Kolbeinn: RÚV þarf að fá útvarpsgjaldið bætt að fullu

Þing­maður Vinstri grænna telur að til þess að hægt sé að halda rekstri Rík­is­út­varps­ins áfram gang­andi þurfi það að fá útvarps­gjaldið bætt að fullu.

Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG.
Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, segir að Rík­is­út­varpið (RÚV) sé að miklu leyti „vagga okkar menn­ingar og upp­lýs­inga­flæðis sem við þurfum“. Hann er þeirrar skoð­unar að bæta þurfi RÚV upp að fullu minnk­andi útvarps­gjald og til þess að hægt sé að halda rekstr­inum áfram gang­andi þurfi RÚV að fá útvarps­gjaldið bætt að fullu.

Þetta kom fram í máli þing­manns­ins undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Við lifum á tímum þar sem sam­eig­in­legur skiln­ingur er á und­an­haldi. Stjórn­mála­menn, hvar í löndum sem þeir eru, skirr­ast ekki við að halda fram sínum sann­leika, sínum stað­reyndum. Upp og niður, austur og vestur, við erum ekki lengur sam­mála um hvað það er.

Á slíkum tímum er öfl­ugir fjöl­miðlar mik­il­væg­ari en nokkru sinni fyrr. Það hefur sýnt sig í þeim heims­far­aldri sem nú hefur skekið heims­byggð­ina um nokk­urra miss­era skeið hve öfl­ugur rík­is­fjöl­mið­ill er nauð­syn­legur lýð­ræð­is­legri umræðu á Íslandi, upp­lýs­inga­gjöf og því að koma á fram­færi því sem við þurfum öll að vita,“ sagði hann.

Kolbeinn benti á að staða RÚV væri erfið, eins og ann­arra fjöl­miðla.

„Við erum hér með sér­stakt mál í gangi um stuðn­ing fyrir einka­rekna fjöl­miðla. RÚV hefur eins og aðrir fjöl­miðlar þurft að búa við að tekjur hafa dreg­ist saman vegna minnk­andi aug­lýs­inga­sölu. Í ofaná­lag hefur RÚV líka þurft að búa við það að tekjur vegna útvarps­gjalds hafa dreg­ist saman, færri greiða útvarps­gjaldið en gert hafa. Þetta eru fjár­hæðir sem skipta rekstur Rík­is­út­varps­ins gríð­ar­lega miklu máli og þar með talið okkur öll.

Rík­is­út­varpið er að miklu leyti vagga okkar menn­ingar og upp­lýs­inga­flæðis sem við þurfum. Ég er þeirrar skoð­unar, for­seti, að bæta þurfi RÚV upp að fullu minnk­andi útvarps­gjald. Til að við getum haldið rekstr­inum áfram þarf RÚV að fá útvarps­gjaldið bætt að fullu,“ sagði þing­mað­ur­inn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár