Búið að afhenda stefnur útgerða sem vildu tíu milljarða frá ríkinu – Birtar í heild sinni

Nú, tæp­lega níu mán­uðum eftir að Kjarninn óskaði eftir því að fá afhentar stefnur útgerða á hendur íslenska rík­inu vegna úthlut­unar mak­ríl­kvóta, þar sem þær reynd­ust fara fram á millj­arða króna í skaða­bætur, hafa þær loks verið afhentar.

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson er framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, sem er ein tveggja útgerða sem ætlar að halda kröfum sínum til streitu.
Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son er fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar, sem er ein tveggja útgerða sem ætlar að halda kröfum sínum til streitu. Mynd: Skjáskot

Emb­ætti rík­is­lög­manns hefur afhent rit­stjórn Kjarn­ans stefnur sjö sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á hendur íslenska rík­inu þar sem þau fóru fram á sam­tals 10,2 millj­arða króna skaða­bætur vegna fjár­­tjóns sem þau töldu sig hafa orðið fyrir vegna mak­ríl­kvóta sem fór ekki til þeirra á árunum 2011 til 2018. Útgerð­irnar ákváðu að höfða mál eftir að tveir dómar féllu í Hæsta­rétti í des­em­ber 2018 sem sögðu að ekki hefði verið rétt haldið á úthlutun á mak­ríl­kvóta. Alls hafa liðið tæp­lega níu mán­uðir frá því að Kjarninn óskaði fyrst eftir gögn­unum og þar til að þau feng­ust afhent.

Fyr­ir­tækin sem stefndu rík­inu eru Ísfé­lag Vest­manna­eyja, Eskja, Gjög­­ur, Loðn­u­vinnslan, Skinn­ey-­­Þinga­­nes, Hug­inn og Vinnslu­­­­stöðin.

Öll nema þau tvö síð­ast­nefndu hafa nú dregið stefnur sínar til baka.

Upplýsingarnar birtar á vef Alþingis

Emb­ætt­inu hafði verið gert að afhenda stefn­urnar eftir að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hafði kom­ist að því, í úrskurði sem féll 1. apríl, að hags­munir „almenn­ings að aðgangi að upp­lýs­ingum um mála­til­búnað einka­að­ila á hendur íslenska rík­inu vegi í þessu til­viki þyngra en hags­munir þeirra síð­ar­nefndu af því að þær fari leynt.“ Áður hafði rík­is­lög­maður hafnað beiðni Kjarnans um aðgengi að stefn­unum. Sú ákvörðun var kærð til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál með áður­nefndum afleið­ingum.

[adspot]Frá því að úrskurður nefnd­ar­innar lá fyrir og þar til stefn­urnar voru afhentar liðu þrjár vikur.

Í milli­tíð­inni, þann 11. apríl, birt­ist helsta inn­tak stefn­anna í fyrsta sinn opin­ber­lega í svari Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, for­manns Við­reisnar, á Alþingi. Í svar­inu kom fram að heild­ar­um­fang stefn­anna hafi numið 10,2 millj­örðum króna auk þess sem að þær fóru fram á hæstu mögu­legu vexti sem hefði þýtt nokkra millj­arða króna kostnað í við­bót fyrir rík­is­sjóð, ef málin hefðu tap­ast.

Fimm af sjö hættu við

14. apríl rataði málið inn í sal Alþingis, og í ræður helstu ráða­manna, þar sem þeir ræddu áhrif COVID-19 far­ald­­­­ur­s­ins og um við­brögð stjórn­­­­­­­valda við honum. Bjarni Bene­dikts­­son fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði þá að ef svo ólík­­­­­lega færi að ríkið myndi tapa mál­inu þá væri það ein­falt mál í hans huga að reikn­ing­­­­ur­inn vegna þess yrði ekki sendur á skatt­greið­end­­­­ur. „Reikn­ing­­­­ur­inn vegna þess verður þá að koma frá grein­inni. Það er bara svo ein­falt,“ sagði hann.

Katrín Jak­obs­dóttir for­­­­sæt­is­ráð­herra sagð­ist verða reið þegar „fyr­ir­tæki í sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegi gera kröfu á ríkið upp á ríf­­­­lega tíu millj­­­­arða vegna mak­rílút­­­­hlut­un­­­­ar.“ Hún hvatti útgerð­irnar sjö í kjöl­farið til að draga stefnur sínar til baka.

Dag­inn eftir greindu fimm af sjö útgerðum frá því að þær væru hættar við. Tvær, Vinnslu­stöðin og Huginn, sem bæði eru úr Vest­manna­eyjum ætla hins vegar að halda málum sínum til streitu. Vinnslu­stöðin vill fá tæpan millj­arð króna í skapa­bætur og Huginn, sem er að hluta til í eigu Vinnslu­stöðv­ar­innar, vill 839 millj­ónir króna.

Fengu Deloitte til að reikna út „hagnaðarmissi“

Í stefn­unum er meðal ann­ars farið yfir hvernig skaða­bóta­kröf­urnar voru reikn­aðar út. Það var gert með því að fá end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið Deloitte til að reikna út „hagn­að­ar­missi“ útgerð­anna sjö. Við þann útreikn­ing var stuðst við svo­kall­aða jað­ar­fram­legð mak­ríls. Í hluta stefn­anna er búið að strika yfir þá útreikn­inga sem stuðst var við í kröfu­gerð­inni, en þeir eru sýni­legir í öðrum. Það var gert með þeim rökum að þar væri um að ræða „virkar við­skipta­upp­lýs­ingar“.

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði, komst að þeirri nið­ur­stöðu, með því að reikna út frá meintum hagn­að­ar­missi útgerð­anna sjö, að hreinn hagn­aður þeirra vegna mak­ríl­veiða væri 55,5 millj­arðar króna. Þá nið­ur­stöðu birti hann í grein á Kjarn­anum 15. apríl síð­ast­lið­inn.

[links]Í öllum mál­unum er Bjarna Bene­dikts­syni eða Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, stefnt fyrir hönd íslenska rík­is­ins.

Í stefnu Vinnslu­stöðv­ar­innar, ann­ars þeirra útgerða sem ætla að halda áfram mála­rekstri sínum gegn íslenska rík­inu, kemur fram að Vinnslu­stöðin hafi verið í sam­bæri­legu máli og Ísfé­lagið og Huginn þegar dómar Hæsta­réttar féllu í des­em­ber 2018, þar sem kraf­ist var við­ur­kenn­ingar á skaða­bóta­skyldu. Í stefn­unni segir að því „máli lyktaði með sátt við íslenska ríkið sem var gerð 28. maí 2019[...]Með sátt­inni við­ur­kenndi íslenska ríkið að bera skaða­bóta­á­byrgð á fjár­tjóni, sem stefn­andi kynni að hafa beðið vegna þess að fiski­skipum stefn­anda hafi á árunum 2011 til 2014 verið úthlutað minni afla­heim­ildum í mak­ríl en skylt var skv. lögum“.

Í sátt­inni kom þó fram fyr­ir­vari íslenska rík­is­ins að með gerð hennar væri ekki „við­ur­kennt að stefn­andi ætti fjár­kröfu á hendur stefnda, heldur tak­mark­að­ist sáttin við nið­ur­stöður Hæsta­réttar í sam­bæri­legum málum. Ekki var við­ur­kennt að tjón hefði orðið og sér­stak­lega tekið fram að sáttin tak­mark­aði ekki varnir stefnda gagn­vart hugs­an­legum fjár­kröfum að neinu leyti“.

Hægt er að lesa stefn­urnar hér að neðan.

Stefnur 27. júní 2019.

Stefnur 10. sept­em­ber 2019.

Stefna Vinnslu­stöðv­ar­innar 10. des­em­ber 2019.

Stefna Eskju 10. des­em­ber 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár