Íslenska ríkið kaupir matvæli fyrir um þrjá milljarða á ári

Íslenska ríkið getur sem stór­kaup­andi haft víð­tæk áhrif á eft­ir­spurn eftir mat­vælum, stuðlað að umhverf­is­vænum inn­kaupum, dregið úr kolefn­is­spori og eflt nýsköpun.

Tillaga Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um inn­kaupa­stefnu mat­væla fyrir rík­is­að­ila var sam­þykkt á fundi rík­is­stjórn­ar­innar fyrir helgi. Þetta kemur fram í frétt atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Í henni kemur jafn­framt fram að íslenska ríkið kaupi mat­væli fyrir um þrjá millj­arða króna á ári og sem stór­kaup­andi geti það haft víð­tæk áhrif á eft­ir­spurn eftir mat­vælum, stuðlað að umhverf­is­vænum inn­kaupum, dregið úr kolefn­is­spori og eflt nýsköpun.

Vonast er til að stefnan verði for­dæm­is­gef­andi fyrir sveit­ar­fé­lög og aðra. Kjarni stefn­unnar er að inn­kaup rík­is­að­ila á mat­vælum byggi á mark­miðum um sjálf­bærni, góða lýð­heilsu og umhverf­is­vit­und.

Innleiðingin krefst tíma

Inn­kaupa­stefnan var unnin á vett­vangi Mat­ar­auðs Íslands í sam­starfi við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, heil­brigð­is­ráðu­neytið, umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga. Við vinnslu stefn­unnar var haft víð­tækt sam­ráð við hag­að­ila og drög að stefn­unni voru kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í mars síð­ast­liðnum.

Í inn­kaupa­stefn­unni segir að inn­leið­ing hennar krefj­ist tíma, fjár­magns og sam­ráðs. Sú stefna að hækk­andi hlut­fall mat­væla upp­fylli vist­væn skil­yrði í opin­berum inn­kaupum verði aðeins inn­leidd yfir margra ára tíma­bil með sífelldu sam­ráði við full­trúa hag­að­ila. Mark­miðið sé að fram­leið­endur, birgjar/bjóð­endur og inn­kaupa­stjórar mat­væla hafi tíma til að aðlag­ast eft­ir­spurn og kröfum sem settar eru fram í þess­ari inn­kaupa­stefnu.

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra seg­ist fagna því að rík­is­stjórnin hafi sam­þykkt inn­kaupa­stefnu fyrir opin­ber inn­kaup mat­væla sem byggir á því að draga úr nei­kvæðum umhverf­is­á­hrifum við fram­leiðslu, flutn­inga og umsýslu mat­væla. „Í stefn­unni er lögð áhersla á að mál­tíðir í mötu­neytum séu í sam­ræmi við ráð­legg­ingar Embættis land­læknis um matar­æði og að neyt­endur séu upp­lýstir um upp­runa og nær­ing­ar­gildi mat­ar­ins. Það er mín trú að stefnan muni efla íslenska mat­væla­fram­leiðslu og veita henni enn frek­ari tæki­færi til nýsköp­unar og þró­unar,“ segir Kristján Þór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár