Líður eins og íþróttamanni með stuðningsmenn á hliðarlínunni

Hún var enn þrútin í and­liti eftir kvöld­vakt­ina er hún setti grímuna á sig í morgun. Gríman gerir það líka að verkum að sjúk­ling­arnir sjá ekki brosið hennar svo hún límdi mynd af sér á hlífð­ar­gall­ann. Sjúkra­liðar á Land­spít­ala hugsa í lausnum.

Ég var að koma af vakt­inni,“ segir Ásta Mart­eins­dóttir, sjúkra­liði og lög­fræði­nemi. Vaktin var á smit­sjúk­dóma­deild Land­spít­al­ans í Fossvogi sem er nú alfarið lögð undir COVID-sjúk­linga. „Dagurinn var nokkuð góður. Álagið var minna en dag­ana á undan. En dag­arnir eru reyndar flestir góðir á deild­inni þó að það sé erfitt að vinna í gall­anum. Þannig að ég er alveg vel þreytt eftir hverja vakt.“

Gallann ættu allir Íslend­ingar að vera farnir að þekkja: Græn hlífð­ar­föt, gler­augu, and­lits­grímur og hanskar. „Ein­kenn­is­bún­ingur“ fram­línu­fólks­ins okkar í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Ásta vinnur á þrí­skiptum vöktum. Í fyrra­dag var hún til dæmis á kvöld­vakt á spít­al­anum en mætti svo beint á morg­un­vakt­ina í gær. „Þannig að ég fékk svona sex eða sjö tíma til að sofa,“ segir hún. „Ég var ennþá þrútin í and­lit­inu eftir síð­ustu vakt þegar ég setti á mig grímuna í morgun.“

Gríman sem fram­línu­fólkið þarf að bera til að forð­ast smit við störf sín er strekkt mjög þétt upp að vit­unum. Það getur verði óþægi­legt, sér­stak­lega til lengdar. Fólki verður heitt innan undir öllum hlífð­ar­bún­að­inum og það svitnar. Sjúkra­liðar á smit­sjúk­dóma­deild­inni eru yfir­leitt ekki í göll­unum lengur en einn og hálfan tíma í einu. Að þeim tíma loknum fara þeir út af sjúkra­stof­unum og úr bún­ing­unum en eru svo mættir aftur inn á gólf í þeim tvisvar eða þrisvar í við­bót á hverri vakt.

Planið hjá Ástu var upp­runa­lega að verða snyrti­fræð­ingur. Hún hóf nám við Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti og þar kvikn­aði áhug­inn á sjúkra­liðun. Ákvörð­un­ina um að leggja snyrti­fræð­ina á hill­una má rekja til kenn­ara í skól­anum. Áður en hún gat hafið nám í snyrtifræði þurfti hún að taka grunn­á­fanga og einn af þeim var í líf­færa- og líf­eðl­is­fræði. „Þann áfanga kenndi Karen Júlía Júl­í­us­dóttir og hún kveikti mik­inn áhuga hjá mér fyrir klínísku starfi. Og svo ákvað ég að taka sjúkra­lið­ann.“

Ásta útskrif­að­ist sem sjúkra­liði og stúd­ent síð­asta vor frá Fjöl­brauta­skól­anum í Breið­holti. Námið lá vel fyrir henni og hún var með hæstu ein­kunn á sjúkra­liða­braut­inni og sem­idúx skól­ans.

Planið hjá Ástu var upprunalega að verða snyrtifræðingur.
Planið hjá Ástu var upp­runa­lega að verða snyrti­fræð­ingur.

Síðasta sumar starf­aði hún á bráða- og lyf­lækn­inga­deild Land­spít­al­ans en í haust hóf hún nám í lög­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík. Hún segir það lengi hafa staðið til enda telur hún sjúkra­liða­mennt­un­ina koma að góðu gagni í fram­tíð­ar­starfi sem lög­fræð­ingur. „Ég á eftir að sjá hvert lög­fræðin tekur mig en það eru mörg svið innan hennar þar sem hægt verður að nýta þekk­ingu af sjúkra­liðun.“

Laga­námið gekk frá upp­hafi vel og Ásta náði mjög góðum ein­kunnum. „En svo kom kór­ónu­veiran,“ segir hún, „og það var óskað eftir sjúkra­liðum í bak­varða­sveit­ina. Ég skráði mig strax en sagð­ist ekki getað byrjað fyrr en eftir loka­prófin í vor.“

Og nú standa loka­prófin yfir. En Ásta er ekki að þreyta þau.

„Eftir að ég skráði mig í bak­varða­sveit­ina kom tölvu­póstur frá Háskól­anum í Reykja­vík þar sem fram kom að þeir sem væru búnir að ná við­un­andi árangri í verk­efnum og prófum til þessa á önn­inni gætu fengið það metið. Í stað loka­prófa og ein­kunnar myndi þá standa „stað­ist“. Ég sá að ef ég myndi ekki þurfa að liggja yfir und­ir­bún­ingi fyrir loka­próf hefði ég meiri tíma og breytti umsókn­inni minni í bak­varða­sveit­ina og sagð­ist geta komið strax til starfa.“

Skortur var á sjúkra­liðum á spít­al­anum fyrir far­aldur COVID-19 og því fékk Ásta sím­tal strax dag­inn eftir. Hún var beðin að koma til vinnu sem fyrst. Fyrsta dag apr­íl­mán­aðar var hún því mætt á vakt á smit­sjúk­dóma­deild­ina í Fossvogi.

„Ég fékk tvær vaktir í aðlögun og fylgdi þá reyndum sjúkra­liða eftir,“ segir Ásta. „Ég þekki þessa vinnu vel, hún er ekki ósvipuð þeirri sem ég hef sinnt áður á spít­al­anum – fyrir utan þennan galla auð­vitað.“

Hún við­ur­kennir að fyrst þegar hún mætti inn á sjúkra­stofu til sjúk­linga, klædd varn­ar­bún­aði frá hvirfli til ilja, hafi hún orðið and­stutt og hugsað hvað hún væri eig­in­lega búin að koma sér út í. „En þessi hræðsla gufaði fljótt upp. Óttinn við að vera að setja sig í hættu­legar aðstæður hvarf. Ég treysti gall­anum mínum og aðlag­að­ist ástand­inu mjög fljótt.“

Ásta í varnarbúningnum með mynd af sjálfri sér á bringunni svo að sjúklingarnir viti hvernig hún lítur út undir grímunni.
Ásta í varn­ar­bún­ingnum með mynd af sjálfri sér á bring­unni svo að sjúk­ling­arnir viti hvernig hún lítur út undir grímunni.

En hvað fellst í starfi sjúkra­liða?

„Sjúkra­liðar sinna nær­hjúkrun með áherslu á að upp­fylla grunn­þarfir sjúk­ling­anna,“ útskýrir Ásta. „Störf hjúkr­un­ar­fræð­inga og sjúkra­liða skar­ast oft en þeir vinna líka mjög náið saman. Á smit­sjúk­dóma­deild­inni og víðar á spít­al­anum vinna hjúkr­un­ar­fræð­ingur og sjúkra­liði saman í teymi. Við erum hönd í hönd í gegnum þetta allt saman. Við setjum okkur mark­mið í hjúkr­un­inni og skipu­leggjum hvernig við ætlum að fram­kvæma hana.“

Sjúkra­liðar eru því ávallt í mik­illi nánd við sjúk­ling­inn. Þeir sjá um böðun, að sjúk­lingar borði og fleira en einnig hafa þeir stöðugt eft­ir­lit með þeim.

Í starf­inu þurfa sjúkra­liðar að fylgj­ast vel með lífs­mörkum, þekkja byrjun á þrýst­ings­sárum og fram­kvæma alls konar rann­sóknir, svo sem hjarta­línu­rit og taka þvag­sýni.

Stór hluti af starfi sjúkra­liða fellst svo í að hlúa að líðan sjúk­ling­ana, tala við þá og hug­hreysta. Fólk sem þarf að leggj­ast inn á spít­ala líður oft illa and­lega og ekki síst núna þegar það er með nýjan sjúk­dóm sem getur verið lífs­hættu­legur. „Fyrst þegar sjúk­lingar leggj­ast inn á deild­ina þá líður mörgum þeirra ekki vel,“ segir Ásta.

Ásta segir að þrátt fyrir mikið álag séu dagarnir á smitsjúkdómadeildinni góðir. Hún hafi meiri tíma núna en áður til að tala við sjúklingana.
Ásta segir að þrátt fyrir mikið álag séu dag­arnir á smit­sjúk­dóma­deild­inni góðir. Hún hafi meiri tíma núna en áður til að tala við sjúk­ling­ana.

Allt heil­brigð­is­starfs­fólkið er með grímur fyrir vitum og gler­augu fyrir aug­unum. „Og það getur verið vont fyrir sjúk­linga að geta ekki séð brosið mitt og almenni­lega greint svip­brigðin mín. Það skiptir máli þegar maður þarf að ná per­sónu­legum tengslum. En við höfum verið að reyna að hugsa í lausnum og núna límum við mynd af okkur framan á bún­ing­inn þannig að fólk getur þá séð hvernig við lítum út undir grímunni. Sjúk­ling­arnir geta þá líka þekkt okkur í sundur – svo að við séum ekki öll bara grænar geim­verur.“

Hefur meiri tíma til að tala við sjúklingana og vera hjá þeim

Fjölgað hefur tölu­vert í starfs­lið­inu á smit­sjúk­dóma­deild­inni frá því að far­ald­ur­inn skall á enda þarf fleiri til að sinna COVID-smit­uðum, m.a. vegna þess að skipta þarf starfs­lið­inu upp í hópa til að fara inn á stof­urnar. „Það sem mér finnst hafa breyst frá því að ég vann á spít­al­anum síð­asta sumar er að þó að ég fram­kvæmi öll þau verk­efni sem ég ber ábyrgð á þá hef ég meiri tíma í nær­veru, þetta spjall. Þetta skiptir sjúk­ling­ana enn meira máli núna en áður því að þeir geta ekki fengið fjöl­skyldu og vini í heim­sókn. Þannig að við höfum meiri tíma til að tala við fólk og vera hjá því og reyna þannig að koma í veg fyrir van­líðan.“

Hún segir það sína upp­lifun að það rói fólk og geri því lífið örlítið létt­ara. „Mér finnst þetta hjálpa. Og ég verð að segja að núna finnst mér nógu vel mannað til að maður geti sinnt öllum sjúk­lingum vel. Þannig að mér líður vel í mínu starfi og finnst ég ná að gera það sem ég á að gera og ætla mér.“

Spurð hvort að vinnan á spít­al­anum muni skerða náms­lánin seg­ist Ásta sann­ar­lega vona að svo verði ekki. „Ef bak­vörður sem hleypur til í ástandi sem þessu, kemur til aðstoðar í far­aldri, þarf svo að end­ur­greiða hluta náms­lána sinna eða fær þau ekki, þá er það eitt­hvað sem þarf heldur betur að skoða.“

Ásta seg­ist lítið annað gera þessa dag­ana en að vinna og vera með fjöl­skyldu sinni, manni sínum Marinó Flóvent Mar­inós­syni og tíu ára dóttur sinni Evu Rós. Hún mun í sumar þegar álag vegna COVID-19 minnkar starfa sem sjúkra­liði á bráða­lyf­lækn­inga­deild og að því loknu tekur lög­fræði­námið aftur við.

Sjúkraliðar aldrei fengið vaktaálagsauka

Það mætti segja að him­inn og haf séu á milli þess sem lög­fræð­ingur getur haft í laun og þess sem sjúkra­liði hefur. Kjara­bar­átta sjúkra­liða hefur verið áber­andi síð­ustu ár og skortur á slíku fag­fólki við­var­andi á sama tíma.

Kjara­samn­ingar voru loks sam­þykktir fyrr á þessu ári og eiga umsamdar launa­hækk­anir sam­kvæmt þeim að taka gildi í þrepum til árs­ins 2022. Ásta segir að í hinum nýja samn­ingi sé kveðið á um að þegar unnið er undir miklu álagi, eins og sjúkra­liðar og annað heil­brigð­is­starfs­fólk gerir þessa mán­uð­ina, sé heim­ild til sér­stakrar greiðslu af þeim sökum.

„Mér finnst að það eigi hik­laust að virkja þessa heim­ild núna,“ segir Ásta, „sjúkra­liðar hafa aldrei fengið vakta­á­lags­auka eins og sumar aðrar stéttir heil­brigð­is­starfs­fólks. Núna hefur verið tekin ákvörðun um að fram­lengja álags­auka til hjúkr­un­ar­fræð­inga sem er ekk­ert annað en eðli­legt og skilj­an­legt. En sjúkra­liðar fá ekk­ert slíkt og mér finnst vanta rökin fyrir því að skilja okkur eftir.“

Ásta telur ríkt tilefni nú til að virkja heimild í nýjum kjarasamningum sjúkraliða sem kveða á um álagsgreiðslur vegna óvenjulegra aðstæðna.
Ásta telur ríkt til­efni nú til að virkja heim­ild í nýjum kjara­samn­ingum sjúkra­liða sem kveða á um álags­greiðslur vegna óvenju­legra aðstæðna.

Hún bendir einnig á að sjúkra­liðar vinna þrí­skiptar vaktir og ekki er hægt að vinna í 100 pró­sent starfi án þess að brjóta reglur um hvíld­ar­tíma á milli vakta. „Hjúkr­un­ar­fræð­ingar fengu álags­auka með þessum rökum og þeim að fjölga þyrfti í þeirra hópi á spít­al­anum. Allt þetta á líka við um sjúkra­liða.”

Ásta segir að langar vaktir í bún­ingnum heita séu erf­iðar og hún sé þreytt eftir þær. „En peppið frá sam­fé­lag­inu er gíf­ur­lega gef­andi. Manni líður pínu­lítið eins og íþrótta­manni með stuðn­ings­menn á hlið­ar­lín­unni. Að finna þennan stuðn­ing er virki­lega hvetj­andi. Sama gildir um allt sam­starfs­fólkið, við erum öll í sama lið­inu og erum dug­leg að styðja og hvetja hvert annað áfram. En það skal segj­ast eins og er að það vantar upp á þessa hvatn­ingu frá stjórn­völdum og að hún skili sér í bættum kjörum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár