Fimm af sjö sjávarútvegsfyrirtækjum falla frá málsókn

Fyr­ir­tækin sem um ræðir eru Eskja, Gjögur, Ísfélag Vest­manna­eyja, Loðnu­vinnslan og Skinney-Þinganes.

Fimm útgerðir hafa ákveðið að falla frá mál­sókn um skaða­bætur vegna fjár­­­tjóns sem þau töldu sig hafa orðið fyrir vegna mak­ríl­kvóta sem fór ekki til þeirra á árunum 2011 til 2018. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tækj­unum.

Fyr­ir­tækin sem um ræðir eru Eskja, Gjögur, Ísfélag Vest­manna­eyja, Loðnu­vinnslan og Skinney-Þinganes. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin Hug­inn og Vinnslu­­stöðin skrifa ekki undir til­kynn­ing­una.

„Svo sem fram hefur komið munu áhrif heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar hafa víð­tæk áhrif á rík­is­sjóð og allt íslenskt sam­fé­lag. Fyrir end­ann á því verður ekki enn séð, því miður. Það er hins vegar á svona stundum sem styrk­leikar íslensks sam­fé­lags koma vel í ljós. Víðtæk sam­staða og bar­áttu­hugur hafa ein­kennt sam­fé­lagið síð­ustu vikur og mán­uði. Nú verða allir að leggja lóð á vog­ar­skálar. Af þessum sökum hafa und­ir­rituð fimm sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki tekið þá ákvörðun að falla frá kröfum á hendur íslenska rík­inu vegna ágrein­ings um úthlutun afla­heim­ilda í mak­ríl,“ segir í til­kynn­ing­unni.

[links]Þá kemur fram að þann 6. des­em­ber 2018 hafi verið kveðnir upp tveir dómar Hæsta­réttar, þar sem við­ur­kennd hafi verið skaða­bóta­skylda íslenska rík­is­ins vegna fjár­tjóns sem tvær útgerðir (Ísfélag Vest­manna­eyja hf. og Huginn ehf.) töldu sig hafa orðið fyrir með því að fiski­skip þeirra hefðu á grund­velli reglu­gerða verið úthlutað minni afla­heim­ildum í mak­ríl árin 2011 til 2014 en skylt hefði verið sam­kvæmt lögum. „Með dómum þessum var því stað­fest að lög hafi verið brotin af hálfu þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra við úthlutun afla­heim­ilda og að leiddar hefðu verið að því líkur að fjár­hags­legt tjón hafi hlot­ist af þeirri hátt­semi. Umboðs­maður Alþingis komst að sam­bæri­legri nið­ur­stöðu vegna þess­arar með­ferðar ráðs­herra.“

Í kjöl­far þess­ara dóma hefðu sjö útgerð­ar­fé­lög höfðað, um mið­bik síð­asta árs, mál á hendur íslenska rík­inu til heimtu skaða­bóta vegna þess tjóns sem þau urðu fyrir vegna rangrar úthlut­unar mak­ríl­kvóta, á tíma­bil­inu 2011 til 2018, eins og fram hefur komið.

„Árétta ber að enn hefur ekki verið dæmt um hvert hið fjár­hags­lega tjón hlut­að­eig­andi aðila var á því tíma­bili sem afla­heim­ildum var úthlutað í and­stöðu við sett lög. Það hefur raunar ekki verið grund­vall­ar­þáttur máls­ins. Það sem mest er um vert, er að settum lögum sé fylgt og ábyrgð fylgi því þegar út af bregður. Það á við um fyr­ir­tæki, ein­stak­linga og stjórn­völd. Þetta er einn grund­vall­ar­þáttur rétt­ar­ríkis,“ segir enn fremur í til­kynn­ing­unni.

Langhæsta krafan frá Ísfélagi Vestmannaeyja

Kjarninn greindi frá því um helg­ina að lang­hæsta krafan hefði verið frá Ísfé­lagi Vest­manna­eyja, sem krafð­ist tæp­lega 3,9 millj­arða króna auk vaxta úr rík­is­sjóði. Stærsti eig­andi Ísfé­lags­ins er Guð­björg Matth­í­as­dótt­ir. Félög í eigu Guð­bjargar og fjöl­skyldu hennar eru einnig stærstu eig­endur Árvak­urs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins.

Eskja krafð­ist þess að fá rúm­lega tvo millj­arða króna í bæt­ur, Loðnu­vinnslan og Skinn­ey-­Þinga­nes vildu rúman millj­arð króna og Vinnslu­stöðin í Vest­manna­eyjum krefst þess að fá tæpan millj­arð króna auk vaxta. Hug­inn vill fá 839 millj­ónir króna og Gjög­ur, sem er næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar (Sam­herji er stærsti eig­and­inn) krafð­ist 364 millj­óna króna. Í stefnu Gjög­urs var einnig kraf­ist bóta vegna kostn­aðar við að leigja afla­heim­ild­ir á ár­un­um 2015 til 2018.

Sagði ríkið hóta útgerðunum sem áttu „lögboðinn rétt“ á makrílkvóta

Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar í Vest­manna­eyj­um, sagði í Morg­un­blað­inu í morgun að þótt það væru erf­iðir tímar þá giltu enn lög. „Ég hef oft heyrt í fréttum að ríkið hafi tapað máli og verið dæmt til greiðslu skaða­bóta í kjöl­farið en aldrei áður heyrt því hótað að skatt­leggja þá sem urðu fyrir skað­anum sér­stak­lega fyrir skaða­bót­un­um. Ég er ekki lög­lærður en ég að held ég geti full­yrt að þessa laga­túlkun sé ekki að finna í lög­bókum rétt­ar­ríkja.“

Vinnslu­stöðin er ekki ein af þeim útgerðum sem ákváðu að falla frá mál­sókn.

Sig­ur­geir sagði að útgerð­irnar hefðu verið beittar rang­indum og að þær, sem væru frum­kvöðlar í mak­ríl­veið­um, gætu ekki verið söku­dólgar í mál­inu. Þvert á móti hefðu útgerð­irnar fært þjóð­inni mikil verð­mæti. Ríkið hefði beitt ólög­mætri nálgun við úthlutun mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2018 og fært slíkan frá þeim útgerðum sem hefðu átt „lög­boð­inn rétt“ til ann­arra sem áttu hann ekki.

Ekk­ert gjald hefur nokkru sinni verið greitt fyrir úthlutun mak­ríl­kvóta. Í fyrra­vor var ákveðið að fast­setja úthlutun hans í lög án þess að end­ur­gjald hafi verið tekið fyr­ir.

Ekki góð leið til að efla samstöðu í samfélaginu

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði á Alþingi í gær að ef svo ólík­lega færi að ríkið myndi tapa mál­inu þá væri það ein­falt mál í hans huga að reikn­ing­­ur­inn vegna þess yrði ekki sendur á skatt­greið­end­­ur. „Reikn­ing­­ur­inn vegna þess verður þá að koma frá grein­inni. Það er bara svo ein­falt,“ sagði hann.

Katrín Jak­obs­dóttir for­­sæt­is­ráð­herra flutti munn­­lega skýrslu um áhrif COVID-19 far­ald­­ur­s­ins og um við­brögð stjórn­­­valda við þeim áhrifum á Alþingi í gær. Þar gerði hún kröfu útgerð­anna að umtals­efni. „Ég vil segja það að hér að ég hef verið gríð­­ar­­lega ánægð með þá sam­­stöðu sem maður hefur skynjað í sam­­fé­lag­inu í því að takast á við veiruna. Bæði fyr­ir­tæki og fólk hafa þar sýnt mikla ábyrgð. Flokkar á Alþingi hafa sýnt mikla ábyrgð. Þetta er dýr­­mætt.

En þá verður maður líka reiður þegar fyr­ir­tæki í sjá­v­­­ar­út­­­vegi gera kröfu á ríkið upp á ríf­­lega tíu millj­­arða vegna mak­rílút­­hlut­un­­ar.“

Katrín sagði þetta ekki góða leið til að efla sam­­stöðu í sam­­fé­lag­inu. „Það er ekki góð leið til að vera á sama báti í gegnum þetta ferða­lag sem við erum stödd í. Þó ég telji að ríkið hafi góðan mál­­stað í þessu máli þá finnst mér eðli­­legt að þessi fyr­ir­tæki íhugi það að draga þessar kröfur á til baka. Nú reynir nefn­i­­lega á ábyrgð okkar allra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár