Spurði forsætisráðherra út í varnarsamninginn – sem sagði þingmanninn grípa til mælskubragða

For­sæt­is­ráð­herra og for­maður Við­reisnar ræddu öryggis- og varn­ar­mál Íslend­inga á Alþingi í dag. Ráð­herr­ann sagði að engin ástæða væri til að reyna að láta líta svo út að íslensk stjórn­völd væru ekki að gera allt sem í þeirra valdi stæði.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag hvort hún teldi ástæðu til þess að taka upp varn­ar­samn­ing­inn við Banda­ríkin á ný.

For­sæt­is­ráð­herra svar­aði og sagði að henni þætti vara­samt hjá Þorgerði Katrínu að sá þeim fræjum að varn­ar­samn­ing­ur­inn stæð­ist ekki tím­ans tönn. „Hann er fyrir hendi. Hann hefur verið upp­færður tvisvar sinnum, 2006 og svo 2016,“ sagði Katrín.

Þing­mað­ur­inn hóf fyr­ir­spurn sína með því að segja að það væri algjör grund­vall­ar­skylda stjórn­valda hverju sinni að verja öryggi borg­ar­anna. „Það þarf reglu­bundið stöðu­mat og stjórn­völd þurfa að hafa bæði þor og kjark til að gera það en ekki ýta sjálf­krafa kostum út af borð­inu sem geta reynst þjóð­inni mik­il­vægir til að verja landið og tryggja öryggi borg­ar­anna. Ég tók reyndar eftir því að for­sæt­is­ráð­herra taldi með öllu óþarft að tryggja við­veru varn­ar­liðs hér á landi. Gott og vel. Það getur verið að það sé yfir­lýs­ing ætluð til heima­brúks innan VG, en mér þykir verra að ekk­ert mat á samt að gera á örygg­is­hags­munum í þessu sam­hengi, að minnsta kosti hefur okkur í utan­rík­is­mála­nefnd ekki verið kynnt það,“ sagði hún.

Varnarsamningurinn ekki nægilega skýr

Telur Þor­gerður Katrín að meta þurfi og kort­leggja hvernig öryggis- og varn­ar­hags­munum Íslend­inga sé best borgið, hvort sem það sé í gegnum mark­visst varn­ar­starf eða annað alþjóð­legt sam­starf sem geti stuðlað að friði og öryggi.

„Þess vegna höfum við í þing­flokki Við­reisnar lagt fram til­lögu um alþjóð­legt sam­starf í öryggis-, utan­ríkis- og varn­ar­málum. Varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin er einn af horn­steinum okkar Íslend­inga þegar kemur að þjóðar­ör­yggi og hann er frá árinu 1951. Aðstæður eru veru­lega breyttar.

Varn­ar­samn­ing­ur­inn þarf með ótví­ræðum hætti að taka til netárása sem bein­ast gegn öryggi lands­ins. Hann þarf líka að taka til mik­il­vægis órof­inna sam­gangna, inn­viða og sam­skipta Íslands við umheim­inn á ófrið­ar­tímum, eins og birgða­flutn­inga, sæstrengja eða orku­ör­yggis. Þetta gerir samn­ing­ur­inn ekki í dag. Hann þarf að geyma skýr ákvæði um verk­ferla. Þetta er gríð­ar­lega mik­il­vægt. Hann þarf að geyma skýr ákvæði um verk­ferla og ábyrgð á töku ákvarð­ana, komi til þess að við þurfum að virkja aðstoð Banda­ríkj­anna sam­kvæmt samn­ingnum. Það er ekki skýrt í dag. Það ógnar öryggi okkar Íslend­inga. Og það er heldur ekki skýrt hversu langur þessi lág­marks­tími þarf að vera til að aðstoð ber­ist til lands­ins.“

Spurði Þor­gerður Katrín for­sæt­is­ráð­herra hvort hún teldi ekki ástæðu til þess að taka upp varn­ar­samn­ing­inn við Banda­ríkin – ekki síst þegar öryggis- og varn­ar­hags­munir lands­ins væru hafðir í huga.

Þarf að hafa marga þætti í huga þegar hugað er að öryggi borgaranna

Katrín svar­aði og sagði að það væri mjög mik­il­vægt að Alþingi allt starf­aði og ynni sam­kvæmt hinni sam­þykktu þjóðar­ör­ygg­is­stefnu. Einn þáttur hennar væri varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin. Annar þáttur væri aðildin að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu en alls væri hún í tíu liðum.

„Mér finnst ástæða til að vekja máls á því, af því að þetta er eðli­lega til umræðu núna, að við ræðum hvernig öryggi okkar verður sem best tryggt. Ég vil leyfa mér að segja að á und­an­förnum fjórum árum hefur á vett­vangi þjóðar­ör­ygg­is­ráðs verið unnið alveg gríð­ar­legt starf í því að fylgja eftir öllum þáttum þjóðar­ör­ygg­is­stefn­unnar, öllum tíu þátt­unum, og yfir það er farið í þess­ari skýrslu um fram­kvæmd þjóðar­ör­ygg­is­stefn­unnar.

Það liggur alger­lega fyrir að það eru mjög margir þættir sem þarf að hafa í huga þegar við hugum að öryggi borg­ara okkar. Það er net­ör­yggi, það er fjar­skipta­ör­yggi. Þegar við horfum á þau átök sem nú eru fyrir hendi held ég að við getum alger­lega óhikað metið það svo að sú áhætta felist ekki ein­göngu í því sem við getum kallað hefð­bundna hern­að­ar­lega þætti heldur ekki síður í net­ör­ygg­is­málum, fjar­skipta­ör­yggi og öðrum þeim þáttum sem lúta að því að við tryggjum öryggi mik­il­vægra inn­viða og að því hefur verið unnið,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann.

Katrín rifj­aði upp að áhættu­mat hefði verið gefið út af hálfu þjóðar­ör­ygg­is­ráðs árið 2021. „Við erum búin að ákveða á vett­vangi þjóðar­ör­ygg­is­ráðs að upp­færa það mat með hlið­sjón af þess­ari stöðu til að geta lagt sjálf­stætt mat á það hvað er mik­il­væg­ast að gera til að bregð­ast við. Enn fremur liggur fyrir, og það hefur komið fram, að við­bún­að­ar­á­ætl­anir Atl­ants­hafs­banda­lags­ins fyrir öll svæði banda­lags­ins, svæðin eru fimm, hafa verið virkj­aðar sem þýðir að þar er alls staðar sér­stök við­bún­að­ar­á­ætlun í gildi og að sjálf­sögðu tökum við fullan þátt í því. En næsta skref á vett­vangi þjóðar­ör­ygg­is­ráðs er að upp­færa þetta mat þannig að við getum lagt sjálf­stætt mat á það hvar þörfin er í raun og veru brýn­ust.“

„Það er eitthvað mjög erfitt og viðkvæmt hér í gangi“

„Þetta er athygl­is­vert,“ sagði Þor­gerður Katrín. „For­sæt­is­ráð­herra, sem situr í rík­is­stjórn sem meðal ann­ars Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er aðili að, getur ekki sagt skýrt og klárt að það eigi að taka upp varn­ar­samn­ing­inn við Banda­ríkin, sem er frá árinu 1951, í ljósi þjóð­ar­hags­muna, þjóðar­ör­yggis. Það segir ekki skýrt í samn­ingnum hversu langan tíma Banda­ríkja­menn hafa til að bregð­ast við ef við köllum eftir aðstoð. Það segir ekki skýrt þar. Svo á að skýla sér á bak við eitt­hvert áhættu­mat sem gert var hér fyrir ári síðan þegar aðstæður hafa gjör­breyst í heim­inum.

Það er eitt­hvað mjög erfitt og við­kvæmt hér í gangi og ég vona að það sé ekki stefna Vinstri grænna sem leiðir til þess að við sýnum ekki festu og ákveðni strax í okkar við­brögðum í því hvernig við eigum að verja okkar öryggi, treysta okkar öryggi,“ sagði hún.

Þor­gerður Katrín spurði í fram­hald­inu hvort for­sæt­is­ráð­herra myndi beita sér fyrir því að taka upp varn­ar­samn­ing­inn við Banda­ríkin í ljósi þess að hann geymdi skýr­ari ákvæði til að verja Íslend­inga, ekki ein­ungis varð­andi net­ör­yggi heldur einnig til þess að vita hversu langan tíma Banda­ríkja­menn ætl­uðu sér til að bregð­ast við ef Íslend­ingar ósk­uðu eftir aðstoð þeirra í óör­uggum aðstæðum.

Varasamt að sá þeim fræjum að varnarsamningurinn standist ekki tímans tönn

Katrín svar­aði í annað sinn og sagði að spurn­ing þing­manns­ins kæmi henni meira á óvart en hennar eigin svör.

„Mér finnst vara­samt hjá hátt­virtum þing­manni að vera að sá þeim fræjum hér að varn­ar­samn­ing­ur­inn stand­ist ekki tím­ans tönn. Hann er fyrir hendi. Hann hefur verið upp­færður tvisvar sinnum, 2006 og svo 2016, og það er ekki bara mitt mat sem for­manns þjóðar­ör­ygg­is­ráðs, sem hátt­virtur þing­maður vill helst reyna að láta líta tor­tryggi­lega út, heldur mat rík­is­stjórn­ar­innar að á þessu sé ekki þörf, þetta sé alger­lega skýrt sem og aðildin að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu sem einnig er kveðið á um í þjóðar­ör­ygg­is­stefn­unni.

Ég held því að hér sé hátt­virtur þing­maður að grípa til ákveð­inna mælsku­bragða. Ég held að ekki sé ástæða til að grípa til slíkra mælsku­bragða þegar ástandið í heim­inum er jafn alvar­legt og raun ber vitni. Ég held að engin ástæða sé til að koma hér upp og reyna að láta líta svo út að íslensk stjórn­völd séu ekki að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja öryggi íslenskra borg­ara um leið og við leggjum það af mörkum sem við getum til að koma í veg fyrir þær hörm­ungar sem fólkið í Úkraínu stendur frammi fyrir. Við erum að beita okkur með mann­úð­ar­að­stoð og öðrum þáttum,“ sagði hún.

For­sæt­is­ráð­herra lauk svari sínu á að segja að sam­staðan sem hefði verið á þingi væri eitt­hvað sem þau ættu að reyna að halda í þegar ástandið væri jafn alvar­legt og raun ber vitni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár