Viðskiptaráð segir að íslenska þjóðin geti ekki átt fiskveiðiheimildir

Að mati Við­skipta­ráðs telj­ast afla­heim­ildir, sem ráð­stafað hefur verið til útgerða án end­ur­gjalds, til eigna­rétt­inda. Það telur skil­yrði fyrir þjóð­nýt­ingu þeirra, með vísan til almanna­hags­muna, vera umdeil­an­lega.

Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um tíma­bind­ingu veiði­heim­ilda til 20 ára.
Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar, er fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um tíma­bind­ingu veiði­heim­ilda til 20 ára. Mynd: Bára Huld Beck

Við­skipta­ráð Íslands telur að íslenska þjóðin geti ekki átt fisk­veiði­heim­ildir. Það telur enn fremur að yfir­lýs­ing þess efnis í lögum um stjórn fisk­veið­veiða, þar sem stendur í fyrstu máls­grein að „nytja­stofnar á Íslands­miðum eru sam­eign íslensku þjóð­ar­innar“ hafi ekki beina þýð­ingu í eign­ar­rétt­ar­legu til­liti. „Aftur á móti getur ríkið eða stofn­anir þess notið eign­ar­réttar og færi betur á því að það væri þá orðað beinum hætti, standi vilji til þess.“

Þetta kemur fram í umsögn Við­skipta­ráðs um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þing­flokks Við­reisnar um að fela mat­væla­ráð­herra að breyta áður­nefndum lögum þannig að veiði­heim­ildum yrði úthlutað tíma­bundið til 20 ára. Gengi þetta eftir myndi heild­ar­afla­hlut­deild í öllum teg­undum fyrn­ast um fimm pró­sent á ári og sama hlut­deild í kjöl­farið seld á upp­boðs­mark­aði til 20 ára í senn.

Segir aflaheimildir teljast til eignaréttinda

Í til­lög­unni segir að laga­leg óvissa kvóta­kerfis með fram­selj­an­legum veiði­heim­ildum snúi fyrst og fremst að eign­ar­rétt­ar­legri stöðu veiði­heim­ilda í kjöl­far ótíma­bund­innar úthlut­unar þeirra.

Þessu er Jóhannes Stef­áns­son, lög­fræð­ingur Við­skipta­ráðs sem skrifar umsögn­ina, full­kom­lega ósam­mála. Hann telur óviss­una um eign­ar­rétt­indi yfir afla­heim­ildum ekki fyrir hendi og í öllu falli ofmetin. „Afla­heim­ildir telj­ast til eign­ar­rétt­inda og skil­yrði fyrir þjóð­nýt­ingu þeirra, með vísan til almanna­hags­muna, eru umdeil­an­leg. Standi vilji til þess að þjóð­nýta afla­heim­ildir færi betur á því að taka það með skýrum hætti fram að þær yrðu eign rík­is­ins, þar sem hug­takið þjóð­ar­eign hefur tak­mark­aða þýð­ingu í laga­legu til­liti.“

Á þessum grund­velli leggst Við­skipta­ráð gegn þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni.

Fengu kvóta afhentan án endurgjalds

Kvóta­kerf­inu var komið á með lögum árið 1983. Við úthlutun kvóta var miðað við afla­reynslu síð­ustu þriggja ára og hann afhentur án end­ur­gjalds. Fram­sal á kvóta var síðan gefið frjálst sem gerði það að verkum að við­skipti fóru að vera með þessa vöru sem var í upp­hafi lánuð án greiðslu.

Sumir útgerð­ar­menn seldu þá afla­heim­ild­irnar sem þeim hafði verið úthlutað frítt, meðal ann­ars vegna þess að þeir voru komnir af vinnu­aldri. Aðrir sáu sér ein­fald­lega leik á borði þegar kvót­inn varð skyndi­lega orð­inn verð­mætur og inn­leystu hagnað og fjár­festu í öðrum atvinnu­grein­um. Enn aðrir seldu kvóta vegna hjóna­skiln­að­ar. Og allt þar á milli.

Árið 1997 var svo gefin heim­ild til að veð­setja afla­heim­ildir fyrir lán­um, sem voru notuð til að kaupa upp kvóta eða eftir atvikum aðrar eign­ir.

Fyrir vikið hækk­uðu afla­heim­ild­irnar hratt í verði og mjög margir urðu mjög rík­ir.

Þessi staða leiddi til þess að flest fólk sem byrj­aði með tvær hendur tómar hefur ekki lengur tök á að kaupa sér nokkra tugi tonna af kvóta og bát með. Það er ekki á færi ann­arra en sterk­efn­aðra. Auk þess er stærð­ar­hag­kvæmni í grein­inni orðin svo ráð­andi þáttur að erfitt er að „keppa“ við stærri fyr­ir­tækin þegar kemur að verðum á mark­aði og stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin eiga heilu virð­is­keðj­unnar í heild sinn­i.

Í stað þess að það verði mikil end­ur­nýjun eða nýliðun í grein­inni þá selja yfir­leitt eldri útgerð­ar­menn, hvort sem er í smá­út­gerðum eða stærri, sem eiga litla kvóta­pakka, til stóru útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna sem sjá sér hag í að bæta við kvóta og hag­ræða enn frekar í rekstri, enda hafa þau yfir að ráða tækjum og tólum til að nýta kvót­ann bet­ur, með hag­kvæmri vinnslu. Og frek­ari sam­þjöppun verð­ur.

Tíu stærstu með yfir 67 prósent kvótans

Þegar Fiski­­stofa tók saman kvóta­­stöðu allra útgerða í haustið 2020 var nið­­ur­­staðan sú að engin ein útgerð héldi á meiri kvóta en lög heim­ila, en sam­­kvæmt því má engin ein tengd blokk hald á meira en tólf pró­­sent af heild­­ar­verð­­mæti úthlut­aðra afla­heim­ilda hverju sinni. Brim, sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki sem er skráð á mark­að, var efst á list­­anum yfir þær útgerðir sem héldu á mestu með 10,45 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta.

Tíu stærstu útgerð­­irnar héldu sam­an­lagt á 53,1 pró­­sent af kvót­an­­um. Það var svipuð staða og hafði verið árin á und­­an.

Fiski­­stofa, sem hefur eft­ir­lit með því að yfir­­ráð ein­stakra aðila yfir afla­hlut­­deildum fari ekki umfram lög­­bundin mörk, birti nýja sam­an­­tekt á sam­­þjöppun afla­hlut­­deildar í byrjun nóv­em­ber í fyrra. Þar birt­ist ný staða. Nú var ein útgerð, Brim, komin yfir lög­­bundið kvóta­­þak og tíu stærstu útgerð­­irnar héldu nú á 67,45 pró­­sent á öllum úthlut­uðum kvóta. Brim seldi í kjöl­farið hluta afla­heim­ilda sinna til útgerðar í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar, for­stjóra Brims.

Fjórar blokkir voru með yfir­ráð yfir 60 pró­sent af öllum kvóta sem úthlutað hefur verið á Íslandi. Sú stærsta, sem hverf­ist um Sam­herja, heldur nú á næstum fjórð­ungi alls kvóta eftir Síld­ar­vinnslan, þar sem Samherji er stærsti eig­and­inn, til­kynnti um kaup á Vísi í sumar.

Meira í arð en opin­ber gjöld

Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins, sam­tala arð­greiðslna og auk­ins eigin fjár þeirra, vænk­að­ist um meira en 500 millj­arða króna frá banka­hruni og til loka árs 2020. Geir­inn greiddi sér meira út í arð, alls 21,5 millj­arða króna, á árinu 2020 en hann greiddi í öll opin­ber gjöld, alls 17,4 millj­arða króna. Inni í þeirri tölu eru veið­i­­­gjöld (4,8 millj­­arðar króna), tekju­skattur (7,3 millj­­arðar króna) og áætlað trygg­inga­gjald (5,3 millj­­arðar króna).

Þetta var í eina skiptið á tíma­bil­inu 2015-2020 sem sjá­v­­­ar­út­­­veg­­ur­inn hafði greitt minna í opin­ber gjöld en hann tók út í arð­greiðsl­­ur innan árs. Raunar hafði geir­inn ein­ungis einu sinni greitt jafn lítið í bein opin­ber gjöld innan árs á því tíma­bili og hann gerði í 2020, en það var árið 2017 þegar heild­­ar­greiðslur hans í opin­ber gjöld voru 15,8 millj­­arðar króna.

Nýjar tölur um arð­semi í sjáv­ar­út­vegi á árinu 2021 verða opin­ber­aðar í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár