Nýr ríkisendurskoðandi verður kosinn fyrir sumarfrí Alþingis

Fyrsti vara­for­seti Alþingis er bjart­sýn á að nýr ríki­end­ur­skoð­andi verði kos­inn á Alþingi fyrir þing­frestun sem áætluð er í lok vik­unnar. Rík­is­end­ur­skoðun hyggst skila Alþingi skýrslu um úttekt emb­ætt­is­ins á sölu rík­is­ins á hlut í Íslands­banka í lok júní.

For­sætis­nefnd hyggst gera til­lögu til þings­ins um ein­stak­ling til að gegna emb­ætt­i ríkisendurskoðanda, sem svo verður kjör­inn á þing­fundi, fyrir þingfrestun sem áætluð er í lok vikunnar.
For­sætis­nefnd hyggst gera til­lögu til þings­ins um ein­stak­ling til að gegna emb­ætt­i rík­is­end­ur­skoð­anda, sem svo verður kjör­inn á þing­fundi, fyrir þing­frestun sem áætluð er í lok vik­unnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Það mun draga til tíð­inda fljót­lega,“ segir Oddný G. Harð­ar­dóttir, 1. vara­for­seti Alþingis, nefnd­ar­maður í for­sætis­nefnd og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í sam­tali við Kjarnann, aðspurð hvort nýr rík­is­end­ur­skoð­andi verði kos­inn á Alþingi áður en þingið fer í sum­ar­frí.

Sérstök ráð­gjaf­ar­nefnd var skipuð í byrjun apríl vegna kosn­ingar rík­is­end­ur­skoð­anda sem fyr­ir­huguð var í maí. Svo varð ekki en Oddný seg­ist bjart­sýn á að nýr rík­is­end­ur­skoð­andi verði kos­inn áður en þingi verði frestað. „Ég hef fulla trú á því,“ segir Oddný.

Þor­geir Örlygs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, Stefán Svav­ars­son, lög­giltur end­ur­skoð­andi, og Katrín D. Ólafs­dótt­ir, sér­fræð­ingur í mannauðs­málum og fram­kvæmda­stjóri Hag­vangs, skipa ráð­gjaf­ar­nefnd vegna kosn­ingar rík­is­end­ur­skoð­anda. Þor­geir er jafn­framt for­maður nefnd­ar­inn­ar.

Ásamt Oddnýju hafa tveir nefnd­ar­menn for­sætis­nefndar, Birgir Ármanns­son, for­seti Alþing­is, og Líneik Anna Sæv­ars­dótt­ir, 2. vara­for­seti, starfað náið með ráð­gjaf­ar­nefnd­inni. Áætlað var að nýr rík­is­end­ur­skoð­andi yrði kos­inn í maí.

„Það eru ákveðnar reglur sem við förum eftir sem for­sætis­nefnd hefur sett sér þegar verið er að kjósa um rík­is­end­ur­skoð­anda. Það var skipuð ráð­gjafa­nefnd, hún gaf okkur ráð og við vinnum svo áfram með þau ráð. For­sætis­nefnd kemur svo með til­lögur en þetta er allt í ferli,“ segir Oddný í sam­tali við Kjarnann.

Starfandi ríkisendurskoðandi meðal umsækjenda

Guð­mundur B. Helga­son stjórn­mála­fræð­ingur er starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi eftir að Skúli Egg­ert Þórð­ar­son, sem skip­aður var rík­is­end­ur­skoð­andi 2018, tók við emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu 1. febr­ú­ar.

Í kjöl­farið fól for­seti Alþingis Guð­mundi að gegna starfi rík­is­end­ur­skoð­anda þar til kosn­ing nýs rík­is­end­ur­skoð­anda hefur farið fram á Alþingi. Guð­mundur Björg­vin er stað­geng­ill rík­is­end­ur­skoð­anda en hann er sviðs­stjóri hjá Rík­is­end­ur­skoðun og for­stöðu­maður skrif­stofu emb­ætt­is­ins á Akur­eyri. Hann var áður ráðu­neyt­is­stjóri í land­bún­að­ar­ráðu­neyti og mannauðs­stjóri hjá Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna í Jórdan­íu.

Guð­mundur er í hópi 12 umsækj­enda um emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­anda. Sam­kvæmt lögum mun for­sætis­nefnd nú gera til­lögu til þings­ins um ein­stak­ling til að gegna emb­ætt­inu, sem svo verður kjör­inn á þing­fundi. Alþingi kýs rík­is­end­ur­skoð­anda til sex ára í senn, en heim­ilt er að end­ur­kjósa sama ein­stak­ling einu sinn­i.

„Þetta er skrýtinn vinnustaður“

Að sögn Oddnýjar stefnir For­sætis­nefnd að því að kosið verði um nýjan rík­is­end­ur­skoð­anda áður en þingi verður frestað fyrir sum­ar­frí. Samkvæmt starfs­á­ætlun þings­ins er síð­asti þing­fundur fyrir þing­frestun áætl­aður á fimmtu­dag. Oddný telur að þingið muni starfa fram í þar næstu viku.

„Algjör­lega ábyrgð­ar­laust, en af reynsl­unni, þá verður þetta klárað fyrir 16. júní, af því að þá þarf að taka til í þing­hús­inu, þetta eru bara praktískar ástæður. Ég held það, en hvað veit ég, þetta er skrýt­inn vinnu­staður,“ segir Oddný. Auk þess segir hún stórt ágrein­ings­mál bíða umfjöll­unar, útlend­inga­frum­varp Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra.

„En það er auð­vitað verið að vinna í því og reyna að lenda því,“ segir Oddný. Sam­fylk­ing, Viðreisn og Flokkur fólks­ins hafa lagt fram sex ítar­legar breyt­ing­ar­til­lögur á útlend­inga­frum­varpi dóms­mála­ráð­herra í því skyni að liðka fyrir samn­ingum um þing­lok. Píratar vildu ekki vera með vegna þess að þeir vilja ekki semja um málið.

Kosning nýs ríkisendurskoðanda hefur ekki áhrif á úttekt embættisins á sölunni á hlut í Íslandsbanka

Rík­is­end­ur­skoðun stefnir á að skila Alþingi sýrslu um úttekt emb­ætt­is­ins á útboði og sölu rík­is­ins á hlut í Íslands­banka í síð­ustu viku þessa mán­aðar. „Við gerum því enn ráð fyrir að senda Alþingi skýrslu fyrir lok mán­að­ar­ins,“ segir Guð­mundur Björgvin Helgason, starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, við skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarnans.

Hann segir kosn­ingu nýs rík­is­end­ur­skoð­anda ekki hafa áhrif á yfir­stand­andi verk­efni emb­ætt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár