Þau stóðu vaktina

Langar vaktir á öllum tímum sól­ar­hrings­ins. Hlífð­ar­fatn­aður frá toppi til táar. Allir, allir, allir sam­stíga. Kjarninn tók við­töl við fram­línu­fólk í far­aldr­inum, fólkið sem not­aði alla sína þekk­ingu og inn­sæi til að bjarga manns­lífum.

Þessi hjúkrun er það erf­ið­asta sem þú getur lent í,“ sagði Ólöf Svein­björg Sig­urð­ar­dóttir, hjúkr­un­ar­deild­ar­stjóri gjör­gæsl­unnar í Fossvogi, í sam­tali við Kjarnann 2. apríl. Að veikj­ast af nýjum sjúk­dómi, lenda á gjör­gæslu og jafn­vel í önd­un­ar­vél er ógn­vekj­andi. „Já, fólk er hrætt,“ sagði Ólöf.

Þennan dag voru yfir þús­und manns í ein­angrun með COVID-19 hér á landi og enn hafði far­ald­ur­inn ekki náð hámarki. Daginn á undan höfðu 99 greinst með veiruna. Fjórtán sjúk­lingar lágu á gjör­gæslu­deild með sjúk­dóm­inn, gjör­gæslu­deild sem hafði verið stækkuð um helm­ing til að takast á við álagið sem skap­að­ist. Nokkrum dögum áður, 24. mars, varð fyrsta dauðs­fallið á Land­spít­al­anum vegna COVID-19. Þau áttu eftir að verða tíu í þess­ari fyrstu bylgju far­sótt­ar­innar.

Aðstand­endur gátu ekki verið við hlið ást­vina sinna á dán­ar­beði vegna sýk­ing­ar­hætt­unnar en Ólöf sagði þá sýna ástand­inu skiln­ing og að auð­mýkt ein­kenndi allt og alla.

Inn­lagnir á sjúkra­hús urðu fleiri en spár gerðu ráð fyrir. Alvar­leiki veik­ind­anna var meiri. Oft­sinnis hafa verið fluttar fréttir af óboð­legu álagi á Land­spít­ala síð­ustu ár en það sem blasti við í mars og apríl var allt að því óraun­veru­legt.

„Það er verið að gera allt sem hægt er fyrir þessa sjúk­linga, allt sem við vitum að hægt er að gera við þessar aðstæður,“ sagði Ólöf. „Við erum alltaf að læra, við erum að sjá hvað er hægt að gera betur. Og kynnum okkur það allra nýjasta í þeim efnum. Við ætlum að láta þetta ganga og gerum eins vel og við getum.“

Þegar í upp­hafi far­ald­urs­ins var stofnuð sér­stök bak­varða­sveit heil­brigð­is­starfs­fólks og fjöl­margir skráðu sig og voru mættir „á gólfið“ á Land­spít­al­anum skömmu síðar. „Ég stend á öxlum risa,“ sagði Laufey Stein­dórs­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur um end­ur­komu sína á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans og hið færa fag­fólk sem þar starfar, í við­tali við Kjarnann 13. apríl. Laufey hafði vaknað einn morg­un­inn og fundið að hún ætti að skrá sig í bak­varða­sveit­ina. „Ég hlust­aði á hjarta mitt sem er minn besti veg­vísir og það sagði að þetta væri það sem mér væri ætlað að gera.“

Laufey hafði unnið á gjör­gæslu­deild­inni áður en fyrir nokkrum árum, eftir gríð­ar­legt álag, örmagn­að­ist hún á sál og lík­ama. Hún hóf að hlúa betur að sjálfri sér og lærði að kenna jóga og hug­leiðslu.

Laufey hafði staðið utan við gjör­gæsl­una í ára­tug og horft með lotn­ingu á starfið sem þar fer fram. Þetta er fólkið sem stendur ávallt sína plikt, sagði hún, hvort sem það er mót­vindur eða með­vindur í sam­fé­lag­inu og efna­hags­líf­inu. „Þau eru þarna á sínum stað, til­búin að gera allt sem þau geta til að bjarga lífi.“

Þrátt fyrir að það hafi verið sér­stak­lega mikið álag á gjör­gæslu­deild­inni í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins sagði Laufey allt ganga eins og vel smurð vél. „Þetta ástand er auð­vitað engu líkt. Deildin hefur stækkað dag frá degi og nýtt starfs­fólk komið inn. Sam­taka­mátt­ur­inn og sam­staðan hjá öllu starfs­fólk­inu er ótrú­lega mikil. Það er eins og þetta fólk verði bara öfl­ugra þegar svona ástand skellur á.“

Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn og fjög­urra barna móð­irin Arna Rut O. Gunn­ars­dóttir, sem búsett er á Akureyri, skráði sig einnig í bak­varða­sveit­ina og flaug suður til að leggja sitt af mörkum. „Ég er búin að vinna tíu vaktir á níu dögum. Svo já, ég neita því ekki að ég er lúin. Ég þurfti aðeins að kúpla mig út og sjá börnin,“ sagði hún í við­tali við Kjarnann 11. apríl. Arna hætti að vinna sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur árið 2018 og hafði ekki endi­lega hugsað sér að snúa aftur í það starf. Hún hafði sér­hæft sig í svæf­inga­hjúkrun og sú þekk­ing og reynsla sem hún hafði frá Sjúkra­hús­inu á Akureyri, varð til þess að fljót­lega eftir að hún skráði sig í bak­varða­sveit­ina var hún beðin að koma strax til starfa enda álagið á Land­spít­al­anum í hámarki. Um það leyti sem Arna kom inn á gjör­gæsl­una í Fossvogi voru yfir fjöru­tíu inniliggj­andi með COVID-19 á sjúkra­húsi, þar af yfir tíu á gjör­gæsl­unni. Deild­inni var umturnað á fyrstu dögum hennar í starfi. Nauð­syn­legt var að þre­falda mönn­un­ina og rúmum var fjölgað úr sex í átján.

„Þetta var alveg svaka­legt ástand, satt best að segja,“ sagði Arna. Álagið var það mikið að hún þurfti tvisvar sinnum að fram­lengja veru sína í Reykja­vík og breyta flug­mið­anum norður. „Maðurinn minn er líka í vakta­vinnu svo að við urðum að und­ir­búa pössun fyrir börnin okkar á meðan ég færi suður og hann væri að vinna. Allir voru boðnir og búnir að hjálpa okkur. Það eru fleiri en við heil­brigð­is­starfs­fólk sem hafa svarað kall­inu!“

Niðurlægjandi álagsgreiðsla

Arna sneri svo aftur á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans og vann alla pásk­ana. Í við­tali við Kjarnann í lok júní, þegar sér­stakar álags­greiðslur til heil­brigð­is­stafs­manna voru greiddar úr, var þyngra hljóð í henni. Fyrir 170 vinnu­stundir í miðjum far­aldri hafði höfðu rúmar 16 þús­und krónur komið í hennar hlut. Það fannst henni nið­ur­lægj­andi eftir að hafa gefið sig alla í vinn­una. Ríkið hafði sett millj­arð í álags­greiðsl­urnar en þær voru mið­aðar við fast starfs­hlut­fall í mars og apríl en Arna, líkt og aðrir bak­verðir, voru ekki í fastri vinnu. „Ég tók allan mesta álags­tím­ann,“ sagði Arna. „Og nið­ur­staðan er þessi upp­hæð.“

Sjúkra­lið­inn og lög­fræði­nem­inn Ásta Mart­eins­dóttir skráði sig einnig í bak­varða­veit­ina. Hún tók ekki loka­próf í lög­fræð­inni í Háskól­anum í Reykja­vík síð­asta vor heldur nýtti sér það að geta fengið árangur ann­ar­innar met­inn svo hún gæti lagt sitt af mörkum í bar­átt­unni við kór­ónu­veiruna. Fyrsta dag apr­íl­mán­aðar var hún mætt á vakt á smit­sjúk­dóma­deild­ina í Fossvogi þar sem fjöldi COVID-sjúk­linga lá. Hún við­ur­kenndi í við­tali við Kjarnann um miðjan apríl að fyrst þegar hún mætti inn á sjúkra­stofu til sjúk­linga, klædd varn­ar­bún­aði frá hvirfli til ilja, hafi hún orðið and­stutt og hugsað hvað hún væri eig­in­lega búin að koma sér út í. „En þessi hræðsla gufaði fljótt upp. Óttinn við að vera að setja sig í hættu­legar aðstæður hvarf. Ég treysti gall­anum mínum og aðlag­að­ist ástand­inu mjög fljótt.“

Stór hluti af starfi sjúkra­liða fellst í að hlúa að líðan sjúk­ling­ana, tala við þá og hug­hreysta. Fólk sem þarf að leggj­ast inn á spít­ala líður oft illa and­lega, ekki síst þegar það er með nýjan sjúk­dóm sem getur verið lífs­hættu­legur. „Fyrst þegar sjúk­lingar leggj­ast inn á deild­ina þá líður mörgum þeirra ekki vel,“ sagði Ásta.

Hún vann langar og erf­iðar vaktir í hlífð­ar­fatn­að­inum sem gat tekið veru­lega á. „En peppið frá sam­fé­lag­inu er gíf­ur­lega gef­andi. Manni líður pínu­lítið eins og íþrótta­manni með stuðn­ings­menn á hlið­ar­lín­unni. Að finna þennan stuðn­ing er virki­lega hvetj­andi.“

Kristín Bára Bryn­dís­ar­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur sagð­ist í sam­tali við Kjarnann í byrjun apríl ekki hafa hikað í „eina mín­útu“ við að skrá sig í bak­varða­sveit­ina þrátt fyrir að hafa glímt við flókin veik­indi í nokkur ár.

„Við tökum því sem svo sjálf­sögðum hlut að vakna hvern dag, fá að draga and­ann og vera til En það er ekki sjálf­sagður hlutur. Ég veit það, því ég hef unnið á krabba­meins­deild Land­spít­al­ans,“ sagði hún um þann lær­dóm sem hún hefur dregið af sínum veik­indum. „Og þegar það er heims­far­aldur þá hjálpar maður til. Það er bara þannig. Eitt sinn hjúkr­un­ar­fræð­ingur ávallt hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Við erum öll í þessu saman.“

Sjúkra­lið­inn Hafdís E. Bjarna­dóttir sagð­ist hafa upp­lifað alls­konar til­finn­ingar í upp­hafi far­ald­urs­ins. Hún er í skurð­stofuteymi Land­spít­al­ans við Hring­braut og sinnir því veiga­mikla hlut­verki að sótt­hreinsa tæki og tól, m.a. svæf­ing­ar­vél­arnar. „Þetta var svo nýtt og ólíkt öllu því sem við þekktum,“ sagði hún í við­tali við Kjarnann 1. maí. Hún, líkt og aðrir starfs­menn Land­spít­ala, voru nán­ast í ein­angrun utan vinnu, hitti fáa til að lág­marka smit­hættu. „Barna­börnin eru ofboðs­lega von­svikin að fá ekki að knúsa okkur og við söknum öll fjöl­skyldumat­ar­boð­anna. En maður tekur þetta ástand alvar­lega og vill að allt gangi upp því maður er einn hlekkur í þessu öllu. Ef maður er kæru­laus getur það haft vondar afleið­ingar fyrir svo marga,“ segir hún og bætir svo við: „En mikið hlakka ég til að geta farið að knúsa og kyssa börnin og barna­börnin aftur.“

Álagið var líka mikið á hjúkr­un­ar­heim­ilum líkt og Hulda Birna Frí­manns­dóttir, sjúkra­liði með um fjög­urra ára­tuga reynslu í starfi, lýsti í við­tali við Kjarnann 21. apríl. Hún sagði íbúa á Hrafn­istu Laug­ar­ási í Reykja­vík lang­flesta hafa sýnt því skiln­ing að heim­sókn­ar­bann var sett á þeim til varnar. „Ég hef nú verið í tölu­vert meira en 100 pró­sent vinnu síð­ustu vikur,“ sagði Hulda Birna. „Og lík­lega síð­ustu mán­uði. Í um viku var ég að vinna meira og minna frá átta á morgn­ana og til mið­nættis.“ Þrátt fyrir álagið var hún ekki að kvarta.

Hún sagði það hafa komið sér á óvart hvað allt gekk vel þrátt fyrir ýmsa hnökra og miklar breyt­ingar vegna heim­sókn­ar­banns­ins. „Þetta er auð­vitað mikið inn­grip í líf fjölda fólks, snýr lífi þess á hvolf. Svo það er aðdá­un­ar­vert að eldra fólkið í sam­fé­lag­inu taki þessu öllu svona vel.“

„Það er farið að róast tals­vert hjá okkur eftir mikið álag síð­ustu daga og vikur,“ sagði Sig­ur­bergur Kárason, yfir­læknir gjör­gæslu­lækn­inga, á Land­spít­al­anum við Hring­braut í sam­tali við Kjarnann, 16. apríl. Í upp­hafi fyrstu bylgj­unnar var stefnt að því að COVID-sjúkum yrði alfarið sinnt í Fossvogi en fljót­lega varð álagið það mikið að flytja þurfti nokkra á Hring­braut.

Dregið var tíma­bundið úr aðgerðum á spít­al­anum, fyrir utan bráða­að­gerðir, og þar með minnk­aði álag á gjör­gæsl­una að ein­hverju leyti. Þá hefur sótt­kví og ein­angrun vegna nýju kór­ónu­veirunnar einnig áhrif á útbreiðslu ann­arra bakt­ería og veira meðal fólks.

Sig­ur­bergur sagði það sama hafa gerst í banka­hrun­inu, um leið og hægð­ist á þjóð­fé­lag­inu fækk­aði þeim sem þurftu gjör­gæslu­með­ferð. „Það á sér sjálf­sagt ýmsar skýr­ingar, meðal ann­ars þá að umferð minnkar og þá fækkar slysum, svo dæmi sé tekið.“

Það er að ákveðnu leyti flókið að sinna sjúk­lingum með COVID-19. Til þess þarf fleiri starfs­menn en oft­ast undir hefð­bundnum kring­um­stæðum á gjör­gæsl­unni. „Sjúk­dóm­ur­inn setur það starfs­fólk sem sinnir sjúk­lingum í hættu og þess vegna þarf það að vera í miklum hlífð­ar­bún­aði,“ útskýrði Sig­ur­bergur. „Þessi bún­aður gerir það að verkum að öll vinna í kringum sjúk­ling­inn verður þyngri og erf­ið­ari og skipta þarf um áhöfn oftar.“

Þegar Kjarninn ræddi við Sig­ur­berg sagði hann heldur „rólegra yfir vötnum“ en rúmri viku áður er álagið var mest. En áfram þarf að vera í við­bragðs­stöðu, bætti hann við.

Í lok júní sagði Þóra Gunn­laugs­dóttir, aðstoð­ar­deild­ar­stjóri gjör­gæslu­deild­ar­innar í Fossvogi, frá því í við­tali við Kjarnann að dag­ana á undan hefðu fyrr­ver­andi skjól­stæð­ingar deild­ar­innar komið þangað í heim­sókn. Þetta er fólk sem veikt­ist alvar­lega af COVID-19 og þurfti sumt hvert að vera í önd­un­ar­vél dögum saman. „Það hefur verið ótrú­legt að sjá þau koma gang­andi inn á deild­ina eftir allt sem á undan er gengið.“

„Ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa þessu,“ sagði Þóra um hvernig ástandið hefði verið á hennar vinnu­stað er far­ald­ur­inn stóð sem hæst. Vinnu­dag­arnir voru langir, oft­ast vann hún sex daga í viku í 10-12 tíma í senn. Á þeim tíma sem við­talið var tekið var tölu­vert síðan síð­asti sjúk­ling­ur­inn sem fékk COVID-19 var útskrif­aður. Og Þóra á leið­inni í lang­þráð sum­ar­frí. Upp úr stóð hvað allir lögðu sig fram. Hvað allir stóðuð saman. Og hvað allir voru ákveðnir í að gera sitt besta og kom­ast í gegnum þetta. „Það voru allir starfs­menn í ákveðnum bar­átt­ugír,“ rifj­aði Þóra upp. „Við stóðum saman í þessu. Fólk mætti til­búið í slag­inn á hverjum degi – til­búið í hvað sem var. Þannig var stemn­ingin í hópnum. Hún var mjög sér­stök.“

Þegar síð­asti sjúk­ling­ur­inn var útskrif­aður af gjör­gæslu­deild­inni í lok apríl var haldið upp á tíma­mótin með vöfflu­kaffi. Þóra stóð þá við vöfflu­járnið og fann fyrir tölu­verðum létti. „En ég held að við séum flest enn á þeim stað að gera okkur grein fyrir að þetta er ekki endi­lega alveg búið. Það gætu lagst inn fleiri vegna COVID. Auðvitað vona allir að svo verði ekki. Vegna fólks­ins sem veik­ist. Þessi sjúk­dómur er alvar­legur. Ég sá oft örvænt­ing­una í aug­unum á sjúk­ling­unum sem vissu að þeir voru að fara í önd­un­ar­vél. Það voru svo hræði­legar fréttir búnar að ber­ast að utan um örlög fólks sem þurfti á þannig með­ferð að halda. Eitt af því sem ég minn­ist sér­stak­lega þegar ég lít til baka er hvað allir voru hræddir. Það var og er svo mikil óvissa með þennan sjúk­dóm.“

Við vitum hvað gerð­ist svo. Önnur og svo þriðja bylgja COVID-19 skall á. Sú þriðja olli aftur gríð­ar­legu álagi á gjör­gæsl­una og aðrar deildir Land­spít­al­ans. Samtals hafa 53 sjúk­lingar með COVID þurft á gjör­gæslu­með­ferð að halda frá því far­ald­ur­inn hófst í lok febr­úar.

29 hafa lát­ist vegna sjúk­dóms­ins hér á landi, þar af nítján í þriðju bylgj­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið undanfarið ár