Veikindi virðast minnka þegar samfélagið róast

Þegar ró fær­ist yfir sam­fé­lagið vegna banka­hruns eða sam­komu­banns virð­ast færri veikj­ast alvar­lega. Mikið álag hefur verið á gjör­gæslum Land­spít­ala vegna COVID-19 og þó að farið sé að draga úr því mun starfs­fólk ekki kveðja varn­ar­bún­ing­ana í bráð.

Það er farið að róast tals­vert hjá okkur eftir mikið álag síð­ustu daga og vikur,“ segir Sig­ur­bergur Kárason, yfir­læknir gjör­gæslu­lækn­inga, á Land­spít­al­anum við Hring­braut í sam­tali við Kjarnann.

Starf­semin á deild­inni hefur verið tví­skipt að und­an­förnu. Annars vegar er hópur sem sinnir sjúk­lingum með COVID-19 og hins vegar þeir sem sinna öðrum sem þurfa á gjör­gæslu­með­ferð að halda. COVID-smit­aðir liggja í sér­stöku rými og starfs­fólkið sem þeim sinnir er klætt í hlífð­ar­búnað frá toppi til táar. Með þessum aðgerðum er reynt að tryggja að sem fæstir í hópi starfs­manna verði útsettir fyrir smiti.

Eftir stórar skurð­að­gerðir þurfa alltaf ein­hverjir á gjör­gæslu­með­ferð halda, til dæmis þeir sem geng­ist hafa undir hjarta­að­gerðir og kvið­ar­hols­að­gerðir. Í upp­hafi var stefnt að því að COVID-19 sjúk­lingum yrði sinnt á Land­spít­al­anum í Fossvogi en fljót­lega eftir að álagið tók að aukast og það stefndi í að deildir sem helg­aðar voru þeim sjúk­ingum myndu fyll­ast, var ákveðið að færa nokkra þeirra niður á Hring­braut. Alltaf hafði þó verið gert ráð fyrir því að til þessa gæti komið eftir því sem far­sótt­inni myndi vinda fram eða ef sjúk­lingur þyrfti að fara í hjarta- og lungna­vél og starfs­fólkið því undir það búið.

Fjórir sjúk­lingar með COVID-19 hafa verið í gjör­gæslu­með­ferð á Hring­braut­inni. Tveir þeirra hafa losnað af önd­un­ar­vél en eru enn á gjör­gæslu. „Við sjáum núna að farið er að draga úr far­sótt­inni og við förum nú smám saman að trappa aftur upp hefð­bundna starf­semi,“ segir Sig­ur­bergur.

Færri þurfa hefðbundna gjörgæslumeðferð

Hann segir að á meðan far­aldr­inum hefur staðið hafi þeim fækkað sem þurfa á „hefð­bund­inni“ gjör­gæslu­með­ferð að halda. „Það er ekki fylli­lega skýrt af hverju það er en þetta virð­ist vera að ger­ast víðar en hér á landi. Þegar það róast allt í sam­fé­lag­inu virð­ist sem veik­indi minnki.“

Dregið hefur verið úr aðgerðum á spít­al­anum, fyrir utan bráða­að­gerðir, og þar með hefur álag á gjör­gæsl­una minnkað að ein­hverju leyti. Þá hefur sótt­kví og ein­angrun vegna nýju kór­ónu­veirunnar einnig áhrif á útbreiðslu ann­arra bakt­ería og veira meðal fólks.

Sig­ur­bergur segir að það sama hafi gerst í banka­hrun­inu, um leið og hægð­ist á þjóð­fé­lag­inu fækk­aði þeim sem þurftu gjör­gæslu­með­ferð. „Það á sér sjálf­sagt ýmsar skýr­ingar, meðal ann­ars þá að umferð minnkar og þá fækkar slysum, svo dæmi sé tekið.“

Felix Valsson (t.v.) og Sigurbergur Kárason á leið inn á stofu fyrir COVID-sjúklinga á gjörgæsludeildinni við Hringbraut.
Felix Valsson (t.v.) og Sig­ur­bergur Kárason á leið inn á stofu fyrir COVID-sjúk­linga á gjör­gæslu­deild­inni við Hring­braut.

Í upp­hafi árs, þegar fréttir tóku að ber­ast af skæðum veiru­far­aldri í Kína, sperrti Sig­ur­bergur eyrun eins og flestir. Hann fylgd­ist náið með því hvernig ástandið þró­að­ist þar og þegar veiran tók að grein­ast í öðrum löndum. Það lá þó að hans mati ekki endi­lega í augum uppi í byrjun að um heims­far­aldur yrði að ræða. Vel tókst að hemja útbreiðslu SARS-far­ald­urs­ins árið 2003 og komið var í veg fyrir að hann breidd­ist út um allan heim.

Svína­in­flú­ensan árið 2009 varð útbreidd­ari en SARS en hins vegar var hægt að bólu­setja fyrir henni. Sig­ur­bergur var að vinna á gjör­gæslu­deild­inni í Fossvogi er sú pest geis­aði. „Það var tals­vert öðru­vísi en núna. Þá ein­angr­uðum við sjúk­ling­ana eins og nú en starfs­fólkið þurfti ekki að verja sig með sama hætti og núna. Það fékk bólu­setn­ingu og hún virk­aði vel.“

Það er að ákveðnu leyti flókið að sinna sjúk­lingum með COVID-19. Til þess þarf fleiri starfs­menn en oft­ast undir hefð­bundnum kring­um­stæðum á gjör­gæsl­unni. „Sjúk­dóm­ur­inn setur það starfs­fólk sem sinnir sjúk­lingum í hættu og þess vegna þarf það að vera í miklum hlífð­ar­bún­aði,“ útskýrir Sig­ur­bergur. Það er með sér­staka grímu fyrir and­lit­inu eða gler­augu, í hlífð­arslopp og með hanska. „Þessi bún­aður gerir það að verkum að öll vinna í kringum sjúk­ling­inn verður þyngri og erf­ið­ari og skipta þarf um áhöfn oftar.“

Sig­ur­bergur segir að eng­inn sjúk­lingur með stað­fest smit hafi þurft á aðgerð að halda á Land­spít­al­anum við Hring­braut en hins vegar hafi fólk með grun um smit farið í aðgerð. „Þá var ítr­asti við­bún­aður við­hafður.“

Svo eru vissir þættir í gjör­gæslu­með­ferð­inni sem auka enn á smit­hættu, „sér­stak­lega þegar unnið er með önd­un­ar­veg­inn,“ segir Sig­ur­bergur. Þegar sjúk­lingar þurfa að fara í önd­un­ar­vél þarf að barka­þræða þá. „Þá er hætta á því að sá sem það gerir fái á sig mikið sýkla­magn. Eins þegar soga þarf í kok eða barka.“

Það þurfa margir starfsmenn að hugsa um hvern og einn COVID-sjúkling. Á myndinni er Sigurbergur lengst til vinstri. Mynd: Tómas Guðbjartsson
Það þurfa margir starfs­menn að hugsa um hvern og einn COVID-sjúk­ling. Á mynd­inni er Sig­ur­bergur lengst til vinstri. Mynd: Tómas Guð­bjarts­son

Sú lungna­bólga og önd­un­ar­bilun sem COVID-sjúk­lingar fá er að sögn Sig­ur­bergs nokkuð frá­brugðin þeirri sem að jafn­aði er glímt við á gjör­gæslu. Þetta hefur kallað á aðeins aðrar áherslur en gjarnan er beitt. Sjúk­lingar með COVID-19 eru þannig oft lagðir á grúfu og útönd­un­ar­þrýst­ingi í önd­un­ar­vél­inni haldið til­tölu­lega háum til að bæta loft­skipti.

Grúfu­lega er árang­urs­rík því þegar sjúk­lingar liggja á mag­anum opn­ast betur lungna­blöðrur aftan til í lung­unum sem hafa fallið saman meðan legið var á bak­inu og nýt­ast því betur til loft­skipta. Í þeirri stöðu skap­ast einnig betra hlut­fall milli loft­flæðis og blóð­flæðis í lung­unum, að sögn Sig­ur­bergs. „Að leggja sjúk­ling í önd­un­ar­vél á grúfu er flókn­ara en það hljómar. Margar slöngur eru tengdar við sjúk­ling­inn og það skap­ast aukin hætta á að þær tog­ist út og einnig geta blóð­rás og öndun orðið óstöðug. Þetta þýðir að það þarf hóp sam­taka starfs­manna til að sinna þessum snún­ingum.“

Sjúk­ling­arnir eru hafðir á grúfu í um sextán tíma en svo færðir yfir á bakið í um átta klukku­tíma. Þessi aðferð er svo end­ur­tekin jafn­vel í nokkra daga.

Grúfu­lega er ekki aðeins notuð þegar sjúk­lingar með COVID eru komnir á gjör­gæslu. Hún hefur einnig komið að gagni á fyrri stigum sjúk­dóms­ins.

Enn er heim­sókn­ar­bann á gjör­gæslu­deildir Land­spít­al­ans og aðstand­endur geta því ekki heim­sótt ást­vini sína sem eru í með­ferð á deild­inni, hvort sem þeir eru smit­aðir af COVID eða dvelja þar af öðrum ástæðum. „Fólk hefur sýnt því mik­inn skiln­ing,“ segir Sig­ur­bergur. „Aðstand­endur átta sig á að heim­sókn­ar­bannið er bæði til að verja þá sjálfa og starfs­fólk og sjúk­linga spít­al­ans.“

Hringt er reglu­lega í aðstand­endur og þeim gefnar upp­lýs­ingar um ástand og líðan ást­vina sinna. „Þetta fyr­ir­komu­lag hefur gengið vel satt að segja.“

Framhaldið er óljóst

Sig­ur­bergur segir að und­ir­bún­ingur vegna yfir­vof­andi far­ald­urs hér á landi hafi haf­ist snemma á Land­spít­al­anum. Spít­al­inn hafi því verið til­bú­inn að takast á við far­sótt­ina þegar hún kom hingað upp úr miðjum febr­úar. „Ef þessi und­ir­bún­ingur hefði ekki átt sér stað þá hefðum við verið í erf­iðum málum. En það má auð­vitað segja það sama um öll heil­brigð­is­kerfi heims­ins nú um stundir.“

„Það er heldur rólegra yfir vötnum núna en var fyrir rúmri viku síðan,“ segir Sig­ur­bergur um álagið á gjör­gæsl­unni við Hring­braut í augna­blik­inu. En áfram þarf að vera í við­bragðs­stöðu.

Næstu skref und­ir­bún­ings fel­ast einmitt í því; að halda áfram að verja sjúk­linga og starfs­menn spít­al­ans, þó að veru­lega hafi dregið úr fjölda smita. „Fram­haldið er nokkuð óljóst á þess­ari stundu. Mótefna­mæl­ingar munu von­andi varpa ljósi á hversu útbreitt sam­fé­lags­smitið er og hvernig við getum þá hagað okkar starf­semi hér á spít­al­anum með skyn­sam­legum hætti til að minnka líkur á smiti.“

Sigurbergur segir að allt starfsfólkið haldi ró sinni þrátt fyrir þessar óvenjulegu aðstæður.
Sig­ur­bergur segir að allt starfs­fólkið haldi ró sinni þrátt fyrir þessar óvenju­legu aðstæður.

Sig­ur­bergur og aðrir starfs­menn gjör­gæslu­deilda eru ekki að fara að kveðja varn­ar­bún­að­inn nærri því strax. Bráðlega verður farið að kalla fólk inn í aðgerðir á sjúkra­hús­inu, aðgerðir sem settar voru á bið á meðan far­ald­ur­inn stóð sem hæst. Leggja þurfi áherslu á að kom­ast að því hvort að þessir sjúk­lingar séu hugs­an­lega smit­aðir áður en þeir eru teknir í aðgerðir.

Heil­brigðs­starfs­fólk hefur und­an­farnar vikur verið undir gríð­ar­legu álagi vegna hins nýja sjúk­dóms. „Allir halda ró sinni,“ svarar Sig­ur­bergur spurður um hvernig starfs­fólki á spít­al­anum líði við þessar óvenju­legu aðstæður. „Við erum ein­fald­lega að takast á við þetta sem verk­efni og fylgjum vissum reglum sem gilda og miða að því að verja okkur fyrir smiti. Það eru allir á varð­bergi gagn­vart smiti en ég held að fólk upp­lifi sig samt ekki í hættu eða finn­ist það óör­uggt. Allar starfs­stéttir á sjúkra­hús­inu hafa verið mjög sam­taka í þess­ari bar­áttu, starfsand­inn er mjög góður og okkur finnst þetta hafa gengið vel. Hér hefur ekki skap­ast alvar­legt krísu­á­stand en auð­vitað verið erfitt á tíma­bilum.“

Sig­ur­bergur líkt og margir aðrir í sam­fé­lag­inu heldur því í lág­marki að hitta aðra en sína nán­ustu fjöl­skyldu. „Við erum svo heppin að vinna hér mörg saman svo að ég á í miklum sam­skiptum við mína sam­starfs­menn þó að við gætum þess að sjálf­sögðu að halda tveggja metra fjar­lægð okkar á milli þegar við hitt­umst á göng­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár