Koma gangandi inn á gjörgæslu eftir að hafa verið marga daga í öndunarvél

„Eitt af því sem ég minn­ist sér­stak­lega þegar ég lít til baka er hvað allir voru hræddir,“ segir Þóra Gunn­laugs­dóttir, aðstoð­ar­deild­ar­stjóri á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans. Hún segir magnað að fá fólk sem veikt­ist alvar­lega í heim­sókn á deild­ina.

Á gjör­gæslum dvelja aðeins þeir sem eru alvar­lega veikir. Oft mjög alvar­lega. Eru jafn­vel í lífs­hættu. Sérhæft starfs­fólk sinnir þeim, fólk sem er vant að fást við erfið og flókin verk­efni á borð við hópslys. Í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum var gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans í Fossvogi helguð þeim sem höfðu sýkst af veirunni og veikst af algjör­lega nýjum sjúk­dómi: COVID-19. Allir þurftu að læra hratt – nýjar upp­lýs­ingar bár­ust nán­ast dag­lega. Þeir sem lögð­ust inn voru hræddir. Höfðu heyrt frétt­irnar að utan um örlög margra sem þurftu að fara í önd­un­ar­vél.

Nú er tölu­vert síðan að síð­asti sjúk­ling­ur­inn sem fékk COVID-19 var útskrif­aður af deild­inni. Í nógu hefur þó áfram verið að snú­ast – eins og venjan er á gjör­gæslu­deild.

„Ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa þessu,“ segir Þóra Gunn­laugs­dóttir, aðstoð­ar­deild­ar­stjóri gjör­gæsl­unnar í Fossvogi, spurð um hvernig ástandið hafi verið á hennar vinnu­stað er far­ald­ur­inn stóð sem hæst. Vinnu­dag­arnir voru langir, oft­ast vann Þóra sex daga í viku í 10-12 tíma í senn. Hún fór nokkrum sinnum í hlífð­ar­bún­ing­inn mikla og inn á stofur til sjúk­ling­anna en aðal­lega var hún í skipu­lagn­ingu á starfi deild­ar­innar á þessum óvenju­legu tímum. „Ég kom að því að opna í raun­inni aðra gjör­gæslu­deild þegar ákveðið var að fjölga rúmum. Daglega var ég svo í því hlut­verki að passa að allir starfs­menn fengju sína hvíld og leysti þá af á meðan.“

Uppúr stendur hvað allir lögðu sig fram. Hvað allir stóðuð saman. Og hvað allir voru ákveðnir í að gera sitt besta og kom­ast í gegnum þetta. „Það voru allir starfs­menn í ákveðnum bar­átt­ugír,“ rifjar Þóra upp. „Við stóðum saman í þessu. Fólk mætti til­búið í slag­inn á hverjum degi – til­búið í hvað sem var. Þannig var stemn­ingin í hópnum. Hún var mjög sér­stök.“

Með góðu og öfl­ugu skipu­lagi tókst að sögn Þóru að manna vaktir þó að nokkra daga hafi deildin verið yfir­full. Á sama tíma var nýtt fólk úr bak­varða­sveit­inni að hefja störf og þurfti aðlögun og vanir hjúkr­un­ar­fræð­ingar urðu því að vera lengur í hlífð­ar­bún­ingnum en ákjós­an­legt var. „En þessa daga komu lækn­arnir sterkir inn og leystu hjúkr­un­ar­fræð­ing­ana, sem alla jafna eru meira við sjúkra­rúmin, af þegar þurfti,“ segir Þóra. „Þeir pössuðu líka upp á það að við fengjum næga hvíld. Það voru hrein­lega allir sam­taka í öllu.“

Þóra var aðallega í skipulagsvinnu á deildinni í faraldrinum en þurfti einnig stundum að fara í hlífðarbúninginn og sinna sjúklingum með COVID-19.
Þóra var aðal­lega í skipu­lags­vinnu á deild­inni í far­aldr­inum en þurfti einnig stundum að fara í hlífð­ar­bún­ing­inn og sinna sjúk­lingum með COVID-19.

Þetta var ný veira, nýr sjúk­dómur og mikil óvissa. Það þurfti að stækka deild­ina og bæta við starfs­fólki með hraði. En að mati Þóru tókst þetta allt vel. „Allir sem lögðu hönd á plóg stóðu sig vel, hvor sem það voru smið­irnir, raf­virkjarnir, ræst­ing­ar­fólkið, lyfja­tækn­arnir og lyfja­fræð­ing­arnir, sjúkra­þjálf­arar, þeir sem sáu um birgða­málin... Allir!“

Örvænting í augum fólks

Þegar síð­asti sjúk­ling­ur­inn var útskrif­aður af gjör­gæslu­deild­inni í lok apríl var haldið upp á tíma­mótin með vöfflu­kaffi. Þóra stóð þá við vöfflu­járnið og fann fyrir tölu­verðum létti. „En ég held að við séum flest enn á þeim stað að gera okkur grein fyrir að þetta er ekki endi­lega alveg búið. Það gætu lagst inn fleiri vegna COVID. Auðvitað vona allir að svo verði ekki. Vegna fólks­ins sem veik­ist. Þessi sjúk­dómur er alvar­legur. Ég sá oft örvænt­ing­una í aug­unum á sjúk­ling­unum sem vissu að þeir voru að fara í önd­un­ar­vél. Það voru svo hræði­legar fréttir búnar að ber­ast að utan um örlög fólks sem þurfti á þannig með­ferð að halda. Eitt af því sem ég minn­ist sér­stak­lega þegar ég lít til baka er hvað allir voru hræddir. Það var og er svo mikil óvissa með þennan sjúk­dóm.“

Þóra bakar vöfflur til að fagna þeim tímamótum að síðasti sjúklingurinn sem fengið hafði COVID var útskrifaður.
Þóra bakar vöfflur til að fagna þeim tíma­mótum að síð­asti sjúk­ling­ur­inn sem fengið hafði COVID var útskrif­aður.

Tíu hafa lát­ist hér á landi vegna COVID-19. Sjö þeirra lét­ust á Land­spít­al­anum . 27 voru lagðir inn á gjör­gæslu­deild með sjúk­dóm­inn og þurftu fimmtán að fara í önd­un­ar­vél. „Miðað við þær upp­lýs­ingar sem við höfðum fengið frá Kína, Ítalíu og víðar þá und­ir­bjuggum við okkur undir það versta. Við héldum að þetta yrði erf­ið­ara – að fleiri myndu deyja. En svo voru svo margir sjúk­lingar okkar sem komust í gegnum þetta. Og þeir hafa nokkrir komið að heim­sækja okkur.“

Venju sam­kvæmt eru þeir sem dvalið hafa á gjör­gæslu­deild boð­aðir í við­töl eftir útskrift. Þeim er þá einnig boðið að skoða deild­ina. „Og nú höfum við fengið til okkar í heim­sókn fólk sem veikt­ist af COVID, fólk sem var fleiri daga í önd­un­ar­vél. Það hefur verið ótrú­legt að sjá þau koma gang­andi inn á deild­ina eftir allt sem á undan er gengið.“

Þóra segir það alltaf til­finn­inga­þrungna stund þegar fyrr­ver­andi skjól­stæð­ingar koma í heim­sókn en núna gekk yfir heims­far­aldur og til­finn­ing­arnar jafn­vel enn sterk­ari en oft áður. „Þetta var svo óvenju­legt – að öllu leyti. Að sjá þetta fólk sem hefur náð sér eftir þessi alvar­legu veik­indi... það er bara magnað.“

Þóra í flutningshylki sem notuð voru til að flytja sjúklinga með COVID-19. Hún þurfti að fara á námskeið um notkun þess.
Þóra í flutn­ings­hylki sem notuð voru til að flytja sjúk­linga með COVID-19. Hún þurfti að fara á nám­skeið um notkun þess.

Í miðjum far­aldr­inum voru í gangi kjara­við­ræður milli rík­is­ins og hjúkr­un­ar­fræð­inga. Stéttin fann mik­inn með­byr og stuðn­ing alls staðar að úr sam­fé­lag­inu enda hlut­verk þeirra í fram­línu­sveit­inni aug­ljóst. Samn­ingar náð­ust en þeir voru síðar felldir í atkvæða­greiðslu. Áfram héldu við­ræður en til verk­falls var boðað og átti það að hefj­ast síð­asta mánu­dag. Um helg­ina sam­þykktu samn­inga­nefnd­irnar hins vegar miðl­un­ar­til­lögu rík­is­sátta­semj­ara og verk­falli var í kjöl­farið aflýst. Í til­lög­unni felst að gerð­ar­dómur mun úrskurða um launa­lið kjara­samn­ings­ins. En áður en að til þess kemur þurfa félags­menn Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga að greiða atkvæði um til­lög­una. Og sú atkvæða­greiðsla stendur nú yfir.

Enn að hugsa málið

Þóra seg­ist enn vera að gera upp við sig hvernig hennar atkvæði muni falla. „Mér finnst aug­ljóst að ríkið vill ekki leið­rétta okkar laun í sam­ræmi við aðrar háskóla­mennt­aðar stéttir sem hjá því vinna,“ segir hún og vísar þar til útreikn­inga kjara­ráðs stétt­ar­fé­lags­ins um að laun hjúkr­un­ar­fræð­inga séu um 10 pró­sent lægri en ann­arra stétta með sam­bæri­lega menntun. „Þegar birtar eru fréttir um okkar laun eru það oft með­al­tals­laun stétt­ar­innar með öllum auka­vöktum og jafn­vel stjórn­endur hafðir þar með. Það gefur auð­vitað ekki skýra mynd af dag­vinnu­launum, hjá til dæmis hjúkr­un­ar­fræð­ingum sem vinna á göngu­deildum og heilsu­gæslu­stöðvum. Hjá fólki sem hefur ekki kost á yfir­vinnu. Það á ekki að vera þannig að fólk þurfi að stóla á yfir­vinnu til að eiga í sig og á.“

Þóra með börnunum sínum á dýrmætum frídegi í miðjum faraldri.
Þóra með börn­unum sínum á dýr­mætum frídegi í miðjum far­aldri.

Þóra hefur rætt málið við sína sam­starfs­menn og segir skiptar skoð­anir á stöð­unni sem upp er komin. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar hafa verið samn­ings­lausir lengi. Og vinnu­fyr­ir­komu­lag þeirra er mis­jafnt. Margir hverjir vinna mikla vakta­vinnu – á dag­inn, kvöldin, nótt­unni og um helgar. Það kom glögg­lega í ljós í far­aldr­inum.

Hún bendir á að hjúkr­un­ar­fræð­ingar á Norð­ur­lönd­unum hafi fyrir tals­vert löngu náð fram stytt­ingu vinnu­vik­unnar en sam­bæri­leg kjara­bót hafi ekki enn náðst hér á landi. Hún vill að þung vakta­vinna á borð við þá sem hjúkr­un­ar­fræð­ingar á mörgum deildum Land­spít­al­ans vinna verði end­ur­metin.

Þó að engir sjúk­lingar með COVID-19 liggi nú á Land­spít­al­anum eru verk­efnin mörg og ærin. „Í umræð­unni fyrir verk­fallið var fyrst og fremst rætt um sýna­tökur. Eins og það væri okkar mik­il­væg­asta starf að taka sýni af ferða­mönnum. Það næstum því gleymd­ist allt hitt sem við gerum.“

Þóra er búsett í Hafn­ar­firði. Hún lauk námi í hjúkr­un­ar­fræði árið 2006 og fór svo í meist­ara­nám í stjórnun í heil­brigð­is­þjón­ustu við Háskól­ann á Bifröst. Því lauk hún árið 2010. Í haust hefur hún starfað á gjör­gæslu­deild­inni í Fossvogi í fjögur ár. „Land­spít­al­inn er mik­ill lær­dómsvinnu­staður. Þar er maður aldrei einn í erf­iðum aðstæðum. Það leggj­ast allir á eitt í verk­efn­unum, hjálp­ast að við að finna lausnir. Þessi sam­staða og sam­vinna sýndi sig svo vel í far­aldr­inum. Þá vorum við að læra eitt­hvað nýtt á hverjum ein­asta degi.

Núna er ég að kom­ast aðeins yfir þetta og ég var að byrja í sum­ar­fríi. Ég er fegin að vera komin í frí. Þetta hefur verið erf­iður vetur. Allt frá jan­úar til maí var erfitt.“

Hún ætlar að reyna að slaka vel á í frí­inu – þótt hún fari ekki til Spánar eins og til stóð. „Gjör­gæslan er þung deild,“ útskýrir hún, spurð um álagið á deild­inni í sumar. „Það tekur margar vikur fyrir afleys­inga­fólk að koma sér inn í starfið. Föstu starfs­menn­irnir þurfa því að hlaupa hraðar á meðan sam­starfs­menn taka sín frí.“

Þóra og Gígja Hrund hjúkrunarfræðingur á gjörgæslunni skömmu áður en fyrsti sjúklingurinn með COVID var fluttur þangað.
Þóra og Gígja Hrund hjúkr­un­ar­fræð­ingur á gjör­gæsl­unni skömmu áður en fyrsti sjúk­ling­ur­inn með COVID var fluttur þangað.

Vinnu­á­lagið í far­aldr­inum fór mis­jafnt í starfs­fólkið. Starfs­fólkið sem þó er vant að takast á við erfið og flókin verk­efni – eins og hópslys og far­sóttir á borð við svínaflensu. Sérstakt teymi innan spít­al­ans, stuðn­ings- og ráð­gjafateymið, sem hefur það hlut­verk að gæta að líðan starfs­manna, hélt fundi með þeim og einnig var hverjum og einum boðið að koma í ein­stak­lings­við­tal. „Vakt­irnar voru mis­erf­iðar og það gat verið erfitt fyrir fólk að vera í hlífð­ar­bún­ingnum,“ svarar Þóra spurð hvort að hún telji að ein­hver eft­ir­köst verði af álag­inu í kringum hápunkt far­ald­urs­ins. „Það gæti orðið erfitt fyrir marga að fara aftur í bún­ing­inn, ef til þess kemur. Þá gætu vaknað ein­hverjar til­finn­ingar. Við höfum vissu­lega unnið í mjög erf­iðum aðstæðum áður en þessar voru svo sér­stakar.“

Búningarnir ennþá til taks

Gjör­gæslan ber þess enn sýni­leg merki að hafa verið þunga­miðjan í með­höndlun sjúk­linga með COVID hér á landi. Þar eru enn uppi milli­veggir sem not­aðir voru til að stúka deild­ina af. Ekki stendur til að taka þá niður alveg strax. Starfs­fólkið er enn undir það búið að taka á móti fleiri sjúk­lingum með sjúk­dóm­inn. „Við erum ekki búin að pakka öllu saman,“ segir Þóra. „Við erum með hlífð­ar­bún­að­inn allan til taks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár