Jeb Bush og Hillary Clinton með mest fé til að spila úr - Þessu hafa framboðin safnað

Jeb Bush, fram­bjóðandi í forvali Repúblikana­flokksins til forseta­kosninganna í Banda­ríkjunum 2016, hefur safnað mestu kosningafé af öllum forseta­fram­bjóðendum, alls um 114,4 milljónum dollara, jafnvirði um 15,4 milljarða króna. Sá fram­bjóðandi sem hefur safnað næst mestu er Hillary Rodman Clinton, sterkasti fram­bjóðandinn í forvali Demókrata. Framboð hennar hefur safnað um 63 milljónum dollara, jafnvirði um 8,5 milljarða króna.

Frestur flestra framboða til að skila gögnum um fjárhagsmál rann út í gær, miðvikudag, en sérstök nefnd á vegum ríkisins heldur utan um hversu mikla fjármuna er aflað og hversu miklu er eytt. Nefndin mun allt fram að kosningum kalla reglulega eftir gögnum um fjármál fram­boðanna. NY Times er meðal þeirra fjölmiðla sem fjalla um málið í dag með myndrænni fram­setningu. Listinn hér að neðan er unninn úr umfjöllun bandaríska blaðsins. Í þriðja dálki hafa upphæðir verið færðar í íslenskar krónur.

Fram­bjóð­andi Hefur safnað (í millj­ónum doll­ara) Hefur safnað (í millj­ónum króna)
Jeb Bush (R) 114,4 15.444
Hillary Clinton (D) 63,1 8.519
Ted Cruz (R) 52,3 7.061
Marco Rubio (R) 40,7 5.495
Rick Perry (R) 17,9 2.417
Bernie Sanders (D) 15,2 2.052
John Kasich (R) 11,5 1.553
Ben Carson (R) 10,6 1.431
Mike Huckabee (R) 8 1.080
Rand Paul (R) 6,9 932

Jeb Bush, bróðir George Bush yngri, fyrrum for­seta Banda­ríkj­anna, hefur fyrst og fremst safnað pen­ingum í gegnum utan­að­kom­andi hópa, svo­kall­aða PAC-hópa sem eru ekki á vegum Bush en styðja hann með miklum fjár­munum frá fyr­ir­tækjum, þrýsti­hópum og sterk­efn­uðum ein­stak­lingum. Alls hefur Jeb Bush fengið 103 millj­ónir doll­ara frá slíkum hópum. Aðrir fram­bjóð­endur sem hafa fengið stærstan hluta með sama hætti eru Repúblik­arnir Ted Cruz, Marco Rubio og Rick Perry. Þeir hafa safnað 38 millj­ónum, 31,9 millj­ónum og 16,8 millj­ónum doll­ara með þessum hætti.

Hillary Clinton hefur fengið um 15,6 miljónir dollara frá PAC-hópum. Ef litið er til hversu mikið framboðin sjálf hafa safnað þá trónir Clinton efst, samtals hafa 47,5 milljónir dollara runnið beint til fram­boðsins. Á eftir henni kemur Bernie Sanders, sem einnig er í framboði fyrir Demókrata og hefur sótt á í skoðana­könnunum undan­farnar vikur. Sanders er á vinstri væng bandarískra stjórn­mála og hefur meðal annars talað gegn miklum áhrifum fjármagns í stjórnmála­baráttunni í landinu. Ríflega 80 prósent af þeim tveimur milljörðum króna sem framboð hans hefur safnað, hafa komið frá einstaklingum sem gefa 200 dollara eða minna. Tvö hundruð dollarar eru rúmlega 25 þúsund krónur.

Þá birtir NY Times einnig yfirlit yfir hversu miklu fram­bjóðendurnir hafa eytt í barátt­unni til þessa, en yfirlitið nær til 30. júní 2015. Auðkýfingurinn umdeildi Donald Trump hefur eytt um 75 prósent af þeim 1,4 milljónum dollara sem kosninga­skrifstofa hans hefur haft til umráða fram til þessa. Repúblikaninn Ben Carson hefur eytt 5,9 milljónum dollara, eða um 64 prósent af kosningafé, og Rick Santorum hefur eytt um 400 þúsund dollurum. Það jafn­gildir um 62 prósentum af kosninga­sjóði hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár