„Við erum hérna á haus, algjörlega að drukkna“

„Þessi hjúkrun er það erf­ið­asta sem þú getur lent í,“ segir hjúkr­un­ar­deild­ar­stjóri gjör­gæsl­unnar í Fossvogi í sam­tali við Kjarnann. Að veikj­ast af nýjum sjúk­dómi, lenda á gjör­gæslu og jafn­vel í önd­un­ar­vél er ógn­vekj­andi. „Já, fólk er hrætt.“

Þegar Ólöf Svein­björg Sig­urð­ar­dóttir tók við starfi hjúkr­un­ar­deild­ar­stjóra á gjör­gæslu­deild­inni á Land­spít­al­anum Fossvogi óraði hana ekki fyrir því að tæpu ári síðar myndi hún standa langar og strangar vaktir í miðjum heims­far­aldri. Það vildi þannig til að hún var að leysa deild­ar­stjór­ann á gjör­gæsl­unni af árið 2009 er „hvass­viðrið“ sem fylgdi svínaflens­unni gekk yfir. „En það er ekk­ert miðað við þetta,“ sagði hún í sam­tali við Kjarnann í morgun.

Hún man vel hvenær hún heyrði fyrst um nýja og skæða veiru sem upp var komin í Kína. Og þó að hún hefði fljótt áttað sig á því að heims­far­aldur væri yfir­vof­andi gat hún ekki ímyndað sér að hann yrði jafn alvar­legur og komið hefur á dag­inn.

Hún gat ekki ímyndað sér að nokkrum vikum seinna ætti hún ásamt kröft­ugu og sam­heldnu liði eftir að klæð­ast hlífð­ar­fatn­aði frá toppi til táar á helm­ingi stærri gjör­gæslu­deild en hún tók við í maí í fyrra. Hún gat heldur ekki ímyndað sér að ást­vinir sjúk­linga, sem eru í hennar huga einnig skjól­stæð­ingar gjör­gæsl­unnar, gætu ekki setið við hlið þeirra og kvatt er þeir skildu við. En þetta er staðan, því miður, segir hún.

Þrír sjúk­lingar með COVID-19 sem lagðir hafa verið inn á deild­ina hafa lát­ist. Þar af tveir síð­asta sól­ar­hring­inn. „Þetta er ólýs­an­legt,“ segir hún, „en það er aðdá­un­ar­vert að sjá hvað aðstand­endur skilja vel þær aðstæður sem við erum í. Þeir sýna fádæma skiln­ing og auð­mýkt. Þessi auð­mýkt ein­kennir allt og alla.“

Í þessum erf­ið­leikum, í þessu gríð­ar­lega álagi, segir Ólöf sér­stak­lega mik­il­vægt að starfs­fólkið hlúi hvert að öðru.

Sam­staðan sé mögnuð. „Þetta er frá­bær hópur. Það eru allir sam­stíga og vinna vel saman. Allir, allir, allir,“ segir hún með mik­illi áherslu. Fólk sem vinni vana­lega við skrif­borð á spít­al­anum sé komið „á gólfið“.

Ólöf Sveinbjörg Sigurðardóttir á vaktinni í Fossvoginum í dag eins og flesta daga.
Ólöf Svein­björg Sig­urð­ar­dóttir á vakt­inni í Foss­vog­inum í dag eins og flesta daga.

Dreymdi um að verða hárgreiðslukona

En hver er bak­grunnur þess­arar konu sem stendur í brú gjör­gæsl­unnar á tímum far­sótt­ar­innar?

„Ég var alltaf ákveðin í því að verða hár­greiðslu­kona og byrj­aði að læra það,“ byrjar Ólöf á að segja, spurð um sjálfa sig og hvað hafi orðið til þess að hún lærði hjúkrun. Hún er í vinn­unni á gjör­gæsl­unni er hún ræðir við blaða­mann í síma og í kringum hana má heyra klið, hratt fóta­tak um ganga og síma hringja í sífellu.

Hún verður að gera stutt hlé á við­tal­inu meðan hún ræðir við sam­starfs­mann um verk­efni sem þolir enga bið. „Við erum með marga bolta á lofti,“ segir hún er hún snýr til baka.

„En já, mig dreymdi um að verða hár­greiðslu­kona eins og margar litlar stelpur. En ég sá fljótt að þetta var ekki alveg það sem mig lang­aði að gera.“

Hún hætti í hár­greiðslu­nám­inu, lærði sjúkra­lið­ann og í fram­hald­inu fór hún í hjúkr­un­ar­nám við Háskóla Íslands. Þaðan útskrif­að­ist hún 1987.

Í nám­inu kynnt­ist hún gjör­gæslu­deild­inni í Foss­vog­inum og þangað fór hún til starfa að lok­inni útskrift. „Og ég hef verið hérna síðan,“ segir hún og hlær létt.

Hún bætti við sig sér­námi, lærði gjör­gæslu­hjúkrun og tók kennslu­rétt­indi, enda hefur hún mik­inn áhuga á því að miðla af þekk­ingu sinni og fræð­unum til ann­arra.

Mikið mæðir nú á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi, en þar liggur talsverður fjöldi COVID-19-sjúklinga og öryggisráðstafanir eru miklar.
Mikið mæðir nú á gjör­gæslu­deild Land­spít­ala í Fossvogi, en þar liggur tals­verður fjöldi COVID-19-sjúk­linga og örygg­is­ráð­staf­anir eru miklar.

Fyrir ell­efu árum tók hún við stöðu aðstoð­ar­deild­ar­stjóra hjúkr­unar á gjör­gæsl­unni og fyrir tæpu ári varð hún svo deild­ar­stjóri.

Nokkrum mán­uðum síðar er hún stödd í miðjum far­aldri COVID-19, mestu heilsu­fars­á­skorun sem heim­ur­inn hefur glímt við í ára­tugi. „Þetta fer í sögu­bæk­urnar,“ segir hún. Faraldur svínaflensu árið 2009 blikni í sam­an­burð­inum.

Við svínaflens­unni var hægt að fá bólu­setn­ingu sem veitti heil­brigð­is­starfs­fólki smit­vörn. Því er ekki að heilsa í far­aldri hinnar nýju kór­ónu­veiru. „Hér erum við ekki með neinar varnir aðrar en hlífð­ar­gall­ana okkar sem við þurfum að passa okkur að fara rétt í og rétt úr. Þannig að við þurfum mikið að passa upp á hvert annað hérna í vinn­unni.“

Man þegar hún heyrði fyrst um veiruna

Ólöf man vel hvenær hún heyrði fyrst um nýju veiruna. „Þetta vakti athygli mína strax upp úr ára­mót­unum er fréttir tóku að ber­ast frá Wuhan í Kína. Ég hafði heyrt að árið 2020 gæti orðið ár mik­illa atburða og það hvarfl­aði strax að mér að þetta gæti orðið eitt­hvað sem við þyrftum að takast á við.“

Hún seg­ist hins vegar ekki hafa séð fyrir hvað síðan átti eftir að ger­ast. Ekki frekar en aðrir. Vinkona Ólafar á son sem er giftur kín­verskri konu. Hjónin búa ekki langt frá Wuhan. „Ég heyrði hvernig þau voru að takast á við þetta, sú litla fjöl­skylda. Og ég hugs­aði, guð minn góður, ef þetta kemur hingað, hvað gerum við hér á litla Íslandi?“

Hvernig er það að vera í í þessu starfi og að fást við nýjan sjúk­dóm sem svo margt er á huldu um?

„Þetta eru miklar áskor­anir. En mér finnst svo frá­bært að sjá alla okkar fram­úr­skar­andi fag­menn. Það sjáum við vel í þrí­eyk­inu; Víði, Þórólfi og Ölmu. Þetta eru fag­menn sem eru gjör­sam­lega með putt­ann á púls­inum, alltaf.“

Löngu áður en fyrsta smit greind­ist á Íslandi höfðu deild­ar­stjórar og yfir­læknar á gjör­gæslu­deildum Land­spít­al­ans átt fundi með Ölmu Möller land­lækni. „Þá þegar voru allir búnir að kynna sér hvernig þetta gæti mögu­lega birst hér hjá okkur miðað við það sem var að ger­ast úti.“

Fór með allar sínar bænir

Ólöf seg­ist hafa farið með allar sínar bænir og vonað að ástandið hér færi ekki á versta veg eins og spít­al­inn bjó sig þó undir. Það virð­ist þó engu að síður ætla að verða raunin.

Fjöldi smita virð­ist enn fylgja bjart­sýn­ustu spám en fjöldi alvar­legra veikra sem þurfa að leggj­ast inn á sjúkra­hús hins vegar þeim svart­sýn­ustu.

Til að bregð­ast við hefur gjör­gæslu­deildin í Fossvogi verið stækkuð veru­lega. Áður voru þar sex rúm en með því að nýta vökn­un­ar­rýmið líka telur deildin nú fimmtán rúm og er mönnuð sam­kvæmt því. „Þetta er nátt­úr­lega magn­aður hópur sem vinnur hérna, á öllum víg­stöðvum, hvort sem það eru iðn­að­ar­menn, læknar, sjúkra­liðar eða ræst­ing­ar­fólkið,“ segir Ólöf. „Það eru for­rétt­indi að fá að vera hluti af þessum hópi sem ætlar að gera þetta eins vel og mögu­legt er.“

Starfsmenn gjörgæsludeildar hafa tekið upp á því að skrifa nafnið sitt á hlífðarfatnaðinn því erfitt er að bera kennsl á hver er handan grímunnar.
Starfs­menn gjör­gæslu­deildar hafa tekið upp á því að skrifa nafnið sitt á hlífð­ar­fatn­að­inn því erfitt er að bera kennsl á hver er handan grímunnar.

Hún segir ekki hægt að bera álagið á deild­inni nú saman við það sem var áður en far­ald­ur­inn braust út. „Eftir þetta finnst manni lík­lega allt annað verða ekk­ert mál. En það er mik­il­vægt að reyna að halda í gleð­ina og að við pössum upp á hvert annað. Að við hrósum hvert öðru og séum nær­gætin í sam­skiptum.“

Hvernig er að sinna sjúk­lingum sem eru með COVID-19 – í hlífð­ar­fatn­aði frá toppi til táar?

„Þetta er rosa­lega erfitt lík­am­lega að vera í þessum galla. Það verður að segj­ast eins og er,“ segir Ólöf. Það sé til dæmis mjög heitt. Starfs­fólkið ber fín­korna­grímur með ventli sem duga að hámarki í þrjá tíma. „Við miðum því við það að það sé eng­inn lengur inni í einu en þrjá klukku­tíma. Við reynum að skipta fólk­inu út, svo að það fái pásu. Þessi hjúkrun er það erf­ið­asta sem þú getur lent í. Fólki er haldið sof­andi í önd­un­ar­vélum og sér­stakt and­rúms­loft verður svo þegar allir eru upp­á­klæddir í þennan mikla hlífð­ar­fatnað.“

Skrifa nöfn sín á hlífðarfatnaðinn

Ekki er hlaupið að því að bera kennsl á hver sé handan grímunnar og því tók starfs­fólkið upp á því að skrifa nöfnin sín á hlífð­ar­fatn­að­inn. „Við höfum fengið ótrú­lega mik­inn liðs­styrk,“ segir Ólöf um mönn­un­ina á deild­inni. Sam­starfs­fólk af Land­spít­al­anum við Hring­braut, m.a. af gjör­gæsl­unni, hafi komið til aðstoðar sem og svæf­ingar- og skurð­hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem þekkja gjör­gæslu­um­hverfið vel. „Síðan er það bak­varða­sveitin sem var sett á stofn. Í henni eru meðal ann­ars fyrr­ver­andi starfs­menn sem eru komnir inn aftur og veita okkur alveg ómet­an­legan styrk.“

Hjúkr­un­ar­fræð­ingar og læknar hafa það hlut­verk að miðla upp­lýs­ingum um líðan sjúk­linga til aðstand­enda. Vegna smit­hætt­unnar mega aðstand­endur ekki koma inn á gjör­gæslu­deild­ina. „Aðstand­endur er stór hluti okkar skjól­stæð­inga. Okkar skjól­stæð­ingar eru ekki aðeins fólk sem liggur hér inni heldur líka aðstand­endur þeirra. Að hafa þá ekki hér með okkur, að þeir megi ekki koma, það er rosa­lega erfitt.“

Unnið er að því að setja upp fast­mótað verk­lag í sam­skiptum við aðstand­endur sem ekki er við þessar aðstæður hægt að hitta í eigin per­sónu heldur þurfa að fá skila­boð um líðan ást­vina sinna í gegnum síma. Í dag á að prófa fjar­fund­ar­búnað í þessu skyni. „Við viljum láta fólk vita skipu­lega og reglu­lega hver staðan sé,“ segir Ólöf. „ Við höfum líka virkjað presta í sál­gæsl­una með okkur. Við erum að reyna að nota allar leiðir sem við mögu­lega getum og eins og hægt er.“

Hvernig taka aðstand­endur því að geta ekki verið hjá ást­vinum á erf­ið­ustu tímum ævi þeirra?

„Mér finnst svo mikil auð­mýkt alls staðar,“ svarar Ólöf. „Þessi auð­mýkt ein­kennir allt og alla.“

En við and­lát er því miður ekki hægt að bjóða aðstand­endum að koma og kveðja. „Það sem við getum sagt fólki er að það er hægt að hafa kveðju­stund við kistu­lagn­ingu, þá fær fólk að sjá hinn látna. En það má ekki snerta hann.“

Sérstakt fjöl­skyldu­her­bergi er á nýju COVID-19 göngu­deild­inni og þar er gert ráð fyrir að aðstand­endur geti komið saman og átt fund með læknum og hjúkr­un­ar­fræð­ingum í gegnum fjar­funda­búnað. Þá er einnig verið að skoða þann mögu­leika að bjóða aðstand­endum að sjá ást­vin sinn á dán­ar­beði í gegnum slíkan búnað.

Ólöf segir stöð­una mjög við­kvæma og erf­iða fyrir alla en að það sé aðdá­un­ar­vert að sjá hvað fólk sýni aðstæð­unum mik­inn skiln­ing.

Hvernig bregst fólk við því að veikj­ast af sjúk­dómnum og þurfa að leggj­ast inn á sjúkra­hús, er fólk hrætt?

„Já, fólk er hrætt,“ segir Ólöf. Það sé ógn­vekj­andi að leggj­ast inn á gjör­gæslu og lenda jafn­vel í önd­un­ar­vél. Frá Kína hafi heyrst þær tölur að um 80 pró­sent þeirra sem lendi á gjör­gæslu kom­ist ekki þaðan aftur. „En það er kannski ekki alveg þannig hjá okkur, við höfum verið að útskrifa fólk, sem betur fer. Fólk hefur náð bata.“

Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hefur 21 sjúk­lingur verið lagður inn á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans með COVID-19. Þrír hafa lát­ist úr sjúk­dómnum. Ellefu sjúk­lingar eru á deild­inni núna, þar af átta í önd­un­ar­vél.

„Það er verið að gera allt sem hægt er fyrir þessa sjúk­linga, allt sem við vitum að hægt er að gera við þessar aðstæður,“ segir Ólöf. Hún segir smám saman koma fram nýjar upp­lýs­ingar um með­ferðir sem geti komið að gagni. „Við erum alltaf að læra, við erum að sjá hvað er hægt að gera betur. Og kynnum okkur það allra nýjasta í þeim efnum. Við ætlum að láta þetta ganga og gerum eins vel og við getum.“

Í sjúk­linga­hópnum á gjör­gæslu er að sögn Ólafar fólk á besta aldri, milli sex­tugs og sjö­tugs. „Þetta fólk er ekki endi­lega með mikla heilsu­fars­sögu. Það er til dæmis með hækk­aðan blóð­þrýst­ing og er á blóð­þrýst­ings­lyfjum og annað slíkt. Og maður vonar að þetta sé við­snú­an­legt og við höfum séð það hjá mörgum. Það eru góðu frétt­irnar.“

Mynd: Þorkell Þorkelsson/Landspítalinn
Mynd: Þorkell Þor­kels­son/Land­spít­al­inn

Sjálf seg­ist Ólöf ekki mikið leiða hug­ann að því að smit­ast sjálf. „Hér á gjör­gæsl­unni veit ég hverjir eru sýktir, hvar sýkt svæði eru, hvar ég þarf að passa mig. Og ég nota hlífð­ar­bún­að­inn. Ég hef meiri áhyggjur af því að fara út í búð.“

Heil­brigð­is­starfs­menn þurfa að gæta sér­stak­lega að sér, ver­andi lyk­il­fólk í fram­línu­sveit­inni. Ólöf hefur því tak­markað sína umgengni við fólk utan vinn­unnar. Hún not­færir sér tækn­ina til að vera í sam­skiptum við sína nán­ustu. „Ég hitti barna­börnin bara á Facetime. Dóttir mín og litla fjöl­skyldan hennar býr í Danmörku. Hún ætl­aði nú að vera hér heima um pásk­ana. Það er erfitt að vita af þeim svona langt í burtu. Þau eru eins og allir aðrir heima sem mest og vinna heima. Það eru allir á sama stað í þessu.“

Vinnu­dag­arnir hjá starfs­fólki gjör­gæsl­unnar eru langir. Og margir í röð. Ólöf hlúir að eigin heilsu meðal ann­ars með því að ganga sem oft­ast til og frá vinnu. „Það er algjört lyk­il­at­riði í þessu að hreyfa sig. Og það að ná að sofa vel er nauð­syn­legt. Það skiptir öllu fyrir mig.“

Á spítalanum segist Ólöf vita hvar sé hætta á að sýkjast. Það geti hún ekki verið viss um úti í búð. Mynd: Þorkell Þorkelsson/Landspítali
Á spít­al­anum seg­ist Ólöf vita hvar sé hætta á að sýkj­ast. Það geti hún ekki verið viss um úti í búð. Mynd: Þorkell Þor­kels­son/Land­spít­ali

Í gær bár­ust fréttir af launa­lækkun meðal hjúkr­un­ar­fræð­inga. Greindi einn hjúkr­un­ar­fræð­ingur til dæmis frá því á sam­fé­lags­miðlum að laun hans hefðu lækkað um rúm­lega 40 þús­und krónur milli mán­aða. Einmitt á meðan COVID-19 far­ald­ur­inn stendur yfir og álag er gríð­ar­legt. Skýr­ingin er sú að í tíma­bundnu átaki til að bæta kjör hjúkr­un­ar­fræð­inga hefur verið greiddur sér­stakur vakta­á­lags­auki sem datt út um mán­aða­mótin. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar eru samn­ings­lausir og kjara­við­ræður við ríkið hafa staðið í ár.

„Við erum hérna á haus, algjör­lega að drukkna,“ segir Ólöf. „Gær­dag­ur­inn var erf­iður. Þetta var eig­in­lega sorg­ar­dagur, verð ég að segja. Að þetta skuli koma þegar allir eru að hjálp­ast að og að örmagn­ast, að fá þetta er bara ekki gott.“

Hér mætum við á hverjum einasta degi

Ólöf seg­ist hafa hamrað á því síð­ustu vikur að starfs­fólkið ætti að fá greitt auka­á­lag á meðan ástandið gangi yfir. En í stað­inn hafi laun hjúkr­un­ar­fræð­inga lækkað. „Sumir eru að kvarta yfir því að þeir séu of mikið heima en hér mætum við á hverjum ein­asta degi. Þetta eru langir dagar og langar vaktir við þessar erf­iðu aðstæður. Og það er ekki einu sinni samið við okkur.“

Faraldur COVID-19 er tíma­bundið ástand. En þetta er lang­hlaup, hafa margir sagt. Það eru margar vikur af gríð­ar­legu álagi framundan á spít­al­anum. „Ég vona að starfs­fólkið haldið þetta út. Það verður eitt­hvað að koma til að hjálpa því í gegnum þetta. Fólk er farið að þreyt­ast. Ég sem yfir­maður er að reyna að passa upp á að fólki keyri sig ekki alveg út. Allir vilja gera meira og ég þarf að beina því til fólks að taka sér frí­dag.“

„Ég vil segja það sama og þríeykið: Verið þið heima. Við erum hér fyrir ykkur en verið þið heima fyrir okkur. Það skiptir okkur rosalega miklu máli.“
„Ég vil segja það sama og þrí­eykið: Verið þið heima. Við erum hér fyrir ykkur en verið þið heima fyrir okkur. Það skiptir okkur rosa­lega miklu máli.“

Í dag mættu til vinnu tveir starfs­menn gjör­gæslu­deild­ar­innar, læknir og hjúkr­un­ar­fræð­ingur, sem höfðu smit­ast af COVID-19 og verið í ein­angrun. „Þeir eru búnir að ná sér, eru útskrif­aðir og komnir til vinnu. Það er mjög gleði­legt,“ segir Ólöf. „Og við hlökkum mikið til að fá hitt fólkið okkar sem er í sótt­kví eða ein­angrun til baka.“

Verið heima!

Víðir, Þórólfur og Alma hafa hvatt fólk til að halda sig heima um pásk­ana. Ekki sé skyn­sam­legt að fara í ferða­lag um landið. Ólöf seg­ist hafa áhyggjur af pásk­unum. „Um páska eru nær alltaf ein­hver stór­slys, þegar fólk er að fara upp um fjöll og firn­indi og út úr bænum. Ég vil segja það sama og þrí­eykið: Verið þið heima. Við erum hér fyrir ykkur en verið þið heima fyrir okkur. Það skiptir okkur rosa­lega miklu máli. Þetta er ekk­ert grín, það er verið að gera þetta fyrir okkur öll og við verðum að þrauka þetta saman. Við verðum að reyna að vernda við­kvæmu hópana okkar. Við verðum að vera öll saman í þessu. Það þarf ekki nema einn til að fara út af spor­inu – það getur verið mjög afdrifa­ríkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár