Tók U-beygju í lífinu eftir örmögnun en er komin aftur „heim“ á gjörgæsluna

„Ég stend á öxlum risa,“ segir Laufey Stein­dórs­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur um end­ur­komu sína á gjör­gæslu­deild­ina og hið færa fag­fólk sem þar starfar. Laufey er í bak­varða­sveit­inni. „Ég hlust­aði á hjarta mitt sem er minn besti veg­vísir.“

Eitt sinn hjúkr­un­ar­fræð­ingur – ávallt hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Nú er rétti tím­inn til að leggja hönd á plóg. Það var með stolti og mik­illi gleði í hjarta sem ég kom á dög­unum til baka á gjör­gæslu­deild­ina í Fossvogi eftir 10 ára fjar­veru,“ segir Laufey Stein­dórs­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Með skrán­ingu í bak­varða­sveit heil­brigð­is­kerf­is­ins hafi leið hennar aftur legið „heim“.

Þegar Laufey vakn­aði einn morg­un­inn nýverið fann hún skýrt að hún ætti að skrá sig í bak­varða­sveit­ina. „Ég hlust­aði á hjarta mitt sem er minn besti veg­vísir og það sagði að þetta væri það sem mér væri ætlað að gera,“ segir hún í sam­tali við Kjarnann. „Svo var hringt í mig og ég spurð hvar ég vildi starfa og ég sagði strax að ég vildi fara aftur á gjör­gæsl­una.“

Gjör­gæslu­hjúkrun er flókin og sér­hæfð. Á gjör­gæslu­deild liggur fólk sem er alvar­lega veikt, er jafn­vel í önd­un­ar­vél og þarf stöðugt eft­ir­lit. Laufey hafði reynslu og þekk­ingu til starfs­ins. Hún þurfti upp­rifjun og aðlögun en var svo til í slag­inn. „Á gjör­gæslu­deild­inni eru allir með sér­þekk­ingu á sínu sviði; læknar, hjúkr­un­ar­fræð­ingar, sjúkra­liðar og ræst­ing­ar­fólk. Bara allir.“

Hún fann til auð­mýktar er hún mætti „á gólfið“, innan um fram­úr­skar­andi starfs­fólk gjör­gæsl­unnar. „Þannig að ég stend á öxlum risa,“ segir hún um end­ur­koma sína.

Laufey útskrif­að­ist sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur árið 2002 og hóf þá störf á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Hún flutti svo til Sví­þjóðar og fór í fram­halds­nám í bráða- og gjör­gæslu­hjúkrun á Karol­inska-sjúkra­hús­inu í Stokk­hólmi. Árið 2008 flutti hún aftur heim til Íslands og byrj­aði að vinna á gjör­gæslu­deild­inni í Fossvogi.

Laufey útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 2002 og fór síðar í sérnám til Svíþjóðar.
Laufey útskrif­að­ist sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur árið 2002 og fór síðar í sér­nám til Sví­þjóðar.

Laufey og eig­in­maður hennar, Ingvar Hákon Ólafsson heila- og tauga­skurð­læknir, eiga fjórar dætur. Í mörg ár voru þau bæði í vakta­vinnu í krefj­andi störfum og að sam­ræma einka­líf og starf var mikil áskorun. Álagið á heim­ilið var mikið þar sem yngsta dóttir þeirra glímdi við mik­inn svefn­vanda. Aðstæð­urnar voru nán­ast óyf­ir­stíg­an­legar, að sögn Lauf­eyjar.

Árið 2013 seg­ist hún hrein­lega hafa örmagn­ast á lík­ama og sál eftir langvar­andi svefn­leysi og streitu. „Ætli megi ekki segja að við höfum lent í stormi lífs­ins,“ segir hún um ástandið þegar hún lítur í bak­sýn­is­speg­il­inn. Hún hætti störfum á Land­spít­al­anum og ákvað að beina allri athygli sinni inn á við og að því að hlúa að fjöl­skyld­unni.

Ákvörð­un­ina tók Laufey, eins og allt sem hún tekur sér fyrir hendur, föstum tökum. Hún hóf mikla sjálfs­vinnu og lærði að kenna hug­leiðslu og jóga. „Ég tók algjöra U-beygju í líf­inu. Ég fann í kjöl­farið mikla þörf fyrir að færa starfs­fólki Land­spít­al­ans þessi verk­færi sem ég hafði lært, þessa djúp­slökun og hug­leiðslu.“

Laufey hefur lært að kenna hugleiðslu og jóga og býður starfsfólki Landspítalans upp á djúpslökun.
Laufey hefur lært að kenna hug­leiðslu og jóga og býður starfs­fólki Land­spít­al­ans upp á djúp­slökun.

Í maí á síð­asta ári stofn­aði Laufey ásamt Rebekku Rós Þor­steins­dóttur svæf­inga­hjúkr­un­ar­fræð­ingi og jóga­kenn­ara heima­síð­una Kyrrð­ar­jóga.is. Und­an­farin tvö ár hafa þær stöllur boðið starfs­mönnum spít­al­ans, sem alla jafna eru undir miklu álagi, að koma í hug­leiðslu- og djúp­slök­un­ar­tíma á vinnu­staðnum. „Ég hef aldrei yfir­gefið Land­spít­al­ann, hjarta mitt mun alltaf slá þar, þetta er minn staður og mitt fólk.“

Laufey hefur staðið utan við gjör­gæsl­una í ára­tug og horft með lotn­ingu á starfið sem þar fer fram. „Ég hef alltaf haldið góðum tengslum við deild­ina því þarna er bak­landið mitt. Fólkið mitt. Og nú á þessum tímum þá krist­all­ast allt þetta sem ég hef upp­lifað og verið að tala um hvert sem ég fer: Starfið sem unnið er á gjör­gæslu­deild­inni í Fossvogi er ekk­ert annað en magnað.“

Margir hjúkr­un­ar­fræð­ingar og aðrir starfs­menn sem vinna á gjör­gæsl­unni hafa unnið þar í tíu, tutt­ugu ár og jafn­vel lengur. „En þessir ein­stak­lingar gefa ekk­ert eftir. Þeir vinna sínar vaktir og taka svo auka­vaktir sem þarf til að koma til móts við aðstæður sem geta skap­ast á deild­inni.“

Laufey (til hægri) og Guðlaug Traustadóttir vinna saman á ný á gjörgæsludeildinni í Fossvogi.
Laufey (til hægri) og Guðlaug Trausta­dóttir vinna saman á ný á gjör­gæslu­deild­inni í Fossvogi.

Þetta er fólkið sem stendur ávallt sína plikt, segir Laufey, hvort sem það er mót­vindur eða með­vindur í sam­fé­lag­inu og efna­hags­líf­inu. „Þau eru þarna á sínum stað, til­búin að gera allt sem þau geta til að bjarga lífi.“

Þegar Laufey hóf fyrst störf á gjör­gæsl­unni var hún undir vernd­ar­væng hjúkr­un­ar­fræð­ings sem hún seg­ist hafa fylgt hvert fót­spor. Hún lærði svo smám saman á flókið og tækni­legt umhverfi deild­ar­innar. „Ég fékk dásam­legar mót­tökur á sínum tíma frá öllu því öfl­uga fólki sem þar starfar.“

Aðstæður á gjör­gæsl­unni eru síbreyti­legar og starfs­fólkið þar ávallt undir það búið að bregð­ast við nýjum, óvæntum og krefj­andi verk­efnum. Skjól­stæð­ingar gjör­gæslu þurfa vöktun allan sól­ar­hring­inn, mín­útu fyrir mín­útu, nótt sem nýtan dag. Fyrir vikið getur álagið orðið gríð­ar­legt og reynt bæði á starfs­fólkið sem og aðstand­endur. „Mín reynsla er sú að starfs­fólkið er alltaf boðið og búið að rétta fram hjálp­ar­hönd og aðstoða hvern þann sem á þarf að halda. Nú á tímum COVID-19 hefur það svo sann­ar­lega komið í ljós hvers þau eru megnug.“

Þegar Laufey snéri svo aftur til starfa í gegnum bak­varða­sveit heil­brigð­is­kerf­is­ins nýlega var henni tekið opnun örmum. „Starfs­fólkið þarna er greini­lega með meistara­gráðu í umburð­ar­lyndi,“ segir hún full þakk­lætis.

Svo skemmti­lega vildi til að Laufey hefur nú aftur fengið að vinna með leið­bein­anda sínum og læri­móður, Guðlaugu Trausta­dóttur, Lullu. „Hún er ein af þessum hetjum hjúkr­unar sem við hin lítum upp til.“

Þrátt fyrir að það sé sér­stak­lega mikið álag á gjör­gæslu­deild­inni nú á tímum far­ald­urs COVID-19 segir Laufey að allt gangi eins og vel smurð vél. „Þetta ástand er auð­vitað engu líkt. Deildin hefur stækkað dag frá degi og nýtt starfs­fólk komið inn. Sam­taka­mátt­ur­inn og sam­staðan hjá öllu starfs­fólk­inu er ótrú­lega mikil. Það er eins og þetta fólk verði bara öfl­ugra þegar svona ástand skellur á.“

Það ger­ist ekki í tóma­rúmi og af til­viljun að starfið á deild­inni haldi áfram af krafti við þessar óvæntu aðstæður. Til þess þarf öfl­uga leið­toga á öllum sviðum. Einn þeirra er Ólöf S. Sig­urð­ar­dóttir, deild­ar­stjóri gjör­gæsl­unnar.

„Ég get ekki fundið nógu sterk orð um hana Ólöfu,“ segir Laufey, dregur djúpt inn and­ann og heldur svo áfram: „Hún er ein­fald­lega mögnuð kona og sér­lega vönduð mann­eskja. Hún er ekki bara flinkur stjórn­andi heldur mik­ill leið­togi. Hún er fyr­ir­mynd í svo mörgu; frá­bær yfir­maður og hjúkr­un­ar­fræð­ingur, góð móðir og félagi. Hafandi svona skip­stjóra í brúnni þá er ekk­ert að ótt­ast.“

En hvernig er að koma aftur til starfa á þessum tímum, inn í þetta ástand?

„Fyrir ein­hverja gæti það verið mjög stressandi en ég hef unnið vel heima­vinn­una mína síð­ustu ár, eflt sjálfa mig og bætt mig sem mann­eskju.“

Um tíma glímdi Laufey við ofsa­kvíða sem hún hafði þróað með sér um ára­bil vegna álags. „Í dag upp­lifi ég engan kvíða að ganga inn í þessar aðstæður, alls engan. Það kom mér svo­lítið á óvart. En ég veit að ég er að gera mitt besta við að hjúkra þessum skjól­stæð­ingum og að starfs­fólkið er umburð­ar­lynt og tekur manni eins og maður er. Ég finn að ég er í öruggum höndum þessa frá­bæra fag­fólks.“

Laufey og Guðbjörg Traustadóttir saman á gjörgæslunni í Fossvogi.
Laufey og Guðbjörg Trausta­dóttir saman á gjör­gæsl­unni í Fossvogi.

Og kannski er Laufey komin til að vera á deild­inni. „Það á eftir að koma í ljós,“ segir hún létt í bragði. „Ég hef byggt mig vel upp, finn innri kyrrð og ró og jafn­vægi. Og það nýt­ist mér rosa­lega vel núna í þessum aðstæðum.“

Þeir sem velja að vinna við hjúkrun eru margir hverjir að svara ákveð­inni köllun, segir Laufey. Fólk fórni ýmsu þegar það velur sér þennan starfs­vett­vang. Hún seg­ist þó ekki sjá eftir því, ekki eitt augna­blik. „En þó að þetta sé köllun, starf sem við sinnum af hug­sjón og ástríðu, þá verðum við að hafa laun í sam­ræmi við þetta álag og það verður að vera svig­rúm í vinnu­um­hverf­inu svo að hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn gangi ekki of nærri sinni eigin heilsu. Vakta­vinna er þess eðlis að hund­rað pró­sent vinna, 40 stundir á viku eða þar um bil, getur algjör­lega klárað ork­una. Ég virki­lega vona að nú verði hjúkr­un­ar­fræð­ingar metnir að verð­leikum og fái laun í sam­ræmi við sitt fram­lag. Það ætti engum að dylj­ast lengur hvað þetta starf er mik­il­vægt.“

Kjara­bar­átta hjúkr­un­ar­fræð­inga snýst að sögn Lauf­eyjar nefni­lega ekki ein­göngu um álags­auka, hún snýst um að hækka grunn­launin og draga úr fjölda vinnu­stunda í fullri vinnu. „Það er mjög mik­il­vægt að gera sér grein fyrir því að álagið sem fylgir þessu starfi, þar sem þú ert með líf fólks í hönd­unum, nótt sem dag, það getur gengið nærri heilsu starfs­manns­ins. Stytting vinnu­vik­unnar er því mikið hags­muna­mál fyrir hjúkr­un­ar­fræð­inga í vakta­vinnu.“

Með gleði í hjarta mætti Laufey eftir tíu ára fjarveru aftur til starfa á gjörgæsluna í Fossvogi.
Með gleði í hjarta mætti Laufey eftir tíu ára fjar­veru aftur til starfa á gjör­gæsl­una í Fossvogi.

Grunn­stoð starfa í heil­brigð­is­þjón­ustu – horn­steinn­inn – er að hlúa að öðrum. „Þegar fram líða stundir og far­ald­ur­inn verður að baki þá verður það þetta sem vegur þyngst og mun skilja hvað mest eftir sig í hugum okkar og hjörtum. Að við höfum hlúð hvert að öðru. Ég segi stundum að við séum að fylgja hvert öðru heim – hvert svo sem heim er. Það á vel við núna.“

Laufey seg­ist viss um að heims­byggðin muni draga ein­hvern lær­dóm af ástand­inu sem heims­far­ald­ur­inn hefur skapað á ýmsum sviðum til­ver­unnar. „Þetta er svo stórt – svo miklu stærra en nokkuð annað. Ég er sann­færð um að þetta muni hafa var­an­leg áhrif á okkar gild­is­mat, áherslur og verð­mæta­mat. Sönn verð­mæti eru fólgin í því að hlúa að öðrum ekki síður en okkur sjálfum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár