Vann frá morgni til miðnættis er álagið var mest

Margir íbúa Hrafn­istu í Reykja­vík eru orðnir virk­ari en áður í starfi sem boðið er uppá innan veggja heim­il­is­ins sem hefur komið Huldu Birnu Frí­manns­dóttur, sjúkra­liða sem þar starfar, ánægju­lega á óvart.

Álag á starfs­menn Hrafn­istu í Reykja­vík jókst mikið í kjöl­far heim­sókn­ar­banns og smits starfs­manns sem þar kom upp. Hulda Birna Frí­manns­dóttir, sjúkra­liði með tæp­lega fjög­urra ára­tuga reynslu, segir íbúa öldr­un­ar­heim­il­is­ins flesta sýna ástand­inu skiln­ing. Þó að þeir hlakki til að hitta ætt­ingja og vini vilji þeir að bann­inu verði aflétt hægt og rólega.

„Ég hef það ágætt en ég hef reyndar verið að vinna rosa­lega mikið und­an­farið,“ segir Hulda Birna í sam­tali við Kjarnann. Hún er í vinn­unni en seg­ist eiga nokkrar mín­útur til að spjalla.

Hulda Birna er í fullri vinnu, tekur morgun-, kvöld- og helg­ar­vaktir á víxl og næt­ur­vaktir ef á þarf að halda.

Hvernig eru vinnu­dag­arnir þínir nú um stundir?

„Ég hef nú verið í tölu­vert meira en 100 pró­sent vinnu síð­ustu vikur. Og lík­lega síð­ustu mán­uði.“

Nokkuð mikið álag var á Laug­ar­ási fyrir far­aldur kór­ónu­veirunnar og það jókst mikið eftir að ákveðið var að setja á heim­sókn­ar­bann til að vernda íbú­ana. Einn starfs­maður greind­ist svo með COVID-19 og í kjöl­farið þurfti að setja íbúa á þeirri deild í ein­angrun og senda sam­starfs­menn heim í sótt­kví.

Hulda er ekki bundin við eina deild í sínu starfi. Hún fer á milli deilda þar sem þörfin er mest hverju sinni. Þegar allir hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir á deild­inni þar sem smitið kom upp þurftu að fara í sótt­kví og meiri­hluti ann­arra starfs­manna í aðhlynn­ingu var Hulda Birna kölluð til starfa á henni. Hún er með fram­halds­menntun í hjúkrun aldr­aðra og starfar því á hjúkr­un­ar­vöktum. Hún tók því deild­ina að sér eins og hún orðar það.

„Í um viku var ég þarna meira og minna frá átta á morgn­ana til mið­nættis,“ segir hún og hlær létt. Hún hafi því verið í 200 pró­sent vinnu þá daga. En hún vill ekki kvarta. „Góðu frétt­irnar eru þær að eng­inn íbúi reynd­ist smit­aður og eng­inn annar starfs­maður svo þetta fór allt saman eins vel og hægt var að hugsa sér.“

Eitt af þeim fjöl­mörgum verk­efnum sem Hulda Birna hefur sinnt síð­ustu vikur er að taka sýni af íbúum til að ganga úr skugga um hvort þeir séu sýktir af COVID-19. Í nokkrum til­fellum hefur komið upp grunur um slíkt og þá eru íbúar settir í ein­angrun þar til nið­ur­staða fæst. Á meðan þurfa starfs­menn reglum sam­kvæmt að sinna þeim klæddir hlífð­ar­fatn­aði. „Ég hef tekið mörg sýni í þessu húsi und­an­farið en þau hafa sem betur fer öll reynst nei­kvæð,“ segir Hulda Birna. Þá hafi hún þurft að klæð­ast gall­anum heita og seg­ist ekki getað ímyndað sér hvernig sé að vera í honum lengi í einu. „Ég myndi satt best að segja ekki vilja það.“

Hulda hefur tekið fjölmörg sýni meðal heimilisfólksins á Hrafnistu.
Hulda hefur tekið fjöl­mörg sýni meðal heim­il­is­fólks­ins á Hrafn­istu.

Hvað ertu búin að vinna lengi sem sjúkra­liði?

Hulda Birna hlær og segir svo: „Það er nú varla að ég vilji segja það upp­hátt! En það er víst síðan 1983.“

Það gera hvorki meira né minna en 37 ár. Á þeim tíma hefur Hulda Birna aflað sér mik­illar þekk­ingar og reynslu. Hún hóf störf sem sjúkra­liði á sjúkra­hús­inu á Sauð­ár­króki á sínum tíma, fór því næst á sjúkra­húsið á Blöndu­ósi og þar vann hún í tutt­ugu ár. Næstu tíu árin vann hún á öldr­un­ar­heim­il­inu Hlíð á Akureyri. Á sumrin fór hún stundum suður og vann á Hrafn­istu í afleys­ingum svo hún þekkti starf­sem­ina vel er hún hóf þar að fullu störf árið 2014. „Þegar ég sótti um starf á Hrafn­istu í gegnum netið liðu að mig minnir ekki nema svona tutt­ugu mín­útur. Þá var ég búin að fá svar og var spurð hvenær ég gæti byrjað.“

Fyrrverandi starfsmenn mættu til aðstoðar

Er far­ald­ur­inn skall á skap­að­ist auka álag á starfs­menn Hafnistu Laug­ar­áss. Hulda Birna segir að starfs­menn hafi verið hvattir til að hitta sem fæsta utan vinnu – allt í nafni ítr­ustu sótt­varna. Það hafi sumum þótt erfitt þó að allir hafi farið eftir því eftir fremsta megni.

Annað slagið hafa svo alltaf ein­hverjir starfs­menn úr öllum starfs­stéttum verið að detta tíma­bundið út vegna sótt­kvíar. Til að létta álagið á deild­inni sem lenti í sótt­kví var leitað til fyrr­ver­andi starfs­manna og þeir beðnir að koma til aðstoðar. Tölu­verður hópur gerði það og fékk þá leyfi frá sinni föstu vinnu á meðan. „Það bjarg­aði ýmsu en þetta var engu að síður mikið púslu­spil alla daga.“

Í kjöl­far heim­sókn­ar­banns­ins segir Hulda Birna að meiri ró hafi færst yfir á öldr­un­ar­heim­il­inu. „Íbúarnir tóku þessu flest allir mjög vel. Þeir vissu að þetta var gert þeim til verndar.“

Sumir eiga þó erfitt með að skilja af hverju eng­inn komi í heim­sókn, sér­stak­lega þeir sem eru með minnis­glöp. Þá hefur starfs­fólkið lagt sig fram við að róa við­kom­andi, spjalla og hug­hreysta og reyna að útskýra stöð­una. „Allt þetta er stór hluti af starfi sjúkra­liða,“ segir Hulda Birna.

Aðstand­endur hafa einnig lang­flestir tekið heim­sókn­ar­bann­inu vel og sýnt því skiln­ing. „Þeir hringja og þakka okkur fyrir að hlúa að ást­vinum sínum, að þeir séu öruggir hjá okkur og hrósa okkur fyrir að standa okkur vel við þessar skrítnu aðstæður.“

Nota spjaldtölvur til samskipta

Hulda Birna seg­ist ekki geta hugsað þá hugsun til enda ef kór­ónu­veiran hefði fengið að leika lausum hala á öldr­un­ar­heim­il­inu. Þá hefði ástandið orðið skelfi­legt.

Íbúarnir eru í sam­skiptum við sína nán­ustu í gegnum síma og rúmri viku eftir að heim­sókn­ar­bannið var sett á þá var farið að nota spjald­tölvur svo að þeir gætu séð ást­vini sína í mynd. „Í dag eru margir aðstand­endur að hafa sam­band við fólkið sitt í gegnum spjald­tölvu. Það gengur bara vel þó að gamla fólk­inu finn­ist sumu skrítið að sjá ætt­ingj­ana í svona ramma! En þetta hefur létt lund­ina hjá mörgum, ég sé það alveg.“

Hulda Birna gerir að sári.
Hulda Birna gerir að sári.

Spurð hvort hún hafi áhyggjur af and­legri heilsu íbú­anna segir hún margt hafa breyst til hins betra í starf­sem­inni sem dragi úr hættu á því. Sjúkra­þjálf­arar og iðju­þjálfar starfi nú til dæmis inni á deildum Hrafn­istu. „Þeir eru bara orðnir hluti af starf­semi deild­ar­innar.“

Boðið sé upp á leik­fimi, bíó, lestr­ar­stundir og fleira. „Það er ánægju­legt að sjá að fullt af fólki er orðið virkt, tekur þátt í því starfi sem er í boði, fólk sem áður gerði það ekki.“

Hulda Birna segir það hafa komið sér á óvart hvað allt hafi gengið vel þrátt fyrir ýmsa hnökra og miklar breyt­ingar vegna heim­sókn­ar­banns­ins. „Þetta er auð­vitað mikið inn­grip í líf fjölda fólks, snýr lífi þeirra á hvolf. Svo það er aðdá­un­ar­vert að eldra fólkið í sam­fé­lag­inu taki þessu öllu svona vel.“

Nú fer að nálg­ast sá dagur að heim­sókn­ar­banni á öldr­un­ar­heim­ili verður aflétt í skrefum. Land­læknir segir að unnið sé að útfærslu á því í sam­starfi margra stofn­ana. Hulda Birna finnur að íbú­arnir eru farnir að hlakka til að geta hitt ætt­ingja og vini utan Hrafn­istu.

„En hér tala margir um það að þetta þurfi að ger­ast hægt og rólega. Ég verð að við­ur­kenna að ég hef ákveðnar áhyggjur af því hvað muni ger­ast. Ég vona að það verði settur stífur rammi utan um þetta og þessu stýrt eins vel og hægt er til að halda áfram að verja þennan við­kvæma hóp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár