Félagsbústaðir endurskoða starfsemi sína og innra eftirlit

Stjórn Félags­bú­staða hefur ákveðið að ráð­ast í gagn­gerar end­ur­bætur á starf­semi og innra eft­ir­liti félags­ins í kjöl­far úttektar sem gerð var vegna umfram­kostn­aðar við end­ur­bætur á 53 íbúðum Félags­bú­staða við Írabakka í Reykja­vík.

Írabakki
Írabakki Mynd: Aðsend mynd

Stjórn Félags­bú­staða hefur ákveðið að ráð­ast í gagn­gerar end­ur­bætur á starf­semi og innra eft­ir­liti félags­ins í kjöl­far úttektar sem gerð var vegna umfram­kostn­aðar við end­ur­bætur á 53 íbúðum Félags­bú­staða við Írabakka í Reykja­vík.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Félags­bú­stöðum sem send var út í dag.

Í maí 2016 ósk­uðu stjórn og fram­kvæmda­stjóri Félags­bú­staða eftir því við innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar að hún gerði úttekt á við­halds­verk­efni félags­ins við Írabakka 2-16 á árunum 2012 til 2016. Fyrir lá að ýmsar brotala­mir höfðu verið á fram­kvæmd og skipu­lagi verk­efn­is­ins, segir í til­kynn­ing­unni.

Skýrsla Innri end­ur­skoð­unar var nýlega kynnt fyrir stjórn og komu þar fram alvar­legar athuga­semdir við stjórn­hætti í tengslum við umrætt verk­efni. „Þrátt fyrir að und­an­farin ár hafi stjórn félag­ins átt í góðu sam­starfi við fram­kvæmda­stjóra um marg­þættar úrbætur á rekstri félags­ins hefur fram­kvæmda­stjóri, í ljósi þeirra athuga­semda sem fram komu í skýrslu Innri end­ur­skoð­unar, kosið að segja starfi sínu lausu í þeirri von að sátt skap­ist um rekstur félags­ins og svig­rúm til frek­ari end­ur­bóta.“

Úttektin leiddi í ljós að á fjög­urra ára tíma­bili sem hún tók til sam­þykkti stjórn fram­kvæmdir fyrir 398 millj­ónir króna árið 2012 var farið af stað með við­halds­verk­efni upp á 44 millj­ónir króna til að skipta út gluggum, ofnum og tré­verki á Írabakka 2-16, en fljót­lega kom í ljós að mun meira við­halds var þörf. Því sam­þykkti stjórn næstu fjögur ár fram­kvæmdir fyrir 398 millj­ónir króna.

Heildarkostnaður 330 milljónir króna umfram heimildir

Heild­ar­kostn­aður Félags­bú­staða vegna þess­ara fram­kvæmda reynd­ist að lokum 728 millj­ónir króna sem er 330 millj­ónir króna umfram þær heim­ildir sem stjórnin veitti á fram­kvæmda­tím­anum og felur í sér 83 pró­sent fram­úr­keyrslu. Úttektin leiðir í ljós að skerpa þarf á verk­ferlum og setur Innri end­ur­skoðun Reykja­víkur fram marg­vís­legar ábend­ingar um hvernig bæta má innra eft­ir­lit Félags­bú­staða.

Stjórn Félags­bú­staða telur ábend­ingar Innri end­ur­skoð­unar gagn­legar og hefur sam­þykkt að vinna að úrbótum í sam­ræmi við þær. Sigrún Árna­dóttir, fyrrum bæj­ar­stjóri í Sand­gerði og áður fram­kvæmda­stjóri Rauða kross Íslands, hefur verið ráð­inn sem starf­andi fram­kvæmda­stjóri þar til ráð­inn verður nýr fram­kvæmda­stjóri í kjöl­far aug­lýs­ingar. Hlutverk Sigrúnar verður að vinna með stjórn félags­ins að því að bæta verk­ferla og að hrinda úrbótum í fram­kvæmd sem koma fram í úttekt Innri end­ur­skoð­unar, segir jafn­framt í til­kynn­ing­unni.

Meðal ábend­inga sem Innri end­ur­skoðun setur fram er að þegar fyr­ir­séð eru mikil frá­vik frá sam­þykktum áætl­unum beri að sækja form­lega um við­bót­ar­fjár­heim­ildir til stjórnar áður en stofnað er til útgjalda. Enn­fremur er áréttað að Félags­bú­stöðum beri að hlíta lögum um opin­ber inn­kaup og koma á inn­kaupa­ferli sem felur meðal ann­ars í sér að fram fari útboð þegar kostn­að­ar­á­ætlun fer yfir við­mið­un­ar­fjár­hæðir. Þá er bent á að stjórn Félags­bú­staða þurfi að setja félag­inu inn­kaupa­stefnu til að stuðla að góðri inn­kaupa­stjórn og eyða óvissu um verk­lag við inn­kaup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár