„Það er ósanngjarnt að reka fólk heim þegar það getur unnið“

Þing­maður Flokks fólks­ins gerði mál­efni eldri borg­ara að umtals­efni á þing­inu í dag.

Tómas A. Tómasson þingmaður Flokks fólksins.
Tómas A. Tómasson þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Virðu­legi for­seti, hátt­virtir þing­menn og lands­menn sem horfa á dag­skrána hér í beinni útsend­ingu. Ég heiti Tómas, kall­aður Tommi, og ég er eldri borg­ari.“

Þannig hóf Tómas A. Tómasson þing­maður Flokks fólks­ins mál sitt í ræðu undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Meg­in­inntakið hjá honum var það að honum finnst ósann­gjart að skikka fólk til að hætta að vinna hjá hinu opin­bera þegar það verður 70 ára.

„The fifties are the new thirties“

„Þannig er að þegar menn, og konur, verða 70 ára og vinna hjá hinu opin­bera eru þeir skikk­aðir til að hætta að vinna. Ég er aftur á móti á und­an­þágu, orð­inn 73 ára næstum, og er búinn að gera fjög­urra ára samn­ing við hið opin­bera um að vera hér í fullri vinnu á ofur­launum að auki.

Ég fór í gær að hitta frænda minn, hann er læknir, hann er 73 ára, og um dag­inn fór ég að hitta gamlan skóla­bróður sem er tann­læknir, hann er 72 ára, og þeir voru báðir við góða heilsu. En ég fékk í gær tölvu­póst frá konu sem var búin að vinna í 16 ár hjá hinu opin­bera við umönnun, hún varð sjö­tug fyrir nokkrum mán­uðum og þá var henni nán­ast hent út úr sinni vinnu. Þetta er ósann­gjarnt. Ég segi því miður,“ sagði Tómas.

Spurði hann hvers vegna í ósköp­unum þetta væri ekki leið­rétt og vitn­aði í Bill Wyman, fyrrum bassa­leik­ara Rolling Stones, en hann sagði í við­tali árið 1989: „The fifties are the new thirties“ sem þýðir á íslensku að sex­tugssald­ur­inn sé hinn nýi fer­tugs­aldur.

„Ég vil meina að við sem erum á þessum aldri og erum með góða heilsu eigum að fá að vinna. Það er ósann­gjarnt að reka fólk heim þegar það getur unnið,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár