Heimavellir ætla að klára endurfjármögnun á næstu mánuðum

Arion banki und­ir­býr útgáfu skulda­bréfa fyrir Heima­velli sem stefnt er að bjóða fjár­festum í októ­ber. Takist Heima­völlum að end­ur­fjár­magna millj­arða skuldir við Íbúða­lána­sjóð þá getur félagið greitt hlut­höfum sínum arð.

Guðbrandur Sigurðsson hringir kauphallarbjöllunni þegar viðskipti hófust með bréf í Heimavöllum í maí
Guð­brandur Sig­urðs­son hringir kaup­hall­ar­bjöll­unni þegar við­skipti hófust með bréf í Heima­völlum í maí Mynd: Nasdaq Iceland

Heima­vellir, stærsta leigu­fé­lag lands­ins sem starfar á almennum leigu­mark­aði, not­aði nýliðið sumar til að und­ir­búa end­ur­fjár­mögnun á lang­tíma­skuldum sínum. Fyr­ir­hugað er að hrinda end­ur­fjár­mögn­un­inni í fram­kvæmd á næstu mán­uðum.

[links]Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér vegna árs­hluta­upp­gjörs fyrstu sex mán­aða árs­ins fyrir helgi. Þar segir að nýleg skrán­ing Heima­valla „í kaup­höll var ekki síst hugsuð til að styrkja stöðu félags­ins til að ná betri kjörum á fjár­magns­mark­aði. Eitt mik­il­væg­asta verk­efni félags­ins er einmitt end­ur­fjár­mögnun lang­tíma­skulda. Heima­vellir eiga í sam­starfi við Arion banka um útgáfu á fast­eigna­tryggðum skulda­bréfum sem er stefnt að bjóða fjár­festum í októ­ber næst­kom­andi. Við teljum að skulda­bréf hjá skráðu félagi með veði í vönd­uðu íbúða­safni ætti að höfða til margra lang­tíma­fjár­festa“.

Heima­vellir voru reknir með tapi á fyrri hluta árs­ins, en tap félags­ins var sam­tals 136 millj­ónum króna á tíma­bil­inu. Það tap var þó fyrst og síð­ast til komið vegna mats­breyt­inga á virði fast­eigna í eigu Heima­valla. Áður en að tekið var til­lit til þeirra nam rekstr­ar­hagn­aður Heima­valla á tíma­bil­inu 1.056 millj­ónum króna. Það þýðir að 57,6 pró­sent af rekstr­ar­tekjum félags­ins voru hagn­aður, en það hlut­fall var mun lægra á sama tíma í fyrra, eða 47,2 pró­sent.

Ríkið seldi og lánaði

Heima­vellir er félag sem var stofnað árið 2015. Það skuldar í dag 36,1 millj­arða króna og á 1.978 íbúðir. Íslenska ríkið seldi Heima­völlum flestar þær eignir sem félagið hefur eign­ast, í gegnum ann­ars vegar Kadeco og hins vegar Íbúða­lána­sjóð.

[adspot]Íslenska ríkið er líka stærsti lán­veit­andi Heima­valla, en stór hluti þeirra upp­kaupa á hús­næði sem átt hefur sér stað í gegnum Heima­velli er fjár­magn­aður með lánum. Í aðdrag­anda þess að bréf Heima­valla voru tekin til við­skipta í kaup­höll í kjöl­far skrán­ingu félags­ins á markað í maí, greindi Kjarninn frá því að stór hluti af núver­andi fjár­mögnun Heima­valla er í formi lána frá Íbúða­lána­sjóði sem veitt hafa verið á grund­velli reglu­gerðar um lán­veit­ingar sjóðs­ins frá árinu 2013 til sveit­ar­fé­laga, félaga og félaga­sam­taka sem ætl­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leigu­í­búðum. Markmið þeirrar reglu­gerðar er að „stuðla að fram­boði á leigu­í­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­legum kjörum“.

Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Heima­valla segir að til að „upp­fylla form- og efn­is­skil­yrði Reglu­gerð­ar­innar mega félög sem veitt hafa verið slík lán ekki vera rekin í hagn­að­ar­skyni og úr þeim má hvorki greiða arð né arðsí­gildi“. Slík lán eru veitt til 50 ára.

Um síð­ustu ára­mót skuld­uðu Heima­vellir 18,6 millj­arða króna í slík lán. Það voru rúm­lega helm­ingur af öllum vaxta­ber­andi skuldum félags­ins um síð­ustu ára­mót

Geta greitt arð ef það tekst að endurfjármagna

Í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni sagði að stefna Heima­valla sé að „end­ur­fjár­magna þessi lán á næstu miss­erum enda telja stjórn­endur að félag­inu muni bjóð­ast betri kjör og skil­málar á mark­aði. Ekki er á þessu stigi hægt að segja til um hvenær slíkri end­ur­fjár­mögnun mun ljúka né á hvaða kjörum hún mun bjóð­ast. Sú hætta er fyrir hendi að félag­inu tak­ist ekki að end­ur­fjár­magna lánin á kjörum sem það telur ásætt­an­leg. Komi til þess, og félagið ákveður að eiga eign­irnar áfram, munu við­kom­andi dótt­ur­fé­lög áfram þurfa að lúta skil­yrðum Reglu­gerð­ar­innar, þ.m.t. banni við greiðslu arðs eða arðsí­gildis.“

En nú stendur sem sagt til að klára end­ur­fjár­mögnun á ofan­greindum lánum svo að hægt verði að greiða út arð hjá Heima­völlum. Umtals­vert svig­rúm er til slíks. Eigið fé Heima­valla í lok júní síð­ast­liðnum var 18,6 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið var 32,1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár