Upplifði „allskonar tilfinningar“ í byrjun faraldursins

„Það eru allir í hálf­gerðri sótt­kví heima á milli vakta,“ segir Hafdís E. Bjarna­dóttir sjúkra­liði um starfs­fólk Land­spít­al­ans. Hún sinnir því mik­il­væga starfi að sótt­hreinsa skurð­stofur og tæki og tól sem notuð eru í aðgerðum.

Ég hef það fínt þessa dag­ana en ég upp­lifði alls­konar til­finn­ingar á meðan við vorum að átta okkur á þessu ástandi,“ segir Hafdís E. Bjarna­dóttir, sjúkra­liði og tann­fræð­ingur, sem er hluti af skurð­stofuteym­inu á Land­spít­al­anum við Hring­braut. „Í upp­hafi fann ég stundum fyrir hræðslu, ég ótt­að­ist líka óviss­una sem öllu þessu fylgdi og spurði mig stöðugt hvort við værum að gera hlut­ina rétt, hvort við værum að verja okkur nógu vel.“

Hafdís starfar á deild sem kall­ast 12 C D og sinnir því veiga­mikla hlut­verki að sótt­hreinsa tæki og tól, meðal ann­ars svæf­inga­vél­arnar.

Er far­aldur COVID-19 hófst voru ýmsar aðgerða­á­ætl­anir á Land­spít­al­anum virkj­aðar. Ákveðið var að sjúk­lingum með COVID-19 yrði sinnt í Fossvogi en til vara átti að flytja sjúk­linga með COVID-19 á Hring­braut. Þegar þeim hafði fjölgað hratt er far­ald­ur­inn var að ná hámarki voru nokkrir sjúk­lingar með sjúk­dóm­inn fluttir þangað. Að auki lágu þar inni sjúk­lingar með grun um smit.

Hafdís og aðrir starfs­menn sem sinna sótt­hreinsun á Hring­braut þurftu að end­ur­skoða alla verk­ferla. Þegar voru til staðar sér­stakir ferlar fyrir skurð­að­gerðir þar sem sjúk­lingar eru með sýk­ingar en „þetta var svo nýtt og ólíkt öllu því sem við þekktum,“ segir Hafdís um fyrstu dag­ana og vik­urnar. „Þess vegna urðum við að finna nýjar leiðir. Og það tók tíma að koma öllu á hreint, hvernig útfæra ætti vinn­una.“

Þegar verk­ferl­arnir voru klárir og tryggir var Hafdísi létt og vinnan gekk vel og örugg­lega.

Hafdís er að norðan. Hún lauk sjúkra­liða­námi á Akureyri árið 1981. Hún vann að því loknu á ýmsum deildum Sjúkra­húss­ins á Akureyri áður en hún fór ásamt eig­in­manni sínum, Jóni Rafns­syni, í frekara nám til Stokk­hólms. Hafdís lærði tann­fræði og Jón var í tón­list­ar­námi. Þau bjuggu í Svíþjóð í sjö ár.

Eftir heim­kom­una vann Hafdís til skiptis sem sjúkra­liði og tann­fræð­ingur og var á tíma­bili með stofu á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Drop­laug­ar­stöðum í Reykja­vík. Tann­fræð­ingar sinna að mestu fyr­ir­byggj­andi aðgerðum s.s fræðslu, hreinsun á tann­steini, að koma í veg fyrir og stoppa sýk­ingar í tann­holdi, fest­ingum tanna og munn­holi og fleiru. Hafdís naut starfs­ins á Drop­laug­ar­stöðum með gamla fólk­inu og fannst gott að leggja sín lóð á vog­ar­skál­arnar til að við­halda tann­heilsu þeirra og þar með lífs­gæðum. „Tann­heilsa skiptir sköpum þegar kemur að því að nær­ast á efri árum sem og að dregur úr notkun verkja­lyfja. Þarna gat ég nýtt þekk­ingu mína og nám í botn,“ segir Hafdís.

Hún var svo í sam­bandi við tann­lækna og tann­smiði sem hún gat leitað til þegar þörf var á.

Hafdís við störf sín á Landspítalanum við Hringbraut.
Hafdís við störf sín á Land­spít­al­anum við Hring­braut.

En svo kom hrunið.

Þá var ákveðið að skera niður á ýmsum sviðum hjá Reykja­vík­ur­borg og meðal ann­ars þá þjón­ustu sem Hafdís hafði veitt á Drop­laug­ar­stöðum. Hún barð­ist fyrir því að fá að halda henni áfram enda hafði hún náð góðum tengslum við sína skjól­stæð­inga, meðal ann­ars fólk með heila­bilun sem á margt hvert erfitt með snert­ingu. „Ég fór til dæmis á morgn­ana inn til nokk­urra og hjálp­aði þeim sem á þurftu að halda að bursta tenn­urnar,“ rifjar hún upp.

En Hafdís varð að játa sig sigr­aða, loka stof­unni á Drop­laug­ar­stöðum og fór að starfa sem sjúkra­liði á ný, meðal ann­ars í heima­hjúkrun í um sjö ár.

Breytt um kúrs

Hafdís ákvað svo að hætta vinnu við umönnun þar sem hún var búin að vinna við það starf mjög lengi og fannst komið gott. Þannig gerð­ist það að hún fór að vinna á Land­spít­al­anum við að sótt­hreinsa verk­færi sem þar eru notuð og hreinsa skurð­stof­urnar. Á því hafði hún tölu­verða þekk­ingu bæði úr sjúkra­liða­nám­inu og tann­fræð­inni.

Í starfi Hafdísar og sam­starfs­manna hennar felst aðra vik­una það að fara inn á skurð­stofur á milli aðgerða og fjar­lægja allt sem hefur verið notað og er óhreint, til dæmis maska, slöngur og fleira. Svo er fyllt á með nýjum og hreinum hlutum. Einnig fer hún um allar stofur spít­al­ans við Hring­braut þar sem verið er að nota svæf­ing­ar­vélar til að tryggja að allt sé hreint og sótt­hreinsað.

Ein skurðstofa á Landspítalanum við Hringbraut var útbúin sérstaklega fyrir COVID-19 sjúklinga. Á efri myndinni má sjá viðbúnað starfsmanna í miðjum faraldri og á þeirri neðri stofuna tóma eftir að faraldurinn rénaði.
Ein skurð­stofa á Land­spít­al­anum við Hring­braut var útbúin sér­stak­lega fyrir COVID-19 sjúk­linga. Á efri mynd­inni má sjá við­búnað starfs­manna í miðjum far­aldri og á þeirri neðri stof­una tóma eftir að far­ald­ur­inn rén­aði.

Hina vik­una sér Hafdís um að taka á móti óhreinum verk­færum út af skurð­stof­unum og með­höndla þau rétt. Sumt fer beint inn í stórar þvotta­vélar sem eru á Hring­braut­inni en annað þarf að hand­þvo og með­höndla sér­stak­lega með ýmsum efnum og dauð­hreinsa.

Og nú í far­aldri COVID-19 hefur þurft að gæta þess út í ystu æsar að veiruna sé hvergi að finna, hvorki á tækjum eða tólum né á göngum, veggjum, í lyftum spít­al­ans og svo fram eftir göt­unum. Hafdís hefur ávallt verið und­ir­búin undir það að ein­stak­lingur sýktur af COVID þurfi á skurð­að­gerð að halda. Til þess hefur ekki komið sem betur fer en grunur um smit var hjá ein­hverjum sjúk­ling­anna og með­höndla þurfti þá á nákvæm­lega sama hátt og væru þeir smit­aðir. „Þá förum við sem þrí­fum og tökum á móti verk­færum í hlífð­ar­bún­inga,“ segir Hafdís um vinnu sína þá daga.

Skurðstofa sérstaklega fyrir COVID-smitaða

Ein skurð­stofan á 12 C D var sér­stak­lega útbúin svo að hægt væri að sinna þar sjúk­lingum með COVID. Inni á henni er reynt að hafa aðeins það sem nauð­syn­legt er fyrir hverja aðgerð. Ef eitt­hvað vantar er það flutt inn á stof­una í gegnum sér­stakan skáp.

„Þegar tekið er á móti verk­færum út af skurð­stofu eftir svona aðgerðir þarf að fara mjög var­lega,“ segir Hafdís. „Það þarf að færa þau beint inn í þvotta­vél sem þvær á miklum hita með sápu sem drepur veiruna. Á leið­inni frá skurð­stof­unni og inn í vél­ina þarf að gæta þess að verk­færi sem mögu­lega eru sýkt komi ekki nærri neinu öðru.“

Hafdís að undirbúa skurðstofu fyrir næstu aðgerð.
Hafdís að und­ir­búa skurð­stofu fyrir næstu aðgerð.

Eftir aðgerð er skurð­stof­unni lokað og ekk­ert er tekið fram strax. Bíða þarf í hálf­tíma eftir að loftið setj­ist og hreins­ist. Þá má Hafdís fara inn á stof­una, alklædd hlífð­ar­bún­aði, og sækja það sem þarf að sótt­hreinsa og henda öðru.

Verkfæri sem þarf að þrífa koma út af skurð­stof­unni í lok­uðum pokum. „Það verður að tryggja að eng­inn hlekkur í keðj­unni fari í sundur svo að veiran, sé hún til staðar, sleppi ekki út. Út á þetta gengur allt okkar starf og allir okkar verk­ferlar.“

Sjúklingar eltir af ræstingarfólki með spritt

Nokkrum sinnum þurfti að flytja sjúk­linga með COVID-19 af gjör­gæsl­unni og á röntgen­deild­ina. Sú leið liggur í gegnum hluta skurð­stofu­gangs­ins. „Þá þarf að loka gang­inum, taka allt út sem hægt er að taka út og breiða yfir hluti sem ekki er hægt að fjar­lægja. Ræst­ing­ar­fólkið þarf að fara á eftir sjúk­lingnum og þrífa alla veggi og gólf með sótt­hreins­andi efnum jafn­óðum, bæði á leið hans á röntgen­deild­ina og aftur upp á gjör­gæsl­una.“

Til að byrja með var að mörgu að huga að sögn Hafdísar. „Við héldum til dæmis að við þyrftum að taka hluta úr svæf­ing­ar­vél­unum eftir hvern sjúk­ling og þvo, þurrka og setja í dauð­hreinsi­ofn og setja svo aftur saman. Við vorum byrjuð að gera þetta. En mik­ill léttir varð þegar kom í ljós, eftir sam­tal við fram­leið­anda erlendis, að það þurfti ekki að gera þetta. Þetta var gríð­ar­leg vinna og tíma­frek, en nú kunnum við þetta alla vega,“ segir hún og hlær.

Almenn sótt­hreinsun á veggjum, hurðum og öðru er ávallt mikil á sjúkra­húsum en hefur verið enn meiri núna. „Það eru margir lítr­arnir af spritti sem hafa verið not­aðir síð­ustu vik­urnar,“ segir Hafdís.

Verk­ferl­arnir hafa allir slíp­ast til og nú gengur Hafdís ótta­laus og örugg til verka hvern dag. Álagið hefur verið öðru­vísi og meira en „við höfum ráðið vel við það, allt gengur eins og smurð vél. Við höfum líka sloppið við veik­indi meðal starfs­fólks­ins. Mér finnst mjög ein­kenn­andi hvað það er mikil sam­staða og sam­vinna á milli allra sem vinna á deild­inni. Allir hafa passað sig, eru ekki í sam­neyti við aðra en sína nán­ustu utan vinnu. Það eru allir í hálf­gerðri sótt­kví heima á milli vakta.“

Sjálf hefur Hafdís fáa hitt utan vinnu að und­an­förnu og segir sam­skipti fara að mestu fram í gegn um síma og mynd­sím­töl. „Barna­börnin eru ofboðs­lega von­svikin að fá ekki að knúsa okkur og við söknum öll fjöl­skyldumat­ar­boð­anna. En maður tekur þetta ástand alvar­lega og vill að allt gangi upp því maður er einn hlekkur í þessu öllu. Ef maður er kæru­laus getur það haft vondar afleið­ingar fyrir svo marga,“ segir hún og bætir svo við: „En mikið hlakka ég til að geta farið að knúsa og kyssa börnin og barna­börnin aftur.“

Vinnan hefur verið í forgangi hjá Hafdísi eins og fjölmörgum öðrum heilbrigðisstarfsmönnum síðustu mánuði.
Vinnan hefur verið í for­gangi hjá Hafdísi eins og fjöl­mörgum öðrum heil­brigð­is­starfs­mönnum síð­ustu mán­uði.

Ekki þurfti að fjölga í hópi starfs­manna sem sinna sótt­hreins­un­inni á Hring­braut þar sem ákveðið var að skipta þeim í tvo hópa til að minnka líkur á smiti og sótt­kví.

Í næstu viku stendur til að hefja val­kvæðar skurð­að­gerðir á nýjan leik en þeim var frestað vegna far­ald­urs­ins. Það þýðir þó ekki að Hafdís og aðrir sem vinna á skurð­stof­unum þurfi að slaka á sótt­hreins­un­inni og því að gæta ann­arra sótt­varna til hins ítrasta. „Svo við munum ennþá reyna að halda tveggja metra regl­unni og þar fram eftir göt­unum,“ segir Hafdís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár