Segir ríkið vera að hóta útgerðunum sem eigi „lögboðinn rétt“ á makrílkvóta

Fram­kvæmda­stjóri einnar af þeim útgerðum sem hefur stefnt íslenska rík­inu og krefj­ast sam­tals 10,2 millj­arða króna skaða­bóta vegna úthlut­unar mak­ríl­kvóta segir að þær hafi verið beittar rang­indum. Útgerð­irnar geti ekki verið söku­dólgar í mál­inu.

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum.
Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar í Vest­manna­eyjum. Mynd: Skjáskot

Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar í Vest­manna­eyjum, segir að þótt það séu erf­iðir tímar þá gildi enn lög. ,,Ég hef oft heyrt í fréttum að ríkið hafi tapað máli og verið dæmt til greiðslu skaða­bóta í kjöl­farið en aldrei áður heyrt því hótað að skatt­leggja þá sem urðu fyrir skað­anum sér­stak­lega fyrir skaða­bót­unum. Ég er ekki lög­lærður en ég að held ég geti full­yrt að þessa laga­túlkun sé ekki að finna í lög­bókum rétt­ar­ríkja.“

Þetta segir Sig­ur­geir í Morg­un­blað­inu í dag en til­efnið er það að bæði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­háð­herra, gagn­rýndu sjö útgerðir sem stefnt hafa rík­inu og vilja fá 10,2 millj­arða króna, auk vaxta­greiðslna upp á millj­arða króna, vegna þess að þær telja sig hafa verið snuð­aðar við úthlutun á mak­ríl­kvóta um nokk­urra ára skeið. Vinnslu­stöðin er ein þeirra útgerða sem fer fram á að ríkið greiði sér skaða­bætur.

[links]Bjarni sagði á Alþingi í gær að ef svo ólík­lega færi að ríkið myndi tapa mál­inu þá væri það ein­falt mál í sínum huga að reikn­ing­ur­inn vegna þess verði ekki sendur á skatt­greið­end­ur. „Reikn­ing­ur­inn vegna þess verður þá að koma frá grein­inni. Það er bara svo ein­falt.“

Sig­ur­geir segir að útgerð­irnar hafi verið beittar rang­indum og að þær, sem séu frum­kvöðlar í mak­ríl­veiðum, geti ekki verið söku­dólgar í mál­inu. Þvert á móti hafi útgerð­irnar fært þjóð­inni mikil verð­mæti. Ríkið hafi beitt ólög­mætri nálgun við úthlutun mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2018 og fært slíkan frá þeim útgerðum sem hafi átt „lög­boð­inn rétt“ til ann­arra sem áttu hann ekki.

Ekkert gjald hefur nokkru sinni verið greitt fyrir úthlutun mak­ríl­kvóta. Í fyrra­vor var ákveðið að fast­setja úthlutun hans í lög án þess að end­ur­gjald hafi verið tekið fyrir. 

Krefjast 10,2 milljarða króna auk hæstu mögulegu vaxta

Kjarn­inn greindi frá því á laug­ar­dag að sjö útgerðir krefji íslenska ríkið um sam­tals 10,2 millj­­arða króna auk hæstu fáan­­legu vaxta vegna fjár­­­­tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir vegna mak­ríl­kvóta sem fór ekki til þeirra á árunum 2011 til 2018. Útgerð­­irnar ákváðu að höfða mál eftir að tveir dómar féllu í Hæsta­rétti í des­em­ber 2018 sem sögðu að ekki hefði verið rétt haldið á úthlutun á mak­ríl­kvóta.

[adspot]Um er að ræða fyr­ir­tækin Gjög­ur hf., Ísfé­lag Vest­­­manna­eyja hf., Skinn­ey-­­­Þinga­­­nes hf., Loðn­­u­vinnsl­an hf. og Hug­inn ehf., Eskja hf. og Vinnslu­­­stöðin hf.

Lang­hæsta krafan er frá Ísfé­lagi Vest­manna­eyja, sem krefst tæp­lega 3,9 millj­arða króna auk vaxta úr rík­is­sjóði. Stærsti eig­andi Ísfé­lags­ins er Guð­björg Matth­í­as­dótt­ir. Félög í eigu Guð­bjargar og fjöl­skyldu hennar eru einnig stærstu eig­endur Árvak­urs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins.

Eskja krefst þess að fá rúm­lega tvo millj­arða króna í bæt­ur, Loðnu­vinnslan og Skinn­ey-­Þinga­nes vilja rúman millj­arð króna og Vinnslu­stöðin í Vest­manna­eyjum krefst þess að fá tæpan millj­arð króna auk vaxta. Hug­inn vill fá 839 millj­ónir króna og Gjög­ur, sem er næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar (Sam­herji er stærsti eig­and­inn) krefst 364 millj­óna króna. Í stefnu Gjög­urs er einnig kraf­ist bóta vegna kostn­aðar við að leigja afla­heim­ild­ir á ár­un­um 2015 til 2018.

Forsætisráðherra varð reið

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra flutti munn­lega skýrslu um áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins og um við­brögð stjórn­valda við þeim áhrifum á Alþingi í gær. Þar gerði hún kröfu útgerð­anna að umtals­efni. „Ég vil segja það að hér að ég hef verið gríð­ar­lega ánægð með þá sam­stöðu sem maður hefur skynjað í sam­fé­lag­inu í því að takast á við veiruna. Bæði fyr­ir­tæki og fólk hafa þar sýnt mikla ábyrgð. Flokkar á Alþingi hafa sýnt mikla ábyrgð. Þetta er dýr­mætt.

En þá verður maður líka reiður þegar fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi gera kröfu á ríkið upp á ríf­lega tíu millj­arða vegna mak­rílút­hlut­un­ar.“

Katrín sagði þetta ekki góða leið til að efla sam­stöðu í sam­fé­lag­inu. „Það er ekki góð leið til að vera á sama báti í gegnum þetta ferða­lag sem við erum stödd í. Þó ég telji að ríkið hafi góðan mál­stað í þessu máli þá finnst mér eðli­legt að þessi fyr­ir­tæki íhugi það að draga þessar kröfur á til baka. Nú reynir nefni­lega á ábyrgð okkar allra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár