Telur túlkun Innri endurskoðunar villandi

Frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri Félags­bú­staða telur túlkun Innri end­ur­skoð­unar ekki vera í sam­ræmi við þær áætl­anir sem kynntar voru fyrir stjórn árin 2015 og 2016, þar sem gerð hafi verið grein fyrir stöðu verk­efn­is­ins við end­ur­bætur á íbúðum við Írabakka.

Auðun Freyr Ingvarsson
Auðun Freyr Ingv­ars­son Mynd: Félagsbústaðir

Auðun Freyr Ingv­ars­son, frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri Félags­bú­staða, seg­ist ekki sjá ákveðin atriði, sem koma fram í úttekt sem gerð var vegna umfram­kostn­aðar við end­ur­bætur á 53 íbúðum Félags­bú­staða við Íra­bakka í Reykja­vík, sömu augum og Innri end­ur­skoðun. Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni í dag.

Auðun segir að ein alvar­leg­asta nið­ur­staða skýrsl­unnar sé sú að stjórnin hafi ekki veitt heim­ild til fram­kvæmda fyrir nema um 400 millj­ónum króna vegna verk­efn­is­ins við Írabakka. Enn fremur sé því haldið fram að fram­kvæmda­kostn­aður upp á 728 millj­ónir hafi farið ríf­lega 83 pró­sent fram úr kostn­að­ar­á­ætlun. Þessu virð­ist haldið fram án þess að sann­reynt hafi verið að skiln­ingur stjórnar á þessum tíma væri sá sami, segir hann.

„Þessa túlkun innri end­ur­skoð­unar tel ég vill­andi og hún er ekki í sam­ræmi við þær áætl­anir sem kynntar voru fyrir stjórn fyrir árið 2015 og aftur árið 2016 þar sem gerð var grein fyrir stöðu verk­efn­is­ins og jafn­framt greint frá því að heild­ar­kostn­aður sé áætl­aður 625 millj­ónir,“ segir hann í stöðu­upp­færslu sinni.

Til að taka af öll tví­mæli um skiln­ing stjórnar á stöðu verk­efn­is­ins bendir Auðun á að í skýrslu hennar til eig­anda, sem aðgengi­leg er á heima­síðu Félags­bú­staða, hafi stjórnin upp­lýst í árs­skýrslu fyrir árið 2016 að heild­ar­kostn­aður verk­efn­is­ins hafi stefnt í að verða um 600 millj­ónir króna. „Fram­úr­keyrsla m.v. upp­færðar áætl­anir sem kynntar voru stjórn og eig­anda var því nær 21 pró­sent eða um 125 millj­ónir. Það er umtals­verð fjár­hæð en þó ekki með öllu óeðli­legt fyrir verk­efni af þess­ari stærð og gerð hjá félagi sem síð­ustu ár hefur fjár­fest fyrir 2.000 til 3.000 millj­ónir króna á hverju ári,“ segir hann.

Ekki nægilega vel staðið að undirbúningi og innkaupum

Auðun segir að rétti­lega sé bent á það í skýrsl­unni að ekki hafi verið nægj­an­lega vel staðið að und­ir­bún­ingi og inn­kaupum í umræddri fram­kvæmd. „Þrátt fyrir að það hafi verið mér kapps­mál að standa rétt og vel að inn­kaupum fyrir Félags­bú­staði, virð­ast hafa verið ákveðnar brotala­mir á umgjörð þessa verk­efnis sem ég gerði mér ekki nógu fljótt grein fyrir. Á því axla ég ábyrgð.“

Hann segir jafn­framt að allar aðrar stærri verk­fram­kvæmdir sem félagið hefur staðið fyrir síðan hann hóf störf sem fram­kvæmda­stjóri hafi farið í útboðs­ferli og áætl­anir hafi í öllum aðal­at­riðum stað­ist.

Með því að stíga til hliðar á þessum tíma­punkti seg­ist hann vilja ábyrgð á hlutum sem betur hefðu mátt fara á hans vakt og veita stjórn og nýjum stjórn­endum svig­rúm til að takast á við þær áskor­anir sem felist í því að halda úti stóru og öfl­ugu þjón­ustu­fyr­ir­tæki í opin­berri eigu.

Varð ljóst að kostnaður færi verulega yfir samþykkta áætlun

Auðun rifjar upp að dag­inn sem hann hóf störf hjá Félags­bú­stöðum hafi í stjórn verið sam­þykkt fjár­hags­á­ætlun árs­ins 2014 sem meðal ann­ars hafi falið í sér áætlun vegna fram­kvæmda við Írabakka en unnið hafði verið að end­ur­bótum húss­ins frá árinu 2012. „Áætlunin sem gerð var við upp­haf verks­ins gerði ráð fyrir fram­kvæmd upp á 200 millj­ónir, sem fólust meðal ann­ars í end­ur­bótum vegna leka og vegna bruna­varna. Eins og margir þekkja, sem staðið hafa í við­haldi fast­eigna, getur reynst erfitt að áætla með vissu kostnað end­ur­bóta. Sífellt koma upp nýir hlutir sem hag­kvæmt er að takast á við þegar verið er að fram­kvæma á annað borð. Þegar svo ber undir eru áætl­anir upp­færðar eftir því sem verkið þró­ast og því vindur fram.“

Þegar leið á árið 2014, hans fyrsta ár í starfi, varð honum ljóst að kostn­aður við fram­kvæmdir var að fara veru­lega yfir sam­þykkta áætlun fyrir verkið. Fram­kvæmdir við Írabakka hafi því fengið sér­staka athygli og umfjöllun í áætlun fyrir árið 2015 þar sem stjórn félags­ins hafi verið kynnt staðan. Gerð hafi verið grein fyrir raun­kostn­aði á árunum 2012 til 2014, áætl­uðum kostn­aði fyrir sama tíma­bil og upp­færðri áætlun um fram­kvæmda­kostn­aði á árunum 2015 til 2016. Heild­ar­kostn­aður verks­ins hafi verið áætl­aður 625 millj­ónir, eða 500 millj­ónir án virð­is­auka­skatts.

„Kostn­aður við verkið fór þrátt fyrir þetta nokkuð fram úr áætlun á árinu 2015 en þegar ljóst var að frammúr­keyrsla yrði veru­lega árið 2016 ákvað ég í maí það ár, í sam­vinnu við stjórn­ar­for­mann félags­ins, að óska eftir því að innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar færi yfir málið. Það var ljóst að ákveðnar brotala­mir höfðu komið fram í áætl­un­ar­gerð, stjórnun og eft­ir­liti verk­efn­is­ins og heppi­legt var talið að fá aðstoð frá innri end­ur­skoðun við að fara yfir verk­lag og gera til­lögur að úrbótum,“ segir Auðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár