Flaug suður og tók tíu vaktir á níu dögum á gjörgæsludeild

Þegar Arna Rut O. Gunn­ars­dóttir sá bak­varða­sveit heil­brigð­is­kerf­is­ins aug­lýsta ákvað hún strax að skrá sig. Arna er búsett á Akureyri en fór suður til vinnu á gjör­gæsl­unni. „Þetta var alveg svaka­legt ástand,“ segir hún um fyrstu vinnu­lot­una.

Nei þú vaktir mig ekki, en ég er reyndar nývöknuð,“ segir Arna Rut O. Gunn­ars­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur þegar hún svarar í sím­ann laust eftir hádegi. Það var þó hvorki leti né væru­kærð sem dró hana að rúm­inu á þessum tíma sól­ar­hrings. Þvert á móti. Hún er í bak­varða­sveit heil­brigð­is­kerf­is­ins, var á vakt á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans í Fossvogi nótt­ina áður og flaug svo beint eftir hana heim til Akur­eyrar. Hún hafði því aðeins náð þriggja tíma dúr í rúm­inu sínu í fyrsta sinn í langan tíma. „Ég er búin að vinna tíu vaktir á níu dögum. Svo já, ég neita því ekki að ég er lúin. Ég þurfti aðeins að kúpla mig út og sjá börnin.“

Arna Rut er fædd, upp­alin og búsett á Akureyri. Hún útskrif­að­ist úr hjúkr­un­ar­fræði árið 2008 og hóf þegar störf á gjör­gæslu­deild Sjúkra­húss­ins á Akureyri. Tveimur árum síðar fór hún í fram­halds­nám í svæf­inga­hjúkrun sem hún lauk árið 2012. Næstu árin vann hún á svæf­inga­deild sjúkra­húss­ins en einnig á gjör­gæsl­unni þegar á þurfti að halda.

Í lok árs­ins 2018 lét hún af störfum á spít­al­anum og fór í árs leyfi. Er því lauk hafði hún gert upp hug sinn: Hún ákvað að skipta um starfs­vett­vang – að minnsta kosti tíma­bundið. Hún hóf störf hjá fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Tengir þar sem hún starfar enn í dag.

Nokkrir þættir urðu til þess að Arna hætti að vinna sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur.

Hún og eig­in­maður hennar, lög­reglu­mað­ur­inn Ólafur Tryggvi Ólafsson, eiga fjóra syni. Sá yngsti er með litn­ingagalla sem hefur áhrif á hann bæði lík­am­lega og and­lega. Hann sefur mjög oft illa vegna verkja og Arna segir það oft hafa verið erfitt að mæta vansvefta til vinnu eða eiga ekki kost á að leyfa honum að sofa lengur eftir erf­iða nótt. „Svo hafði ég tæki­færi á annarri vinnu með meiri sveigj­an­leika og betri launum. Auðvitað spil­aði það líka inn í.“

Arna var stödd ásamt fjöl­skyldu sinni á Tenerife í mars er ljóst varð að grípa þyrfti til mik­illa aðgerða víða um heim vegna útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar, meðal ann­ars á Íslandi. „Maðurinn minn er lög­reglu­maður og við erum því bæði menntuð til að vera í fram­línu­sveit­inni, eins og það er kallað núna. Það var þarna komið í ljós að margir sjúk­lingar þyrftu að fara á önd­un­ar­vélar og að smit­hættan væri mjög mikil. Þannig að okkur þótti lík­legt að álag á sjúkra­húsið fyrir norðan myndi aukast veru­lega.“

Arna og eiginmaður hennar, Ólafur Tryggvi Ólafsson, á Tenerife fyrr á árinu.
Arna og eig­in­maður hennar, Ólafur Tryggvi Ólafsson, á Tenerife fyrr á árinu.

Stuttu eftir að þau voru komin heim til Íslands sá Arna frétt um að stofnuð hefði verið bak­varða­sveit heil­brigð­is­kerf­is­ins vegna far­ald­urs­ins. „Ég skráði mig strax án mik­illar umhugs­unar. Svo lét ég pabba vita en hann er fram­kvæmda­stjór­inn í fyr­ir­tæk­inu sem ég vinn hjá. Ég sagði honum að mér þætti sið­ferð­is­lega rétt, ef það vant­aði hjúkr­un­ar­fræð­inga sem kynnu á önd­un­ar­vélar, að svara því kalli. Hann var auð­vitað alveg sam­mála því. Verkefni í vinn­unni minni gætu beðið um tíma.“

Þegar fólk skráir sig í bak­varða­sveit­ina getur það valið hvar á land­inu það býður fram starfs­krafta sína og hvort að það vilji sinna COVID-smit­uðum sjúk­lingum eða ekki. Arna var til­búin í hvað sem var, að vinna hvar sem væri og að sinna hverjum sem á þyrfti að halda. „Svo var hringt í mig mjög fljót­lega og ég beðin að koma til vinnu fyrir sunnan.“

Nauð­syn­legt var að þre­falda mönn­un­ina á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans þegar ákveðið var að fjölga rúmum úr sex í átján. „Maðurinn minn er líka í vakta­vinnu svo að við urðum að und­ir­búa pössun fyrir börnin okkar á meðan ég færi suður og hann væri að vinna. Allir voru boðnir og búnir að hjálpa okkur. Það eru fleiri en við heil­brigð­is­starfs­fólk sem hafa svarað kall­inu!“

Arna Rut, Ólafur Tryggvi og synirnir fjórir: Veigar Bjarki, Ágúst Óli, Kári Gunnar og Ólafur Darri.
Arna Rut, Ólafur Tryggvi og syn­irnir fjórir: Veigar Bjarki, Ágúst Óli, Kári Gunnar og Ólafur Darri.

Hringt var í Örnu á fimmtu­degi og hún beðin að koma að vinna strax kom­andi helgi. „Þannig að það var bara pantað flug og ömmur og afar ræst út til að sinna börn­unum.“

Arna seg­ist ekki almenni­lega hafa vitað hvað hún væri að fara út í, hverju hún ætti von á. Hún hafi ekki hugsað mikið út í það. Hún vissi að á gjör­gæsl­unni í Fossvogi væri annað tölvu­kerfi en hún átti að venj­ast á Sjúkra­hús­inu á Akureyri og fleira í skipu­lagi og öðru var ólíkt fyrir sunnan. En það átti ekki eftir að koma að sök. Koma hennar til starfa var vel und­ir­búin, hún fékk strax sím­töl frá deild­ar­stjóra gjör­gæsl­unnar og mannauð­steym­inu. „Ég fann það frá fyrstu stundu að það var rosa­lega vel tekið á móti mér.“

Til stóð að Arna yrði í aðlögun á deild­inni fyrstu tvær vakt­irnar þar sem hún starf­aði með reyndum gjör­gæslu­hjúkr­un­ar­fræð­ingi sem þekkti deild­ina. Hún fór því um leið í hlífð­ar­fatn­að­inn og inn á gólf til veik­ustu sjúk­ling­anna. „En þetta var ótrú­lega lítið mál, ég náði fljótt áttum. Það var búið að segja mér að vinnu­brögðin væru í vöðva­minn­inu og það reynd­ist rétt. Ég skellti mér því beint í djúpu laug­ina og það gekk lygi­lega vel.“

Arna við störf á gjörgæsludeildinni í Fossvogi.
Arna við störf á gjör­gæslu­deild­inni í Fossvogi.

Gjör­gæslu­deild­inni var umturnað á fyrstu dögum Örnu í starfi. Hún stækk­aði jafnt og þétt. Í hvert sinn sem hún mætti á vakt var búið að breyta, stækka og stúka af ný svæði frá því hún var á þeirri síð­ustu.

„En þetta var alveg svaka­legt ástand, satt best að segja,“ segir hún. Sjúk­lingum á gjör­gæslu og í önd­un­ar­vél hafði fjölgað hratt á fáum dögum. Og hún vann tíu vaktir á níu dögum. Álagið var það mikið að hún þurfti tvisvar sinnum að fram­lengja veru sína í Reykja­vík og breyta flug­mið­anum norður.

Hvíld á milli vakta­lota var því kær­komin. En Arna ætlar aðeins að taka sér nokk­urra daga hvíld. Hún mun vinna á gjör­gæsl­unni alla pásk­ana.

„Ég hef mjög gaman að því að vinna við bráða­að­stæður og vera í „action“ segir Arna. „Ég starf­aði í lög­regl­unni í nokkur ár áður en ég byrj­aði á gjör­gæslu og fór svo í svæf­ing­arnar því þar þarf sann­ar­lega að geta haft hraðar hendur. Þannig að ég sæki dálítið í þetta krefj­andi lands­lag.“

En hvernig er að vinna á gjör­gæslu­deild í miðjum þessum far­aldri?

„Álagið er auð­vitað mjög mikið,“ segir hún. „Bara það að vinna í þessum hlífð­ar­bún­ingum, sem eru úr plasti, er erfitt. Manni verður svo heitt og svitnar en svo kólnar manni og verður kalt. Við reynum að vera ekki mikið lengur en þrjár klukku­stundir í bún­ingnum í einu, fáum þá afleys­ingu til að fara fram í smá stund og skipta í þurr föt ef þörf er á. Þetta er lík­am­lega erfitt ofan á allt annað. Stundum fær maður köfn­un­ar­til­finn­ingu og verður að kom­ast út. Við erum með maska og gler­augu eða plast­skildi fyrir and­lit­unum að sinna sjúk­ling­unum, svo við þekkjum illa hvert annað ef við skrifum ekki nafnið okkar á fötin með tús­spenna. Ef sjúk­ling­arnir eru ekki sof­andi geta þeir ómögu­lega þekkt okkur í sundur svo það hlýtur að vera óþægi­legt fyrir þá. Aðstand­endur fá ekki að koma og vera hjá veikum ást­vinum sínum og við starfs­fólkið reynum að hitta sem fæsta utan vinnu. Þetta er allt svo óeðli­legt.“

Erfið og löng meðferð

Gjör­gæslu­hjúkrun er ein sú erf­ið­asta sem fyr­ir­finnst. Að fylgj­ast stöðugt með fólki í önd­un­ar­vél, vita hvernig eigi að bregð­ast við ef eitt­hvað kemur upp á er þó eitt­hvað sem Arna hefur mikla reynslu og þekk­ingu á. „Gjör­gæslu­með­ferð er mjög flókin, ekki síður þegar sjúk­ling­arnir eru smit­aðir af COVID. Þetta er erfið með­ferð og hún getur tekið langan tíma.“

Arna þreytt og sveitt eftir vakt á gjörgæsludeildinni. Gríman er þétt á andlitinu og skilur eftir sig far.
Arna þreytt og sveitt eftir vakt á gjör­gæslu­deild­inni. Gríman er þétt á and­lit­inu og skilur eftir sig far.

Þegar fólk er í önd­un­ar­vél getur ýmis­legt komið upp á sem þarf að bregð­ast við strax. Það þarf því nán­ast einn hjúkr­un­ar­fræð­ing á hvern þann sem er í slíkri vél. Sumir þola slöng­una sem þrædd er ofan í önd­un­ar­veg­inn illa og fara að hósta. Þá er nauð­syn­legt að hafa þjálf­aðan hjúkr­un­ar­fræð­ing til taks til að aðstoða.

Sjúk­lingur í önd­un­ar­vél er algjör­lega háður því að stöðugt sé fylgst með honum, segir Arna. Hann fær ýmis lyf í æð, meðal ann­ars verkja­lyf og svæf­ing­ar­lyf, og er með slöngu ofan í háls­inn sem tengd er önd­un­ar­vél­inni. „Það er fylgst með hverjum and­ar­drætti og still­ingar á svæf­inga­vél­inni end­ur­metnar stöðugt eftir ástandi sjúk­lings. Og það er ekki þannig að allir sjúk­lingar séu það djúpt sof­andi að þeir hreyfi sig ekki neitt. Dýpt svæf­ingar og verkja­still­ingar er stýrt eftir ástandi hvers sjúk­lings. Stundum eru þeir létt sof­andi og geta opnað augun, fundið óþæg­indi frá slöng­unni og þá þarf að tala við þá og róa niður. Það er margt sem getur komið skyndi­lega upp á.“

Snúa sjúklingum á grúfu

Af því að um nýjan sjúk­dóm er að ræða er ýmis­legt verið að prófa í með­ferð sjúk­ling­anna sem þykir hafa gefið góða raun ann­ars staðar. Læknar leita stöðugt til kollega sinna erlendis eftir nýj­ustu upp­lýs­ingum, m.a. um hvaða lyf virð­ast vera að hjálpa. Eitt af því sem gert hefur verið tölu­vert af á gjör­gæsl­unni er að snúa sjúk­lingum í önd­un­ar­vél á grúfu snemma í ferl­inu. „Það eru allir að prófa sig áfram og reyna að finna sem bestu með­ferð fyrir sjúk­ling­ana,“ segir Arna.

Arna í varnarbúningnum, tilbúin í að sinna sjúklingum með COVID-19 á gjörgæslunni.
Arna í varn­ar­bún­ingnum, til­búin í að sinna sjúk­lingum með COVID-19 á gjör­gæsl­unni.

Arna hefur verið í vinn­unni á gjör­gæslu­deild­inni þegar sjúk­lingar með COVID í önd­un­ar­vél hafa farið að sýna góð bata­merki og verið teknir úr henni. En hún hefur líka verið í vinn­unni þegar dauðs­föll hafa orðið á deild­inni. „Góðu tíð­indin eru þau að við höfum náð að útskrifa fólk af gjör­gæsl­unni. Og mér skilst að okkur gangi betur í því en mörgum öðrum þjóðum. Svo það er vissu­lega gleði­legt.“

Þakkar stuðninginn

Mikið álag er á hjúkr­un­ar­fræð­ingum og öðru heil­brigð­is­starfs­fólki almennt. En núna er það gríð­ar­legt, miklu meira en venju­lega, segir Arna. „Það er erfitt að sjá að í sumum löndum í kringum okkur er verið að borga álags­auka en það er ekki gert hér. Þó að kjara­mál hjúkr­un­ar­fræð­inga séu mikið í fréttum þessa dag­ana og við finnum fyrir miklum stuðn­ingi víða þá höfum við ekki sam­þykkt kjara­samn­inga í mörg ár. Það er ekki eins og við höfum verið að ýta kjara­málum okkar að sér­stak­lega núna, eins og sumir virð­ast halda, þetta er ástand sem hefur verið við­var­andi lengi.“

Hún segir alla hjúkr­un­ar­fræð­inga mjög þakk­láta fyrir stuðn­ing almenn­ings síð­ustu daga og vikur en á sama tíma séu margir reiðir að sá stuðn­ingur virð­ist ekki skila sér til þeirra sem fara með valdið. Líkt og allir vonar hún að nú verði það ljóst öllum sem vilja sjá hversu mik­il­vægt starf hjúkr­un­ar­fræð­inga er. Tími sé kom­inn til að borga laun í sam­ræmi við það.

Í gegnum árin hefur Arna notið þess að koma til Reykja­víkur til að hitta vini og ætt­ingja, fara út að borða, á kaffi­hús og að versla. Dvölin fyrir sunnan núna er alls ólík því sem hún á að venj­ast. „Bara það að fara að kaupa í mat­inn er eitt­hvað sem maður setur spurn­ing­ar­merki við. Ég vil ekki fá sýk­ingu og bera hana inn á gjör­gæsl­una. Það eina sem ég hef að gera er að vinna og vinna svo aðeins meira. Sofa svo á milli.“

Spurð hvort það komi til greina að halda áfram að starfa við hjúkrun eftir að far­aldr­inum lýkur seg­ist Arna telja það ólík­legt. „Nei, ég held að þetta verði bara tíma­bundið að svo stöddu. Það getur auð­vitað verið að ég snúi alfarið aftur til starfa í heil­brigð­is­kerf­inu seinna og ég vona það, því þetta er það sem ég hef ástríðu fyrir að gera, kann og hef sér­þekk­ingu í.

Ég sakna þess oft að starfa sem svæf­inga­hjúkr­un­ar­fræð­ingur og vera hluti af grænu fjöl­skyld­unni á Sjúkra­hús­inu á Akureyri. Ég vona að þró­unin verði þannig að hjúkr­un­ar­fræð­ingar með sér­fræði­menntun verði nýttir meira og betur í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu líkt og gert er í nágranna­lönd­unum. Það hefur sýnt sig að það eykur skil­virkni og starfs­á­nægju og dregur úr kostn­aði. Það er ýmis­legt sem mætti breyta og bæta.“

Fjölskyldan á góðri stund. Synirnir fjórir sýna því mikinn skilning að Arna þurfi að fara frá þeim og vinna á spítalanum fyrir sunnan.
Fjöl­skyldan á góðri stund. Synirnir fjórir sýna því mik­inn skiln­ing að Arna þurfi að fara frá þeim og vinna á spít­al­anum fyrir sunnan.

Þegar Arna er fyrir sunnan að vinna saknar hún fjöl­skyld­unnar fyrir norðan en veit að syn­irnir fjórir eru í góðum höndum hjálp­samra ætt­ingja.

„Undir venju­legum kring­um­stæðum þegar ég eða mað­ur­inn minn erum að heiman hafa syn­irnir tak­mark­aðan skiln­ing á fjar­veru okkar, hvort sem hún stafar af vinnu eða öðru,“ segir hún. „Hins vegar er áber­andi núna að þeir eru mjög áhuga­samir og sýna þessu mik­inn skiln­ing, átta sig á mik­il­vægi starfa okkar og alvar­leika ástands­ins, enda höfum við rætt þetta mjög opin­skátt og haldið þeim vel upp­lýstum. Þeirra til­vera er mjög óvenju­leg þessa dag­ana eins og flestra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár