Duff bjórinn hans Homer Simpson á leiðinni í framleiðslu - í alvörunni

Bandaríski afþreyingar­risinn 21st Century Fox hyggur á fram­leiðslu á hinum heims­fræga Duff bjór, sem hefur verið eftirlætis bjór Homer Simpson um áraraðir, í raun­veru­leikanum. Fyrir­tækið hyggst gera bjórinn að sterku og aðlaðandi vörumerki og tilkynnti um fyrir­ætlanir sínar í gær. Frétta­miðillinn Time greinir frá málinu.

„Ég held að það sé möguleiki á því að það verði hægt að fá sér Duff hvar sem er í heiminum í fram­tíðinni,“ sagði Jeffrey Godsick, forstjóri neytenda­vörudeildar Fox í viðtali við the Wall Street Journal.

Þrátt fyrir að vera ekki alvöru bjór er Duff bjórinn frægur út um allan heim enda hefur Homer Simpson, ein frægasta sjónvarps­stjarna heims, ekki drukkið annan bjór í áraraðir í einni vinsælustu þátta­seríu sjónvarps­sögunnar. Enda hafa bjór­fram­leiðendur víða um heim, til að mynda í Þýska­landi, Kólumbíu og Ástralíu bruggað bjór undir merkjum Duff, sem hefur ávallt verið mætt af hörku frá Fox sem hefur krafist lögbanns á bjór­fram­leiðsluna jafn óðum.

Nú hyggst fjölmiðlarisinn sjálfur hefja fram­leiðslu á Duff bjór, þar sem engar tilvísanir í Simpson þættina verður að finna á umbúðunum, heldur munu flöskurnar og dósirnar einungis líta út eins og þær í sjónvarps­þáttunum.

Í fyrstu verður vöru­merkið einungis mark­aðsett í Sjíle, þar sem ólöglegar útgáfur af Duff bjórnum hafa nú þegar tröllriðið markaðnum. Þá verður bjórinn gerður aðgengi­legur víðar í Suður-Ameríku og svo Evrópu fljótlega í kjölfarið. Ekki hefur verið gefið út hvenær Duff bjór verður tekinn í almenna sölu í Banda­ríkjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár