Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider fylgist vel með og setur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum hverju sinni. Listinn í dag er fjöl­breyttur og sem fyrr er ýmislegt merkilegt að gerast annars staðar en á Íslandi.


  1. Grikkir kynntu umbóta­tillögur sínar fyrir leiðtogum evru­ríkjanna í gærkvöldi. Tillögunum hefur verið vel tekið en ekki er búið að ná samkomu­lagi um fram­haldið. Grikkir þurfa áfram­haldandi neyðarlán til að greiðslu­fall verði ekki.

  2. Allar flugvélar í Nýja Sjálandi voru kyrr­settar í dag eftir bilun í ratsjár­kerfum.

  3. Leit að tveimur morðingjum, sem sluppu úr fangelsi í New York-ríki fyrir rúmum hálfum mánuði síðan, breyttist í gær þegar lífsýni úr þeim fundust í sumarhúsi sem hafði verið brotist inn í rúmum 30 kíló­metrum vestur af fangelsinu.

  4. Hersveitir Kúrda sækja nú hratt inn í Raqqa-hérað í Sýrlandi, en það er eitt sterkasta vígi Íslamska ríkisins.

  5. Í kjölfar skot­árásarinnar á kirkju í Suður-Karólínu í síðustu viku hefur ákall um að fáni Suður­ríkjanna verði fjar­lægður úr opinberum byggingum í ríkinu. Ríkis­stjórinn er meðal þeirra sem styður þetta.

  6. Starfs­menn flug­félagsins Lufthansa hóta nú að fara í verkfall fram í september ef ekki semst um laun og lífeyris­réttindi þeirra fyrir mánaðarlok.

  7. Rússar ætla að fram­lengja bann við innflutningi á vestrænum matvælum fram á næsta ár til að hefna fyrir fram­lengingu Vestur­landa á efnahags­þvingunum sínum gagnvart Rússlandi.

  8. Fjöldi dýra- og plöntu­tegunda sem eru í útrýmingar­hættu jókst úr 22.413 tegundum í 22.784 tegundir milli ára.

  9. Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunin segir að að eitur sem er mjög víða notað til að drepa illgresi, 2,4-dichlorophenoxyacetic-sýra, geti mögulega valdið krabba­meini.

  10. Þrátt fyrir mótmæli dýra­verndunar­sinna var þúsundum hunda slátrað í Kína um helgina, á árlegum hunda­hátíðar­höldum í bænum Yulin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár