu. Það tap var þó fyrst og síð­ast til komið vegna mats­breyt­inga á virði fast­eigna í eigu Heima­valla. Áður en að tekið var til­lit til þeirra nam rekstr­ar­hagn­aður Heima­valla á tíma­bil­inu 1.056 millj­ónum króna. Það þýðir að 57,6 pró­sent af rekstr­ar­tekjum félags­ins voru hagn­að­ur, en það hlut­fall var mun lægra á sama tíma í fyrra, eða 47,2 pró­sent.

Eigið fé Heima­valla var 18,6 millj­arðar króna um mitt þetta ár, sem er umtals­vert meira en mark­aðsvirði alls hluta­fjár í félag­inu. Það er um 13 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár