Hikaði ekki „eina mínútu“ við að skrá sig í bakvarðasveitina

Þrátt fyrir að hafa glímt við flókin veik­indi í nokkur ár skráði hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn Kristín Bára Bryn­dís­ar­dóttir sig í bak­varða­sveit heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Þó að álagið á Land­spít­al­anum sé gríð­ar­legt í augna­blik­inu ótt­ast hún ekki bakslag.

Kristín Bára Bryn­dís­ar­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur hefur að und­an­förnu verið að æfa sig í að treysta inn­sæi sínu og taka ákvarð­anir út frá því. Þegar bak­varða­sveit heil­brigð­is­þjón­ust­unnar var stofnuð, vegna far­ald­urs COVID-19 og fyr­ir­séðs álags á sjúkra­húsum lands­ins, gerði hún einmitt það og hik­aði ekki við að skrá sig þótt að hún sé í leyfi frá störfum vegna flók­inna veik­inda.

„Við tökum því sem svo sjálf­sögðum hlut að vakna hvern dag, fá að draga and­ann og vera til. En það er ekki sjálf­sagður hlutur. Ég veit það, því ég hef unnið á krabba­meins­deild Land­spít­al­ans,“ segir hún um þann lær­dóm sem hún hefur dregið af sínum veik­indum. „Og þegar það er heims­far­aldur þá hjálpar maður til. Það er bara þannig. Eitt sinn hjúkr­un­ar­fræð­ingur ávallt hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Við erum öll í þessu saman.“

Fljót­lega eftir að Kristín Bára skráði sig í bak­varða­sveit­ina var haft sam­band við hana og hún beðin að koma til starfa á Land­spít­al­anum þar sem hún hóf fyrst störf að afloknu námi í hjúkr­un­ar­fræði við Háskóla Íslands. Í kjöl­farið fékk hún sent efni til upp­rifj­unar sem hún fer nú yfir til að und­ir­búa sig. Til stendur að hún sinni sjúk­lingum með COVID. Kallið getur komið á hverri stundu.

„Ég hik­aði ekki við það í eina mín­útu að skrá mig í bak­varða­sveit­ina,“ segir Kristín í sam­tali við Kjarnann. „Ég hef unnið á Land­spít­al­anum. Ég veit hvernig staðan var fyrir þennan far­aldur. Ég veit hvað það er mikið álag á starfs­fólk­inu fyrir.“

Beint á Landspítala eftir útskrift

Eftir útskrift árið 2010 vann Kristín Bára í nokkur ár á krabba­meins­lækn­inga­deild á Land­spít­al­anum en breytti svo til og fór í sölu- og mark­aðs­starf. Haustið 2015 fór hún að eiga mjög erfitt með svefn og svaf ekki í tvo mán­uði. Hún mætti samt alltaf til vinnu. „Ég hætti að sofa hrein­lega, það gerð­ist nán­ast á einni nóttu.“

Kristín Bára fór haustið 2015 að eiga mjög erfitt með svefn. Ástandið átti eftir að vinda upp á sig.
Kristín Bára fór haustið 2015 að eiga mjög erfitt með svefn. Ástandið átti eftir að vinda upp á sig.

Rúmlega tví­tug hafði hún greinst með floga­veiki og næstu árin tók hún lyf vegna sjúk­dóms­ins. Er svefn­leysið hófst var hún búin að vera lyfja­laus og stöðug í mörg ár. „Að sofa ekki í svona langan tíma er bein­línis mann­skemm­andi,“ segir Kristín. „Þarna var ég að fá flog í svefni án þess að vita af því.“

Í jan­úar 2016 byrj­aði hún aftur á floga­veikis­lyfj­unum en „þá byrj­aði ballið,“ segir hún. „Þegar eitt kerfi lík­am­ans gefur sig þá fara önnur út af spor­inu.“ Í kjöl­farið fór hún að finna fyrir krónískum verkjum. Það hvarfl­aði þó ekki að henni að taka veik­inda­leyfi lengur en í nokkra daga.

Þá um sum­arið ákvað hún að skipta um vinnu og færa sig yfir á heilsu­gæsl­una í skóla­hjúkrun og ung- og smá­barna­vernd. Álagið var mikið, hún var að sinna sínu heim­ili, með tvo drengi og í fullri vinnu. Hafin var bar­átta sem átti eftir að standa í nokkur ár.

Tuska í andlitið

Kristín var að lokum greind með vefja­gigt haustið 2016 eftir grein­ing­ar­ferli hjá Þraut. Þegar þarna er komið sögu var hún einnig búin að vera í eft­ir­liti hjá hjarta­lækni vegna hjart­slátta­trufl­ana. Hún fékk ítrekað hrað­s­látta­köst og púls­inn átti það til að hækka upp úr öllu valdi án sýni­legs til­efnis. Eftir marg­vís­legar rann­sóknir var nið­ur­staðan sú að svo­kall­aður ofans­legla­hrað­taktur væri lík­leg­asta orsökin. „Ég var þarna 34 ára og greind með nokkra sjúk­dóma sem sagðir voru ólækn­andi. Það var ákveðin tuska í and­litið.“

Við tók sorg­ar­ferli. Hún fór úr því að vera í fullri vinnu og félags­lega virk yfir í það að geta nær engu sinnt. Árið 2017 var af þessum sökum eitt það erf­ið­asta í hennar lífi. „Þá lenti ég á þessum vegg aftur og aftur.“

Alltaf stefndi hún að því að ná heilsu en í þeim til­gangi að kom­ast aftur til vinnu. Mark­miðið var ekki að ná heilsu til að líða betur. Hún seg­ist að þessu leyti vera dæmi­gerður harður Íslend­ingur, alin upp við það að sýna engan aum­ingja­skap. Kristín var þess vegna lengi að sætta sig við að fara í veik­inda­leyfi. Hún var send í end­ur­hæf­ingu hjá Þraut og spurði hvort það væri ekki upp­lagt að stunda vinnu sam­hliða henni. „Ég var í afneitun og náði ekki að taka þessu alvar­lega.“

Um leið og end­ur­hæf­ing­unni lauk fór hún aftur að vinna sem end­aði með því að hún fékk floga­köst á dag­inn, eitt­hvað sem hún hafði ekki áður fengið. Mígreni bætt­ist svo ofan á allt saman. Þá setti tauga­lækn­ir­inn niður fót­inn og sagði að hún yrði að fara í langt veik­inda­leyfi.

Kristín Bára ásamt sonum sínum, Bóasi Myrkva og Pétri Arnari. Heimiliskötturinn Eygló á sinn sess innan fjölskyldunnar.
Kristín Bára ásamt sonum sínum, Bóasi Myrkva og Pétri Arnari. Heim­il­is­kött­ur­inn Eygló á sinn sess innan fjöl­skyld­unnar.

Í byrjun árs 2018 lét hún til leið­ast, fór í leyfi frá störfum og hóf end­ur­hæf­ingu á Reykja­lundi um sum­arið. „Á þessum tíma þá gerð­ist eitt­hvað,“ segir hún. „Fyrst átti ég mjög erfitt með þetta, fannst ég ekki nógu veik til að vera á Reykja­lundi. Fannst ég vera að taka pláss frá öðrum. Og síðan átti ég mjög erfitt með að vera hjúkr­un­ar­fræð­ingur hinum megin við borðið. Ég þurfti að yfir­stíga for­dóma og hörku í minn eigin garð.“

Eftir að Kristín fór að taka veik­ind­unum alvar­lega fór hún að ein­beita sér að hlutum sem voru nær­andi fyrir hana. „Ég fór af stað inn í þetta verk­efni með það mark­mið að ná heilsu fyrir mig og mína fjöl­skyldu.“

Nú eru fimm ár frá því að hún veikt­ist. „Ég fór mjög djúpt í þetta sorg­ar­ferli, í reið­ina, afneit­un­ina og alls konar til­finn­ingar. Mér leið stundum eins og ég væri í frjálsu falli og hefði enga fall­hlíf, ég beið bara eftir því að ein­hver myndi grípa mig.“

Um leið og Kristín fór að einbeita sér að því sem nærði hennar líkama og sál fór líðanin að batna.
Um leið og Kristín fór að ein­beita sér að því sem nærði hennar lík­ama og sál fór líð­anin að batna.

Með því að gera það sem nærði lík­ama og sál fór hug­ar­farið smám saman að breyt­ast og líð­anin sömu­leiðis. „Ég fór að ein­beita mér að því sem ég gat gert í stað þess sem ég get ekki gert.“

Öll hennar veik­indi mátti rekja til vanda­mála í tauga­kerf­inu. „Það fékk mig til að pæla í hvernig ég gæti unnið með tauga­kerfið mitt. Það var ójafn­vægi í því. Ég var að lifa alltof streitu­miklu lífi þó að mér hafi aldrei fund­ist ég sér­stak­lega stressuð. Streitan bjó innra með mér, hún var krónísk og ég átt­aði mig ekki á því fyrr en ég lenti á þessum vegg. Streitan var að keyra mig í kaf. Það tekur tíma að vinda ofan af því. Ég hef þurft að end­ur­for­rita heil­ann. Búa til nýjar tauga­brautir og deyfa þær gömlu sem þjóna mér ekki lengur.“

Og þessi vinna er enn í gangi. Henni lýkur ekki þó að líð­anin hafi batnað. „Ég er loks­ins núna farin að finna ávinn­ing­inn af allri þess­ari sjálfs­vinnu.“

Í lok síðasta árs fór Kristín Bára í kennaranám í jóga nidra og núna er hún í kennaranámi í qigong.
Í lok síð­asta árs fór Kristín Bára í kenn­ara­nám í jóga nidra og núna er hún í kenn­ara­námi í qigong.

Kristín hefur stundað jóga í mörg ár en í lok síð­asta árs lét hún verða af því að fara í kenn­ara­nám í jóga nidra og núna er hún í kenn­ara­námi í qigong. Hún hlakkar til að fá tæki­færi til að miðla sinni þekk­ingu á þessu sviði til ann­arra og mun fara af stað með nám­skeið þegar nær dregur sumri.

Eitt af því sem Kristín hefur sér­stak­lega ein­beitt sér að í bata­ferl­inu er að staldra við og pæla í því af hverju hún geri það sem hún gerir, bregð­ist við hlutum eins og hún gerir og þar fram eftir göt­unum. „Hvaðan koma hugs­anir mínar? Trú á það sem virkar og virkar ekki? Ég hef kom­ist að því, og það var það mik­il­væg­asta, að hugs­anir mínar eru ekki sann­leik­ur­inn. Við erum ekki hugs­anir okkar, við erum svo miklu meira. Við erum alltof mikið á sjálf­stýr­ingu í stað þess að taka með­vit­aðar ákvarð­anir um hvernig við ætlum að lifa líf­inu. En það kemur að því að sjálf­stýr­ingin virkar ekki lengur og þá neyð­umst við til þess að líta inn á við.“

Kristín Bára hefur stundað jóga í mörg ár. Núna er hún orðin jóga nidra kennari.
Kristín Bára hefur stundað jóga í mörg ár. Núna er hún orðin jóga nidra kenn­ari.

Nánast allir sem missa heils­una fara í gegnum sorg­ar­ferli. „Það besta sem ég gerði var að ná valdi á sjálfri mér aftur. Ég varð svo varn­ar­laus og háð öðrum en um leið og ég tók valdið til mín og fór að taka ábyrgð á minni líðan og minni heilsu þá breytt­ist svo margt. Það er miklu ein­fald­ara að kenna öðrum og öðru um. En ég er lif­andi dæmi um það að þótt maður eigi við heilsu­far­s­vanda­mál að stríða sem virð­ast stundum óyf­ir­stíg­an­leg þá hefur maður vald til að gera alls konar hluti sem hjálpa manni að líða betur.“

Það getur verið átak að hefja sjálfs­vinnu og því mælir Kristín með því að byrja smátt. „Það er erfitt að inn­leiða góða vana jafn­vel þó að maður viti hvað gerir manni gott. Til að byrja með fannst mér gott að gefa sjálfri mér eitt lof­orð á dag. Byrja dag­inn á því að taka fimm djúpa and­ar­drætti, þakka fyrir það sem þú hefur í stað þess að ein­blína á það sem þér finnst vanta. Svo getur maður bætt smám saman ofan á það.“

Eitt af því sem Kristín er að æfa sig í er að hlusta á inn­sæið sitt, að taka ekki ákvarð­anir út frá for­tíð eða fram­tíð. „Allt sem við þurfum er innra með okkur sjálfum, við þurfum ekk­ert annað til að líða betur.“

Í heims­far­aldri þurfum við að standa saman og hjálp­ast að, bætir hún við. Það sé sannað að það að gefa af sér hafi góð áhrif á líðan.

Til að byggja sig upp hefur Kristín Bára gengið á fjöll og segist hafa komið sjálfri sér á óvart. Hún geti meira en hún hélt.
Til að byggja sig upp hefur Kristín Bára gengið á fjöll og seg­ist hafa komið sjálfri sér á óvart. Hún geti meira en hún hélt.

Hún ótt­ast ekki að fá bakslag við það að fara aftur að vinna í þessu mikla álagi sem fylgir far­aldr­inum. Í fyrsta lagi þurfi þátt­tak­endur í bak­varða­sveit­inni ekki að binda sig í lengri tíma og því geti hún stjórnað vinn­unni og álag­inu. „En það er líka svo mik­ill skiln­ingur, virð­ing og sam­taka­máttur til staðar, það eru allir að vinna saman. Það gefur manni svo mikið.“

Samstaða er að sögn Krist­ínar í eðli hjúkr­un­ar­fræð­inga. „Enginn fer í þetta starf án mik­illar ástríðu og hug­sjónar. Álagið er oft gríð­ar­legt og launin í engu sam­ræmi við það. Þetta er oft á tíðum ótrú­lega and­lega og lík­am­lega erfitt starf og mjög slít­andi. Þetta er ein ástæðan fyrir því að þessi starfs­stétt er útsett­ari fyrir kulnun en flestar aðrar.“

Hjúkrun geti þó verið ótrú­lega gef­andi starf, að geta hjálpað fólki, verið með því og leitt í gegnum erf­ið­ustu tíma­bil lífs­ins. „En starfið getur líka tekið mikið frá manni, sogið til sín alla orku ef maður nær ekki end­ur­heimt inn á milli vegna óhóf­legs álags.“

Kristín er hrærð og þakk­lát vegna þeirra við­bragða sem hjúkr­un­ar­fræð­ingar hafa fengið síð­ustu daga og vikur. Daglega les hún færslur á sam­fé­lags­miðlum þar sem fólk er að dásama stétt­ina og hennar góða starf. „Þetta er svo fal­legt og ég veit að allir hjúkr­un­ar­fræð­ingar kunna að meta þetta en eins og gefur að skilja þá lifa þeir sem eru í eld­lín­unni núna, í sjóð­andi heitum varn­ar­göllum heilu vakt­irnar, ekki á hrósi einu saman.“

„Hjúkr­un­ar­fræð­ingar eru magn­aðir. Það hef ég alltaf vitað, enda unnið sem slíkur og orðið vitni að öllu því merki­lega sem þetta veiga­mikla starf felur í sér. Ég hef oft reynt að koma mik­il­vægi þess­arar fag­stéttar í orð en aldrei tek­ist. Það eru ein­fald­lega ekki til nægi­lega stór orð.“

Eitt af því sem Kristín er að æfa sig í er að hlusta á innsæið sitt, að taka ekki ákvarðanir út frá fortíð eða framtíð. „Allt sem við þurfum er innra með okkur sjálfum, við þurfum ekkert annað til að líða betur.“
Eitt af því sem Kristín er að æfa sig í er að hlusta á inn­sæið sitt, að taka ekki ákvarð­anir út frá for­tíð eða fram­tíð. „Allt sem við þurfum er innra með okkur sjálfum, við þurfum ekk­ert annað til að líða betur.“

Kristín Bára segir að ástandið nú um stundir sé vita­skuld erfitt fyrir marga. Fólk sé veikt og margir kvíðnir og hræddir um ást­vini sína. Svo hafi margir einnig misst vinn­una. „Í stóra sam­heng­inu þá held ég að þetta sé harka­leg áminn­ing fyrir okkur mann­kynið að snúa okkur aftur að grund­vall­ar­at­rið­unum, því sem raun­veru­lega skiptir máli,“ segir hún.

„Neysla okkar var farin upp úr öllu valdi, við vorum jafn­vel gráðug á köflum. En hvað þurfum við raun­veru­lega? Nú þurfum við að hugsa um það. Og þetta verður til þess að við þurfum að líta inn á við. Við getum ekki lengur hlaupið frá sjálfum okkur, það er að minnsta kosti hæg­ara sagt en gert núna á tímum sam­komu­banns,“ segir hún og hlær. „Eina leiðin út er inn. Til lengri tíma gæti eitt­hvað gott og fal­legt komið út úr þessu öllu. Það er undir okkur sjálfum komið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár