Segir menntamálaráðherra tileinka sér „leikjafræði Vigdísar Hauks“

Þing­maður Við­reisnar gagn­rýndi á þingi í dag orð mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra í við­tali um helg­ina þar sem hún hefði rætt mál­efni nafn­greindra og ónafn­greindra emb­ætt­is­manna sem ekki gætu svarað fyrir sig.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Mennta­mála­ráð­herra sat í útvarps­við­tali á sunnu­dag og til­eink­aði sér þar leikja­fræði Vigdísar Hauks, veitt­ist að emb­ætt­is­mönnum sem hún veit að geta ekki svarað ráð­herra.“

Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, á Twitter-síðu sinni í dag en hún spurði Lilju Alfreðs­dóttur, út í ummæli hennar á Sprengisandi á Bylgj­unni á sunnu­dag­inn um nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Formáli máls­ins er sá að Lilja ákvað í júní síð­ast­liðnum að höfða mál gegn Haf­dísi Helgu Ólafs­dótt­ur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sem kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála úrskurð­aði nýverið að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög með því að snið­ganga í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

Þorbjörg Sigríður vitn­aði á Alþingi í orð ráð­herra í við­tal­inu á Sprengisandi en þar sagði hún:

„Ég er ráð­herra, ég er líka ein­stak­lingur og verð, alveg eins og allir aðrir í íslensku sam­fé­lagi, að geta sótt minn rétt, telji ég brotið á mér.“

Þing­mað­ur­inn sagði þessi ummæli ráð­herra vera merki­leg fyrir margra hluta sakir. „Réttinn til að fara í mál hefur hún vita­skuld, það er óum­deilt, en ráð­herra þarf að vera með­vit­aður um að það er ráð­herra sem stefnir þarna konu fyrir dóm. Þetta er dóms­mál ráð­herr­ans og þetta er dóms­mál ráð­herr­ans í nafni rík­is­stjórn­ar­innar. Í þessu felst ekki ein­hver afstaða ein­stak­lings úti í bæ og þetta er algjört grund­vall­ar­at­riði í umræð­unni því að þetta snýst um það hvernig þessi hæst­virtur ráð­herra starfar og hvernig hún beitir valdi sínu.“

Þorbjörg Sigríður sagði að það hefði verið mennta­mála­ráð­herra sem setið hefði í útvarps­við­tali og rætt þar um nafn­greinda og ónafn­greinda emb­ætt­is­menn, starfs­menn innan stjórn­sýsl­unnar sem ættu enga aðild að þessu dóms­máli og hefðu ekki komið þar nærri, um emb­ætt­is­menn sem ráð­herr­ann vissi ósköp vel að gætu ekki tekið þátt í opin­beru sam­tali við ráð­herra og gætu ekki gert neitt annað en „að sitja undir þessum send­ingum ráð­herra, eins óverð­skuld­aðar og þær eru. Þannig fór ráð­herra með vald sitt þennan dag. Ég velti fyrir mér aðstöðumun­inum í þessu sam­bandi, aðstöðumun sem hæst­virtur ráð­herra virð­ist ekki skynja.“

Þá fannst henni hún skynja ein­hverja sögu um með­ferð valds sem væri óþægi­leg. Hún spyrði: „Er það raun­veru­lega skoðun ráð­herra að þetta dóms­mál snú­ist um per­sónu Lilju Alfreðs­dóttur? Og er það raun­veru­lega skoðun hennar að hún geti setið í útvarps­við­tali og talað um emb­ætt­is­menn með þeim hætti sem hún gerði þennan sunnu­dag?“

Eina leiðin sem ráðherra hefur

Lilja svar­aði og sagð­ist vilja benda þing­manni á að þetta væri eina leiðin til að fara í ógild­ingu á þessu máli. „Það er eina leiðin sem ráð­herr­ann hefur ef ráð­herr­ann er ekki sam­mála þessu. Ég breytti rétt sem ráð­herra og stend við það. Ég hlakka til að fara yfir þetta mál með ykkur öllum þegar því er lokið.“ sagði Lilja.

Hún sagði málið enn fremur snú­ast um jafn­rétti. „Þetta snýst um að það var hæfn­is­nefnd sem var skipuð þremur ein­stak­lingum, tveimur konum og einum karli. Í öllum mál­flutn­ingi hér er alltaf talað um karl­mann­inn og aldrei að það hafi líka verið tvær konur í hæfn­is­nefnd­inni, fyrr­ver­andi rektor, fyrsta konan sem gegndi því hlut­verki að vera rektor í sögu Háskóla Íslands. Í öllum mál­flutn­ingi er alltaf talað um að það hafi verið karl­mað­ur­inn sem hafi stýrt öllu. Það er rosa­lega brýnt þegar við erum að tala um mik­il­væg mál­efni sam­fé­lags­ins að við séum hrein­skil­inn og gefum upp allt sem við gerum í þeim efnum.“

„Einhvern veginn öllu snúið á hvolf“

Þorbjörg Sigríður kom aftur í pontu og þakk­aði ráð­herra inn­leggið en hún taldi Lilju ekki svara spurn­ing­unni. Hún hefði verið skýr; hvort ráð­herra teldi að þetta dóms­mál sner­ist um hana sjálfa sem per­sónu og hvort rétt væri að ráð­herra sæti í við­tali og tal­aði um nafn­greinda og ónafn­greinda emb­ætt­is­menn sem ekki gætu varið sig með þeim hætti sem hún varði sig.

„Ég nefndi ekki að þetta mál sner­ist um karl­mann eða konu, ég nefndi ein­fald­lega þá stað­reynd, og það hlýt ég að mega, að kæru­nefnd komst að ákveð­inni nið­ur­stöðu í þessu máli. Vel má vera að það breyt­ist í með­förum dóm­stóla. Staða máls­ins er sem stendur þessi: Brot gegn jafn­rétt­islögum. En hér er ein­hvern veg­inn öllu snúið á hvolf. Það er þannig að við­kom­andi konu var stefnt, og ráð­herra hefur sjálfur talað um kyn­ferði sitt í þessum efnum. Getur verið að við­brögðin hafi eitt­hvað með það að gera hvaða hörku ráð­herr­ann sýnir sjálfur í þessu máli? Alla jafna una menn svona úrskurði,“ sagði Þorbjörg Sigríður.

Viljum við hafa stjórnmálamenn sem hafa ekki kjark til að standa með því sem þeir gera?

Lilja sagð­ist hafa svarað þessu og telur hún að allt sem hafi verið gert í þessu máli stand­ist skoðun. „Þess vegna, sem ráð­herra, fer ég fram á ógild­ingu. Ég er ekki sam­mála þessum úrskurði. Ef það er orðið svo að stjórn­mála­menn séu orðnir hræddir við það að standa með sann­fær­ingu sinni, af hverju eru þeir þá í stjórn­málum? Er það að beita hörku að fara fram á ógild­ingu í máli sem maður er ekki sam­mála? Ég spyr bara: Viljum við hafa stjórn­mála­menn eða stjórn­mála­konur sem hafa ekki kjark eða þor til að standa með því sem þau gera? Mitt svar er ein­falt: Nei,“ sagði ráð­herr­ann.

Sagði ráðherra telja sig „fórnarlambið í málinu“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, fjall­aði einnig um málið á þingi í dag en hún beindi spurn­ingum sínum til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. „Máls­höfðun hæst­virts mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, Lilju Alfreðs­dóttur, gegn konu sem sótti um starf ráðu­neyt­is­stjóra í mennta­mála­ráðu­neyt­inu en laut í lægra haldi fyrir sam­flokks­manni ráð­herra, hefur skilj­an­lega vakið undrun og furðu. Stjórn Félags háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins er þannig gáttuð á mála­rekstr­inum og segir hann óskilj­an­legan. Engin dæmi séu um slíka máls­höfðun. Hún setji fólk í for­dæma­lausa stöðu gagn­vart ráð­herra og geti orðið til þess að umsækj­endur veigri sér við að sækja um starf hjá rík­inu,“ sagði hún.

Benti hún á að mennta­mála­ráð­herra héldi hins vegar sínu striki. Vitnaði Þór­hildur Sunna í sama við­tal á Sprengisandi á Bylgj­unni en þar sagði ráð­herra að vandað hefði verið til verka, hún stæði við ákvarð­anir sínar og teldi engan veg­inn harka­legt að fara í mál við ein­stak­ling. Þvert á móti væri „mennta­mála­ráð­herra fórn­ar­lambið í mál­inu“.

Vitnaði þing­maður Pírata enn fremur í orð for­sæt­is­ráð­herra þann 2. júní síð­ast­lið­inn en þá sagði hún í ræðu­stól á Alþingi að málið yrði tekið til umræðu á næsta rík­is­stjórn­ar­fundi sem fram fór þremur dögum síðar. „Ekki verður þó séð, af dag­skrá rík­is­stjórn­ar­funda, að þetta mál hafi nokkurn tím­ann verið rætt á þeim vett­vangi, hvorki á næsta rík­is­stjórn­ar­fundi né nokkrum fundi síðan. Því liggur bein­ast við að spyrja hæstv. for­sæt­is­ráð­herra, Katrínu Jak­obs­dóttur: Fékk rík­is­stjórnin kynn­ingu á úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála eins og boðað var í júní? Hefur hæstv. for­sæt­is­ráð­herra kynnt sér for­send­urnar fyrir máls­höfðun hæstv. mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra? Ef svo er, er hæstv. for­sæt­is­ráð­herra sam­mála því að brotið hafi verið á hæstv. mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra?“ spurði Þór­hildur Sunna.

Lagaramminn alveg skýr

Katrín svar­aði og sagð­ist ekki nákvæm­lega muna orð sín í ræðu­stól en að hún tæki orð þing­manns góð og gild um það. „Ég man það hins vegar vel að hæst­virtur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra gerði rík­is­stjórn grein fyrir því munn­lega að hún hygð­ist höfða mál til ógild­ingar á þessum úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála. Það er alger­lega ákvörðun hæst­virts mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra að gera það og hún hefur til þess rétt sam­kvæmt gild­andi lögum.“

Hún sagði jafn­framt að hún hefði lagt til þá breyt­ingu á lögum um jafna stöðu karla og kvenna að ef í slíkum málum til fram­tíðar væri vilji til að höfða mál til ógild­ingar yrði við­kom­andi stjórn­sýslu­nefnd kölluð til, eins og tíðk­að­ist fram til árs­ins 1997.

„Ég hef lagt til þessa breyt­ingu af því að ég tel mik­il­vægt að kerfið sé þannig úr garði gert að það tryggi að fólk leiti réttar síns telji það á sér brotið.

Hátt­virtur þing­maður spyr: Upplýsti mennta­mála­ráð­herra um ákvörðun sína? Hún gerði það. Hef ég farið nákvæm­lega í mála­vexti þessa máls? Nei, það hef ég ekki gert enda er þetta mál alfarið á borði hæst­virtur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sem er hér til svara í dag og getur vafa­laust farið nánar yfir það. Hvað varðar lag­ara­mmann þá er hann alveg skýr og hátt­virtur þing­maður þekkir þær breyt­ingar sem ég hef lagt til á honum,“ sagði Katrín.

Ósætti í ríkisstjórninni tæki „á sig margar myndir“

Þór­hildur Sunna sagð­ist í fram­hald­inu vera full­með­vituð um að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra mætti sækja rétt sinn. „Ég er hins vegar að spyrja hæst­virtan for­sætis- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hvort henni finn­ist og hvort hún sé sam­mála hæst­virtum mennta­mála­ráð­herra um að brotið hafi verið á henni og að ein­hvern rétt sé að sækja.“

Hún spurði enn fremur Katrínu um ósætti í rík­is­stjórn­inni sem tæki „á sig margar myndir. Þegar stjórn­ar­þing­menn eru ekki upp­teknir við að gagn­rýna meint alræði gegn eigin sótt­varna­að­gerðum þá eru ráð­herrar að skjóta hver á annan.“

Nefndi hún fyrr­nefnt við­tal máli sínu til stuðn­ings en þar sagði Lilja meðal ann­ars: „Það er fyrr­ver­andi þing­maður Alþýðu­banda­lags­ins ráðu­neyt­is­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Það var flutn­ingur sem var ekki einu sinni aug­lýstur.“

Þór­hildur Sunna spurði Katrínu hvað henni fynd­ist um þessa „pillu“ mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Teldi hún ráðn­ing­ar­ferli sitt við val á skrif­stofu­stjóra jafn vandað og í til­felli mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra eða jafn­vel bera með sér svæsnari vald­níðslu, eins og orð ráð­herra í við­tali á sunnu­dag hefðu borið með sér?

Hafði heimild til að færa embættismann í starfi

For­sæt­is­ráð­herra kom aftur í pontu og ítrek­aði orð sín. „Ég hef ekki kafað ofan í mála­vexti þess máls sem hátt­virtur þing­maður spyr um og tel betur fara á því að við­kom­andi ráð­herra fari yfir þá mála­vexti þegar hún situr fyrir svörum.

Mér er ljúft og skylt að fara yfir það sem hátt­virtur þing­maður spyr hér um sér­stak­lega í sinni síð­ari fyr­ir­spurn. Ráðu­neyt­is­stjóri for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins var færður til í starfi sam­kvæmt skýrri heim­ild 36. gr. laga nr. 70/1996, um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins, þar sem er heim­ild til að færa emb­ætt­is­menn til í starfi. Sú heim­ild bygg­ist raunar á vísun í stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins þannig að sú skipun er alger­lega hafin yfir vafa. Sá aðili sem var færður til í starfi gegndi áður emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara og var raunar skip­aður í það emb­ætti, að mig minnir, eftir aug­lýs­ingu af ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, Eygló Harð­ar­dóttur, þannig að það þarf eng­inn að velkj­ast í vafa um að þessi skipun er alger­lega hafin yfir vafa,“ sagði Katrín að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár