Tólf sækjast eftir embætti ríkisendurskoðanda

Tólf manns gefa kost á sér til þess að taka við emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­anda. Alþingi mun kjósa í emb­ættið í maí­mán­uði, eftir að for­sætis­nefnd Alþingis leggur fram til­nefn­ingu sína.

Tólf manns sótt­ust eftir emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­anda, en for­sætis­nefnd Alþingis hvatti áhuga­sama ein­stak­linga í byrjun febr­úar til þess að senda inn erindi og lýsa yfir áhuga, eftir að Skúli Eggert Þórð­ar­son fyrr­ver­andi rík­is­end­ur­skoð­andi hafði verið skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri nýs menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytis.

Á meðal þeirra sem hafa lýst því yfir að þeir hafi áhuga á að taka við emb­ætt­inu eru starf­andi Guð­mundur Björgvin Helgason, sem í dag er starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi.

Þau sem gefa kost á sér:

  • Ásgeir Brynjar Torfason, PhD í reikn­ings­skilum
  • Birgir Finn­boga­son, lög­giltur end­ur­skoð­andi
  • Davíð Ólafur Ingi­mars­son, stjórn­sýslu­fræð­ingur
  • Eiríkur Ein­ars­son, við­skipta­fræð­ingur
  • Guð­mundur Björgvin Helgason, stjórn­mála­fræð­ingur
  • Guðrún Torf­hildur Gísla­dóttir, lög­giltur end­ur­skoð­andi
  • Jón Arnar Baldurs, lög­giltur end­ur­skoð­andi
  • Jón H. Sig­urðs­son, lög­giltur end­ur­skoð­andi
  • Jón Magn­ús­son, við­skipta­fræð­ingur
  • Kristrún Helga Ing­ólfs­dóttir, lög­giltur end­ur­skoð­andi
  • Páll Grétar Stein­gríms­son, lög­giltur end­ur­skoð­andi
  • Sigurður H. Helgason, stjórn­sýslu­fræð­ingur.

Samkvæmt lögum mun for­sætis­nefnd nú gera til­lögu til þings­ins um ein­stak­ling til að gegna emb­ætt­inu, sem svo verður kjör­inn á þing­fundi. Alþingi kýs rík­is­end­ur­skoð­anda til sex ára í senn, en heim­ilt er að end­ur­kjósa sama ein­stak­ling einu sinni.

Und­ir­nefnd for­sætis­nefndar, sem þau Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis og for­maður und­ir­nefndar, Oddný G. Harð­ar­dóttir, 1. vara­for­seti, og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, 2. vara­for­seti skipa, hefur gengið frá skipan ráð­gjaf­ar­nefndar. Ráð­gjaf­ar­nefndin verður und­ir­nefnd­inni til aðstoðar við að gera til­lögu til for­sætis­nefndar um þann ein­stak­ling sem for­sætis­nefnd til­nefnir.

Samkvæmt til­kynn­ingu á vef Alþingi munu eft­ir­taldir sér­fræð­ingar skipa ráð­gjaf­ar­nefnd­ina: Þorgeir Örlygs­son, fv. for­seti Hæsta­réttar, sem er jafn­framt for­maður nefnd­ar­innar, Katrín S. Óla­dóttir, sér­fræð­ingur í mannauðs­málum og fram­kvæmda­stjóri Hagvangs, og Stefán Svav­ars­son, lektor og lög­giltur end­ur­skoð­andi. Starfs­maður nefnd­ar­innar er Heiðrún Páls­dóttir, rit­ari for­seta Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár