„Erum á viðkvæmum stað þegar kemur að trausti“

Þing­maður VG seg­ist vera til­bú­inn til þess að farið verði ofan í hvern krók og kima á Íslands­banka­söl­unni. Hún vill í kjöl­farið af rann­sókn að ákvarð­anir verði teknar um hvernig betur megi standa að sölu rík­is­eigna.

Jódís Skúladóttir þingmaður VG.
Jódís Skúla­dóttir þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Jódís Skúla­dóttir þing­maður Vinstri grænna og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar ræddu báðar hug­takið traust í sam­bandi við banka­söl­una í ræðum sínum undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Jódís benti í upp­hafi ræðu sinnar á að mikið hefði verið rætt um traust í sam­fé­lag­inu þessa dag­ana eða öllu heldur skort á trausti.

„Eftir hrun hefur gengið erf­ið­lega að byggja upp traust í sam­fé­lag­inu. Sala á hlut í Íslands­banka hefur sýnt okkur hvað við erum á við­kvæmum stað þegar kemur að trausti. Því er úti­lokað annað en að farið sé yfir það hvernig þess­ari sölu var háttað, hvernig staðið var að hverju skrefi í ferl­inu, og það er verið að gera. Við erum að rann­saka, við erum sem sam­fé­lag að ræða málið, við erum að bregð­ast við á öllum þeim sviðum sem þarf til,“ sagði hún.

Vinstri græn vilja skipa rannsóknarnefnd – seinna

Telur Jódís að það sé ekki til þess fallið að efla traust sam­fé­lags­ins á stjórn­völdum að umræðan sé óreiðu­kennd eða bygg­ist á órök­studdum upp­hróp­unum. „Því hefur til dæmis ítrekað verið haldið fram að stjórn­ar­flokk­arnir vilji ekki skipa rann­sókn­ar­nefnd. Það er ekki rétt. Þvert á móti hafa félagar mínir í þing­flokki Vinstri grænna end­ur­tekið lýst yfir vilja til að velta við öllum steinum.“

Las hún í fram­hald­inu upp úr grein­ar­gerð með frum­varpi til laga um rann­sókn­ar­nefndir þar sem segir að skipun rann­sókn­ar­nefndar sé úrræði sem ber ein­ungis að nota ef ein­sýnt er að ekki sé unnt að not­ast við hin hefð­bundnu rann­sóknar­úr­ræði. Úrræðið sé sér­úr­ræði og mik­il­vægt að á það sé litið sem slíkt og að til þess sé ekki gripið nema nauð­syn­legt sé.

„Það þýðir ekki að þegar aðrar og aug­ljós­ari leiðir hafa verið tæmdar verði ekki farið í að skipa rann­sókn­ar­nefnd,“ sagði hún. „Er ég glöð með sölu­ferlið og útkom­una? Nei, bara hreint ekki. Er ég til­búin til þess að farið verði ofan í hvern krók og kima þessa máls? Já, það er ég, og í kjöl­farið verði ákvarð­anir teknar um hvernig betur megi standa að sölu rík­is­eigna þannig að hafið sé yfir allan vafa og að almenn­ingur geti treyst fag­legu, gagn­sæi og heið­ar­legu ferli í þessu sem öðru sem stjórn­völd gera hverju sinni.“

Skjaldborg um Bjarna Benediktsson

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði aftur á móti í sinni ræðu að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Vinstri græn hefðu slegið skjald­borg um Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Það myndi ekki efla traust almenn­ings til stjórn­mála­manna eða Alþingis.

Hún sagði að það væri inni­halds­laust hjal að halda því fram að tæma þyrfti önnur rann­sóknar­úr­ræði áður en rann­sókn­ar­nefnd Alþingis yrði sett á lagg­irnar eins og stjórn­ar­and­staðan hefur óskað eftir.

„Það er ákvörðun Alþingis að gera það og það er ekk­ert í lögum sem segir að hitt þurfi að tæma. Það liggur fyrir hver úrræðin eru, hver úrræði rík­is­end­ur­skoð­anda eru og hver úrræði rann­sókn­ar­nefnda eru. Það er skrifað inn í íslenska lög­gjöf,“ sagði hún.

Þórunn ráð­lagði þing­mönnum að kíkja á texta í þing­skap­ar­lögum þar sem segir að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd skuli hafa frum­kvæði að því að kanna ákvarð­anir ein­stakra ráð­herra eða verk­lag þeirra sem ástæða þykir til að athuga á grund­velli þess eft­ir­lits­hlut­verks sem Alþingi hefur gagn­vart fram­kvæmd­ar­vald­inu. Komi beiðni um slíka athugun frá að minnsta kosti fjórð­ungi nefnd­ar­manna skuli hún fara fram. Um athugun sína geti nefndin gefið þing­inu skýrslu.

„Þetta úrræði hefur ekki verið tæmt og það er eins gott að þing­menn átti sig á því hvert eft­ir­lits­hlut­verk hátt­virtrar stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar er. Við munum fá upp­lýs­ingar um afmörkun rann­sóknar Rík­is­end­ur­skoð­anda og í ljósi þeirrar afmörk­unar mun stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd nota þau laga­legu úrræði sem hún hefur til að sinna eft­ir­lits­hlut­verki sínu gagn­vart hæst­virtum fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra,“ sagði Þórunn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár